Velkomin á heimasíðu Tanntæknibrautar
Námsbraut aðstoðarfólks tannlækna tók til starfa á haustdögum árið
1991.
Kennsla við námsbrautina
hófst á vorönn 1992. Fyrstu
nemendurnir voru útskrifaði á haustönn 1992.
Aðstoðarfólk
tannlækna fékk starfsheiti sínu breytt í Tanntæknar á tuttugasta
afmælisári félags aðstoðarfólks
tannlækna sem var 1998.
Markmið
náms á tanntæknabraut er að þjálfa nemendur í að vinna ýmis aðstoðarstörf
tannlæknaþjónustu, að efla yfirsýn nemenda og auka samskiptahæfileika
þeirra, einnig að efla færni nemenda í höndum.
Inntökuskilyrði.
Til að komast að í tanntæknanám þarf grunnskólapróf.
Þeir nemendur sem lokið hafa meira námi en grunnskólaprófi
eru sérstaklega metnir inn. Fjöldi
nemenda í verklegum hluta námsins hverju sinni er 12 einstaklingar.
Í verklega námið eru nemendur aðeins teknir inn einu sinni á
ári. Til þess að hefja
verklegan hluta námsins þarf nemandi að hafa lokið öllum bóklegum
greinum sem krafist er og að hafa auk þess náð 18 ára aldri.
Tanntæknanám
er viðurkennd starfsmenntun og hljóta nemendur löggildingu að henni
lokinni skv. Reglugerð Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
|