Nuddbraut 

Um brautina

Skipulag náms

Bóklegur hluti

Áfangalýsingar

Verklegur hluti

Starfsþjálfun

Viðbót til stúdentsprófs

Kennarar sérgreina

 Tanntæknabraut     Læknaritarabraut     Sjúkraliðabraut    Nuddbraut    Lyfjatæknibraut    FÁ 
Velkomin á heimasíðu Nuddbrautar

Námsbraut fyrir nuddara var skipulögð í Fjölbrautaskólanum við Ármúla haustið 1993 í samvinnu við Félag íslenskra nuddara og menntamálaráðuneytið. Þeir sem lokið hafa samræmdu grunnskólaprófi geta sótt um nám á nuddbraut.  Umsækjendur með meiri menntun eru metnir inn.  Vegna fjöldatakmarkana í verklegan hluta námsins hefur nemendafjöldi í bóklegt nám einnig verið takmarkaður. Nemendur útskrifast af nuddbraut með starfsheitið heilsunuddari og er unnið að því að starfsheitið fái viðurkenningu innan heilbrigðisráðuneytisins sem heilbrigðisgrein.

Starf nuddara felst í að meðhöndla bólgu, spennu og aðra kvilla í vöðvum og vefjum með nuddi.  Hann beitir nuddi til slökunar  til þess að auka vellíðan nuddþegans.  Hann er einnig leiðbeinandi um heilbrigðar lífsvenjur, mataræði, hreyfingu og rétta líkamsbeitingu. 

Starfsvettvangur nuddara er einkum heilsuræktarstöðvar, sundlaugar og einkastofur
Tilkynningar

.