|
Nám á
lyfjatæknabraut skiptist samkvæmt nýrri námskrá sem byrjað verður að
kenna eftir haustið 2004, í 1ns og hálfs árs aðfararnám (almennar greinar) og
3ja ára nám í sérgreinum brautarinnar, þar af 1 önn starfsnám. Námið er í dag 162 einingar (9
annir).
Lokaönn lyfjatækninámsins er sem sagt starfsnám í
lyfjaverslun, 14 vikur og fær nemandi 14 einingar fyrir það. Þessar 14
vikur vinnur nemandi alla almenna vinnu í lyfjaverslun og vinnur að
ýmsum verkefnum í leiðinni í samvinnu við umsjónarmann.
|