Nuddbraut - áfangalýsing

 Um brautina

Skipulag náms

Bóklegur hluti

Áfangalýsingar

Verklegur hluti

Starfsþjálfun

Viðbót til stúdentsprófs

Kennarar sérgreina

 Tanntæknabraut    Læknaritarabraut     Sjúkraliðabraut    Nuddbraut    Lyfjatæknabraut  
EÐL132
Undanfari: NÁT123
Farið er yfir grunnatriði um rafmagn.  Fjallað verður um rafhleðslur, rafstrauma, spennu, viðnám og helstu mælitæki.  Fjallað verður um öryggistæki við notkun rafmagnstækja.  Farið verður yfir bylgjufræðina með áherslu á hljóðbylgjur og rafsegulbylgjur (leysigeislar).  Leysigeislar sem meðferðarform.  Fjallað verður um bylgjujöfnuna, hraða, tíðni og bylgjulengd.  Einnig verður fjallað um þau áhrif sem hljóðbylgjur hafa á mannslíkamann.  Vettvangsferð á vinnustað þar sem þessi tæki eru notuð.
 
HBF102
Undanfari: enginn
Ágrip af sögu heilbrigðisfræðinnar. Nútíma heilbrigðisfræði skilgreind. Lífshættir og áhrif þeirra á heilsufar, s.s. hreyfing, mataræði, hreinlæti, eiturefni, kynlíf, geðheilsa o.fl. Faraldursfræði, smitsjúkdómar, kembirannsóknir.
 
HBF203
Undanfari: HBF 102, NÁT103 og NÁT123
Umhverfisheilsufræði - heilbrigðiseftirlit: Eðlisfræðilegt umhverfi; ljós, loft, hljóð, vatn, o.fl. Efnafræðilegt umhverfi: eiturefni, mengun, geislun o.fl. Hreinlæti, aðbúnaður og umhverfi matvælaframleiðslu. Samfélagsheilsufræði. Atvinnusjúkdómar, vinnuvernd. Algengustu sjúkdómar í nútímasamfélagi - þekktar forvarnir. Heilbrigðis- og tryggingalöggjöf.
HBF103
Undanfari: Enginn

Í áfanganum er lagður grunnur að þekkingu á viðfangsefnum og rannsóknaraðferðum heilbrigðisfræðinnar. Fjallað er um hugtök eins og heilbrigði og  sjúkdóma, áhrifaþætti heilbrigðis, innra og ytra umhverfi, forvarnir og heilsueflingu. Lögð er áhersla á að nemendur meti eigin heilsu og þekki hvaða leiðir hægt er að fara til þess að efla heilbrigði bæði með tilliti til einstaklinga og samfélagsins alls. Saga heilbrigðisfræðinnar rakin í stórum dráttum  

LÍB101
Undanfari: Enginn
Líkamsbeiting, bóklegt og verklegt nám. Vinnustellingar, lyftitækni. Mikilvægi réttrar líkamsstöðu.
 
LOL103
Æskilegur undanfari: Nát 103
Farið er yfir helstu hugtök líffærafræðinnar og kynningu á líffærakerfum líkamans. Frumulífeðlisfræði, vefjafræði, bygging og starfsemi þekjukerfis, taugakerfis, innkirtlakerfis, beinakerfis og vöðvakerfis.
 
LOL 203
Undanfari: LOL 103
Farið er í hjarta- og blóðrásarkerfi, öndunarkerfi, meltingarkerfi, þvagkerfi, vökva- og saltvægi, kynkerfi, æxlun og fósturþroska.
 
NÆR103
Undanfari: enginn
Manneldismarkmið Íslendinga verða kynnt. Farið verður í næringarefnin, hlutverk þeirra og eiginleika og í hvaða fæðutegundum þau finnast. Kennt verður að nota næringarefnatöflur við útreikninga á orku og næringargildi fæðutegunda. Næringarþarfir mismunandi hópa verða skoðaðar og farið í vörumerkingar matvæla.
 
REF101
Undanfari: Bók 103
 
SÁL123
Undanfari: enginn
Þessi áfangi er sérhannaður fyrir starfsnám heilbrigðisskólans. Fjallað er um helstu streituvalda í nútímaþjóðfélagi og leiðir til að draga úr streitu. Í öðru lagi um eðli samskipta og leiðir til að bæta samskipti. Í þriðja lagi er fjallað um þroskaskeið mannsins einkum barnsaldurinn og elliárin. Í fjórða lagi afla nemendur sér upplýsinga í hópvinnu, um ýmis geðræn og sálræn vandamál og kynna þau fyrir öðrum í nemendahópnum.
 
SIÐ 102
Undanfari: enginn
Í fyrsta lagi fá nemendur innsýn í helstu hugtök, markmið og aðferð siðfræðinnar, þannig að þeir geri sér grein fyrir tilgangi siðferðilegrar umræðu. Nemendur fá þjálfun í því að greina og komast að niðurstöðu í siðferðilegum vandamálum/álitamálum bæði í hópumræðum og í einstaklingsritgerðum. Einkum er fjallað um vandamál sem tengjast heilbrigðisþjónustu t.d. togstreituna sem getur komið upp á milli þess að virða sjálfræði skjólstæðinga og hins vegar þess að bera umhyggju fyrir velferð þeirra út frá faglegu sjónarhorni. Í öðru lagi fá nemendur innsýn í siðareglur starfsstétta, einkum þeirra sem þeir eru að mennta sig til, m.a. með því að greina þær og gagnrýna. Í þriðja lagi öðlast nemendur þekkingu á helstu siðfræðikenningunum, kynnast rökstuðningi með þeim og gagnrýni sem þær verða fyrir.
 
SJÚ 103
Æskilegur undanfari LOL 103
Grundvöllur nútíma sjúkdómafræði. Líkami, samvægi. Frumulöskun, frumuviðbrögð. Umhverfissjúkdómar. Erfðasjúkdómar, æxlisvöxtur. Sjúkdómar í þekjukerfi, hreyfi- og stoðkerfi og taugakerfi.
 
SJÚ 203
Undanfari: SJÚ103, æskilegur undanfari LOL103
Innkirtlar og innkirtlasjúkdómar. Hjarta- og æðasjúkdómar. Sjúkdómar í öndunarkerfi. Meltingarkerfissjúkdómar. Sjúkdómar í þvagkerfi. Sjúkdómar í kynfærum.
 
SKY 101
Undanfari: Enginn
Bókleg kennsla - verklegar æfingar í almennri skyndihjálp við slasaða og sjúka.
 
VFF102
Undanfari: LOL103
Uppbygging vöðvafrumu. Orkubúskapur í vöðvum. Nafnakerfi vöðvafræðinnar. Upptök og festur vöðva. Beinabygging. Liðamót. Liðbönd. Ítarleg umfjöllun um helstu vöðvahópa líkamans með þarfir nuddbrautar í huga.