Læknaritarabraut

 Um brautina

Skipulag náms

Bóklegur hluti

Áfangalýsingar

Starfsþjálfun

Fjarnám

Kennarar

Áhugaverðir tenglar

 Tanntæknabraut     Læknaritarabraut     Sjúkraliðabraut    Nuddbraut    Lyfjatæknibraut    FÁ 
Velkomin á heimasíðu Læknaritarabrautar

Frá haustinu 1992 hefur Fjölbrautaskólinn við Ármúla einn skóla séð um menntun læknaritara.   Námið veitir lögvernduð réttindi til starfsheitisins læknaritari, skv. reglugerð heilbrigðisráðuneytisins.  Til að hefja nám á læknaritarabraut er krafist stúdentsprófs eða sambærilegrar menntunar og starfsreynslu.  Góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg sem og færni í vélritun. Nám í læknaritun er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.

 

Markmið náms í læknaritun er  

·        að nemendur öðlist þekkingu og færni til að starfa af fagmennsku

·        að aðlaga námið á hverjum tíma að síbreytilegum kröfum atvinnulífsins

·        að auka hlutfall menntaðra læknaritara í starfi

·        að stuðla að símenntun starfandi læknaritara

Læknaritarar starfa víða innan heilbrigðiskerfisins, svo sem á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, læknastofum og stofnunum hins opinbera er fara með stjórnunarmál á heilbrigðissviði.
fréttir