Lyfjatæknabraut - skipulagning námsins

Brautarlýsing (ný)

Brautarlýsing (gömul)

Um brautina

Lyfjatækni

Skipulagning  námsins

Áfangalýsingar


Sérnám

Starfsnám

Stúdentspróf

Áhugaverðir tenglar

Fjarnám

Tanntæknabraut    Læknaritarabraut     Sjúkraliðabraut    Nuddbraut    Lyfjatæknabraut  

Samkvæmt nýrri námskrá í lyfjatækni sem byrjað verður að kenna eftir haustið 2004, þá teljast sérgreinar lyfjatæknabrautar 110 einingar og flestar þeirra er einungis hægt að taka í Heilbrigðisskólanum. Af þessum 110 ein. eru 14 ein. starfsnám.

Frá og með haustönn 2001 er boðið upp á fjarnám í Fjölbrautaskólanum við Ármúla, bæði í almennum greinum og nokkrum sérgreinum brautarinnar.

Nám lyfjatækna breyttist töluvert og lengdist við það að færa það yfir í fjölbrautaskóla. Í dag eru ca. helmingur nýnema á lyfjatæknabraut með stúdentspróf og ljúka þeir náminu á 4-5 önnum. Lyfjatækninemar læra m.a. lyfhrifafræði, hjúkrunar- og sjúkragögn, lyfjagerð, lyfjahvarfafræði, sjúkdómafræði, afgreiðslutækni, lyfjalög, félagslyfjafræði og lyfjafræði náttúruefna.

Kennsla á lyfjatæknabraut samanstendur af fyrirlestrum, verklegri þjálfun, sýnikennslu og hópa- og verkefnavinnu. Námsgögn eru íslenskar, danskar og enskar kennslubækur en víða er skortur á námsbókum svo mikið er stuðst við glósur í tímum.