Description: Description: Description: Description: Description: Description: Description: Description: Description: Description: Description: FA

Íslenska 873

 

Kennari: Eiríkur Páll Eiríksson

 

Lestur skemmtilegra bóka

 

Vorönn 2013

 

Áfanginn er ætlaður þeim nemendum sem vilja lesa sér til ánægju og þroska. Tilgangurinn er að kynnast fjölbreyttu úrvali þekktra bóka.

Kennslustundir eru ekki í stundatöflu. Námið fer fram í einkaviðtölum og þurfa nemendur að mæla sér mót við kennara hverju sinni með hæfilegum fyrirvara, að lágmarki eins dags. Hver nemandi velur sex verk af meðfylgjandi bókalista í samráði við kennara. Ein skáldsaga má vera þýdd. Heildarblaðsíðufjöldi bókanna 6 má ekki vera undir 1200 blaðsíðum. Nemendur eiga að lesa jafnt og þétt alla önnina og einungis má gera grein fyrir einni bók í einu. Bannað er að gera grein fyrir bókum sem nemandi hefur lesið sem kjörbók í öðrum áfanga.

Þegar lestri hverrar bókar er lokið sendir  nemandi kennara tölvupóst og pantar tíma og gerir síðan grein fyrir því sem hann hefur lesið og gefur um leið upp nafn næstu sögu og pantar nýjan tíma. Nemendur mega að taka með sér punkta um efni bókar og eiga þeir að vera í samræmi við verkefnablað sem er að finna hér á síðunni.

Nemendur ættu að vera að gera grein fyrir fyrstu bók kringum 15. janúar en fyrir miðja önn -15. mars - eiga nemendur að hafa lesið og gert grein fyrir 3 - 4 bókum. Áfanganum lýkur síðasta kennsludag annar 30. apríl.

Einkunnir í áfanganum eru á skalanum 1 -10. Námsmat byggir á framsögn, skipulagi og leikni við að segja frá efni bókanna og einnig á því hvort framvinda lestrarins er í samræmi við reglur áfangans um skil.

Nemendur eiga að gera grein fyrir bók á hálfsmánaðar fresti.

 Einungis er hægt að gera grein fyrir einni bók í einu.

Nemendur geta mælt sér mót við kennara og skráð sig með tölvupósti í fyrsta viðtal. Netfangið er eirikp@fa.is

Tímar til að segja frá bók eru í stofum :

Miðvikudagur klukkan 9:05 stofa A 205 og 10:15 stofa S 204

Föstudagur klukkan 8:10 stofa S 202 og 11:10 stofa S 202

 

Bókalisti

 

Andri Snær Magnason: LoveStar

Arnaldur Indriðason: Konungsbók, Furðustrandir

Auður Jónsdóttir: Annað líf, Fólkið í kjallaranum, Vetrarsól, Ósjálfrátt

Auður Ava Ólafsdóttir: Rigning í nóvember, Afleggjarinn, Undantekningin

Ásta Sigurðardóttir: Sögur

Álfrún Gunnlaugsdóttir: Yfir Ebrófljótið, Rán, Siglingin um síkin

Benedikt Gröndal: Heljarslóðarorusta, Dægradvöl

Bjarni Bjarnason: Endurkoma Maríu, Mannorð

Björn Th. Björnsson: Hraunfólkið

Bragi Ólafsson: Hvíldardagar, Gæludýrin, Samkvæmisleikir, Sendiherrann

Böðvar Guðmundsson: Híbýli vindanna, Lífsins tré, Sögur úr síðunni, Bændabýti

Einar Kárason: Heimskra manna ráð, Kvikasilfur, Norðurljós, Stormur Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld

Einar Már Guðmundsson: Fótspor á himni, Draumar á jörðu, Nafnlausir vegir, Bítlaávarpið, Hvíta bókin, Íslenskir kóngar

Eiríkur Norðdahl: Illska

Elías Mar: Vögguvísa, Sóleyjarsaga

Fríða Á. Sigurðardóttir: Meðan nóttin líður, Maríuglugginn

Gerður Kristný: Bátur með segli og allt

Gestur Pálsson: Sögur

Guðbergur Bergsson: Svanurinn, Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar, Lömuðu kennslukonurnar, Missir

Guðmundur G. Hagalín: Kristrún í Hamravík, Sturla í Vogum

Guðmundur Andri Thorsson: Íslenski draumurinn, Íslandsförin, Segðu mömmu að mér líði vel.

Guðrún Eva Mínervudóttir: Fyrirlestur um hamingjuna, Sagan af sjóreknu píanóunum, Yosoy, Skaparinn, Allt með kossi vekur.

Gunnar Gunnarsson: Svartfugl, Fjallkirkjan I, Sælir eru einfaldir, Heiðaharmur

Gyrðir Elíasson: Gangandi íkorni+Næturluktin<bækurnar á að lesa saman Svefnhjólið+ Bréfbátarigningin<bækurnar á að lesa saman

Halldór Laxness: Heimsljós, Gerpla, Kristnihald undir jökli, Guðsgjafaþula, Salka Valka, Atómstöðin, Brekkukotsannáll

Hallgrímur Helgason: Rokland, Þetta er allt að koma, Höfundur Íslands, Konan við 1000°: Herbjörg María Björnsson segir frá

Hannes Sigfússon: Strandið

Helgi Ingólfsson: Þegar kóngur kom

Helgi Rúnar Vignisson: Nautnastuldur

Hermann Stefánsson: Algleymi

Indriði G. Þorsteinsson: Land og synir, 79 af stöðinni

Jakobína Sigurðardóttir: Lifandi vatnið + Í sama klefa, Dægurvísa, , Í barndómi

Jóhann Sigurjónsson: Fjalla-Eyvindur + Galdra-Loftur (leikrit)<lesa saman bæði leikritin

Jón Gnarr: Indjáninn, Sjóræninginn

Jón Hallur Stefánsson: Krosstré

Jón Kalmann Stefánsson:  Ýmislegt um risafurur og tímann, Snarkið í stjörnunum, Sumarljós og svo kemur nótttin, Sumarið bak við brekkuna, Skurðir í rigningu, Himnaríki og helvíti, Harmur englanna, Hjarta mannsins

Jón Thoroddsen: Piltur og Stúlka, Maður og kona

Jón Trausti: Halla – Heiðarbýlissögurnar

Kristín María Baldursdóttir: Hús úr húsi, Karítas án titils, Óreiða á striga, Kantata

Kristín Eiríksdóttir: Hvítfeld - fjölskyldusaga

Kristín Ómarsdóttir: Elskan mín ég dey, Hér

Kristín Steinsdóttir: Ljósa,

Matthías Jochumsson: Skugga-Sveinn (leikrit)

Ófeigur Sigurðsson: Jón & hans rituðu bréf til barnhafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar & nýrra tíma, Landvættir

Ólafur Gunnarsson: Blóðakur, Vetrarferðin, Tröllakirkja, Höfuðlausn, Öxin og jörðin, Dimmar rósir, Málarinn

Ólafur Jóhann Ólafsson: Markaðstorg guðanna, Fyrirgefning syndanna,Slóð fiðrildanna, Höll minninganna, Sakleysingjarnir, Sniglaveislan + Bréf séra Böðvars e. Ólaf Jóhann Sigurðsson< lesa á saman bæði verkin

Ólafur Jóhann Sigurðsson: Gangvirkið, Bréf séra Böðvars + Sniglaveislan e. Ólaf Jóh. Ólafsson< lesa á saman bæði verkin

Oddný Eir Ævarsdóttir: Heim til míns hjarta, Jarðnæði

Pétur Gunnarsson: Myndin af heiminum, Ferðin til Rómar, Vélar tímans, Hverdagshöllin, Heimkoman, Íslandsblokk

Ragnar Jónasson: Snjóblinda

Ragnheiður Jónsdóttir: Þóra frá Hvammi I – II og III – IV

Sigurjón Pálsson: Klækir

Sigurður A. Magnússon: Undir kalstjörnu, Möskvar morgundagsins, Jakobsglíman

Sjón: Skugga-Baldur, Rökkurbýsnir

Sólveig Jónsdóttir: Korter

Stefán Jónsson: Að breyta fjalli

Stefán Máni: Húsið

Steinar Bragi: Áhyggjudúkkur, Konur

Steinunn Sigurðardóttir: Ástin fiskanna+Hundrað dyr í golunni, < lesa á saman bæði verkin Jöklaleikhúsið, Sólskinshestur

Svava Jakobsdóttir: Leigjandinn, Gunnlaðarsaga,

Thor Vilhjálmsson: Folda, Grámosinn glóir, Morgunþula í stráum, Raddir í garðinum

Tryggvi Emilsson: Fátækt fólk

Úlfar Þormóðsson: Farandskuggar, Boxarinn

Vigdís Grímsdóttir: Kaldaljós, Frá ljósi til ljóss, Grandavegur 7, Þögnin, Ég heiti Ísbjörg- ég er ljón, Z ástarsaga

Viktor Arnar Ingólfsson: Afturelding, Flateyjargáta

Vilborg Davíðsdóttir: Hrafninn, Auður, Vígroði

Yrsa Sigurðardóttir: Ég man þig

Þórarinn Eldjárn: Kyrr kjör, Brotahöfuð, Baróninn, Hér liggur skáld

Þórarinn Leifsson : Götumálarinn

Þórbergur Þórðarson: Ofvitinn, Íslenskur aðall, Sálmurinn um blómið

Þórunn Valdimarsdóttir: Stúlka með fingur, Alveg nóg

Þráinn Bertelsson: Einhvers konar ég, Ég, ef mig skyldi kalla, Valkyrjurnar, Dauðans óvissi tími

Ævar Örn Jósepsson:  Land tækifæranna

Fornar sögur

Fóstrbræðrasaga

Hrafns saga Sveinbjarnarsonar

Grettis saga

Laxdæla

Eiríks saga rauða + Færeyinga saga< lesa á saman bæði verkin

Þýðingar

Ami Tan: Kona eldhúsguðsins

Bernhard Schlink: Lesarinn

Ernest Hemingway: Vopnin kvödd

Friedrich Durrenmat: Grunurinn

Gabríel Carcia Marques: Undrað ára einsemd,

Gustave Flaubert: Frú Bovary

Khaled Hosseini: Flugdrekahlauparinn

Mark Haddon: Furðulegt háttarlag hunds um nótt

Isabel Allende: Hús andanna, Paula

Jaroslav Hasek: Góði dátinn Sveik

Jonas Jonasson: Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf

Jumpa Lakiri: Túlkur tregans

John Steinbeck: Ægisgata

Jung Chang: Villtir svanir

Mariane Fredriksson: Anna, Hanna og Jóhanna

Milan Kundera: Óbærilegur léttleiki tilverunnar

Mikael Niemi: Rokkað í Vittula

Philip Roth: Hin feiga skepna

William Heinesen: Glataðir snillingar

Sofi Oksanen: Hreinsun

Stefan Zweig: Veröld sem var

 

 

 

 

Um skáldsögu

 

Eftirfarandi er gott að hafa í huga þegar gera á grein fyrir skáldsögu, fyllið út og takið með þegar gerð er grein fyrir sögunni