Velkomin á heimasíðu Sjúkraliðabrautar
Markmið
náms á sjúkraliðabraut Fjölbrautaskólans við Ármúla er:
Að búa
nemendur undir hjúkrunar- og umönnunarstörf
innan og utan heilbrigðisstofnana.
Að efla
skilning og innsæi nemenda á þörfum fólks, sem tekst á við margvíslegan
heilsubrest.
Að efla
skilning nemenda á gildi heilbrigðs lífs í forvörnum.
Til þess að hefja nám á sjúkraliðabraut er krafist grunnskólaprófs
með viðunandi árangri.
Nemendur með meira undirbúningsnám geta fengið það metið til styttingar á náminu.
Meðalnámstími á sjúkraliðabraut eru 3 ár í skóla (6 annir ) auk
16 vikna launaðrar starfsþjálfunar. Námið er alls 120 einingar og
skiptist í almennar bóklegar greinar, sérgreinar, verknám á
stofnunum og starfsþjálfun. Nám á sjúkraliðabraut er
lánshæft að hluta til hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Lán miðast við
fimm annir og 96 einingar. Til þess að fá fullt lán þarf nemandi að skila
19 einingum á önn en 14 einingar nægja til þess að fá 75% lán.
Sjúkraliðanám
er viðurkennd starfsmenntun og hljóta nemendur löggildingu að henni
lokinni skv. reglugerð
Heilbrigðis-og tryggingaráðuneytisins.
Sjúkraliðar vinna mjög víða innan heilbrigðiskerfisins, svo sem á
sjúkrahúsum, öldrunarheimilum, heilsugæslustöðum og sambýlum
fyrir fatlaða.
Atvinnumöguleikar eru mjög góðir
og þörf fyrir sjúkraliða
eykst stöðugt með hækkandi lífaldri fólks.
Efst
á síðu
|
Fréttir
Allir nemendur sem hófu nám á brautinni haustið 2003 eða síðar eru í
námi skv. nýrri námskrá, sjá brautarlýsingu vinstra megin á þessari síðu.
Nemendur vinsamlegast kynnið ykkur niðurröðun áfanga á annir,
sjá námsskipan á vinstra megin á þessari síðu
Nemendur athugið að hjúkrunaráfangar eru aðeins kenndir aðra hverja
önn.
Nemendur vakin er athygli á því að 3 vikna verknám fer fram í maí lok
4. annar og í byrjun 6. annar er 6 vikna verknám.
|