DAN 193

DAN 102
DAN 202
DAN 212

DAN 103
DAN 203

DAN 303
DAN 403
DAN 503

DAN 313
DAN 222
DAN 323

Upplýsingar um námið


Á forsíðu          Fréttir          Upplýsingar um námið          Krækjur          Heimasíða FÁ

Almennt 
Danska er skyldufag á öllum brautum í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Á námsbrautum til stúdentsprófs þurfa allir nemendur að taka að minnsta kosti 6 einingar í dönsku en á málabraut þurfa nemendur að taka að minnsta kosti 12 einningar. Að auki er hægt að taka aukaáfanga á mismunandi kjörsviðum. 

Nemendur í Heilbrigðisskólanum þurfa að ljúka að minnsta kosti 4 einingum í dönsku. Að auki er boðið upp á áfanga í dönsku fyrir heilbrigðisstéttir (DAN 222).

Hvers vegna danska?
Danska hefur um langt árabil verið fyrsta erlenda tungumálið í íslenskum grunnskólum. Þó svo að enskan skipi nú þann sess að vera fyrsta erlenda tungumálið sem nemendur læra standa enn öll rök óhögguð fyrir því að íslensk ungmenni læri norrænt mál.

Dönskukunnátta er lykillinn að Norðurlöndunum fyrir Íslendinga. Þeir sem lært hafa dönsku eiga tiltölulega auðvelt með að tileinka sér norsku eða sænsku. Saga landanna var samofin í nokkrar aldir og því eiga Íslendingar menningararf sinn að hluta til með Dönum. 

Þáttaka í norrænni samvinnu
Íslendingar taka mikinn þátt í samstarfi Norðurlanda á sviði stjórnmála, menningarmála, umhverfismála, félagsmála, menntamála o.s.frv. Hið formlega norræna samstarf fer í gegnum Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina. Einnig hafa Vestnorræn samskipti milli Íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga aukist en í því samstarfi er danska samskiptamál. 


Fjölbrautaskólinn við Ármúla og Helbrigðisskólinn hafa í þó nokkur ár átt í formlegu samstarfi við fjölda annara skóla víða um Norðurlönd og fengið til þess styrk frá Norrænu ráðherranefndinni. Í öllum tilfellum hefur danska verið notað sem samskiptamál. Bæði kennarar og nemendur hafa tekið þátt í þessu samstarfi og því verið með í að efla skólastarfið og gert það skemmtilegra að vera í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.

Kennslan
Í könnunum meðal nýnema í FÁ sem dönskudeildin hefur staðið að í byrjun haustannarinnar síðastliðin þrjú ár kemur fram að stór hluti nemenda telur erfiðast að hlusta á og tala dönsku. Ennfremur vill meirahlutinn eða u.þ.b. 68% helst læra talmál.

Dönskukennslan í FÁ reynir að taka tillit til óska nemenda hvað þetta varðar. Samtímis er þó mikilvægt að nemendur vinni með alla færniþættina hvern í tengslum við annan þannig að kennslan endurspegli eðlilega notkun málsins. Þá ber einnig að leggja áherslu á að gefa nemendum tækifæri til að nota málið sem tæki til lifandi tjáskipta. 

Markmið kennslunnar
Lokamarkmið eftir 6 einingar er að nemendur noti dönsku sem tjáskiptatæki, bæði til þess að miðla og afla sér þekkingar og reynslu. Einnig er gert ráð fyrir að nemendur geti tjáð sig munnlega um flest það sem þeir hafa þekkingu á og skilji allt venjulegt talað mál á ríkisdönsku. Að auki er markmiðið að þeir séu færir um að beita mismunandi lestaraðferðum, þ.e. leitarlestri, yfirlitslestri, nákvæmnislestri og hraðlestri, hafi skilning á og geti beitt helstu málnotkunarreglum og geti tjáð sig skriflega á sjálfstæðan hátt um efni sem þeir þekkja.