Dagbók
í Ítalíu
21. mars Mantova
Lagt var af stað kl: 8:00 frá Viadana. Tekin var
rútu/strætó til Mantova. Annar ítalski kennarinn kom með okkur og átti að vera
búið að redda leiðsögumanni til þess að sýna okkur kastala þarna í bænum. Það
var nú samt eitthvert vesen því enginn vissi að við værum að koma svo það
endaði með því að við þurftum að borga inn í kastalann. Það var nú samt allt í
lagi, við fengum mjög góða leiðsögukonu og hún sagði okkur allt um kastalann og hvað myndirnar á veggjunum og
loftinu táknuðu, hvaða sögu þær sögðu.
Því
næst var haldið á fund bæjarstjórans í Mantova, hann bauð okkur velkomin og
spurði okkur hvernig okkur líkaði á Ítalíu o.s.frv. náttúrulega bara á ítölsku.
:) Eftir bæjarstjórafundinn röltum við niður að kirkjunni sem við áttum að
hittast hjá aftur kl: 15:00. Þar tvístraðist hópurinn, við stelpurnar fórum á
pizzastað sem var reyndar ekkert spes, en eftir að við vorum búnar að fylla
magana ákváðum við að leggjast bara í sólbað á kirkjutröppunum. Strákarnir
ákváðu að gera það sama. Og fengum við okkur öll einn öllara og höfðum það
gott. Ekki voru allir jafn ánægðir og við með
sólbaðið, það labbaði upp að
okkur einhver maður og var alveg
brjálaður, okkur skildist það vera út af því hversu léttklædd við vorum þarna
fyrir framan kirkjuna. En kirkjan er mjög heilög á Ítalíu.
Klukkan
þrjú kom leiðsögukonan aftur og þeir sem voru sómasamlega klæddir kíktu inn í
kirkjuna en hinir hinkruðu fyrir utan. Leiðsögukonan sýndi okkur helstu staðina
í Mantova, meðal annars stað þar sem menn voru pyntaðir í gamla daga og búr
uppi á háum turni þar sem menn voru látnir dúsa fyrir þjófnað eða annað slíkt.
Eftir
kynninguna ákváðum við stelpurnar að halda bara áfram að vera í sólbaði og
fundum okkur góðan stað við eitthvert vatn, og lágum við þar í grasinu í góðum
fíling, fengum nóg af áhorfendum :). Það voru einhverjir litlir strákar sem
voru alveg agalega hrifnir af þessum
sætu stelpum og tóku nokkrar myndir og svona. Okkur fannst þetta nú bara fyndið.
Þá
var haldið heim á leið um kl: 18, þegar heim var komið var drifið sig í sturtu og snurfusað sig og haldið í partý
hjá Giorgo. Það var voða stuð, æðislegt hús sem fjölskyldan hans býr í,
sundlaug í garðinum og við sátum bara úti og höfðum það gott. Svo skáluðu
allir, bæði íslensku krakkarnir og þeir ítölsku. Og það var dansað og hlegið
til klukkan eitt, en þá þurftu allir að halda heim á leið af því allir þurftu
að fara í skólann daginn eftir.
Vaknað var kl: 09:00 og voru allir frekar þreyttir eftir gærkvöldið, farið var í morgunmat á hótelinu. Síðan var haldið af stað inn í Mílanó, labbað var í sirka hálftíma til þess að komast að aðaltorginu og kirkjunni. Á leiðinni að torginu kíktum við í nokkrar búðir og sáum fljótt að það var allt mjög dýrt í Mílanó, svo ekkert var keypt þar að ráði.
Þegar við komum að kirkjunni var ákveðið að fá sér að borða áður en við fórum að skoða kirkjuna. Þannig haldið var af stað að leita að Mc, þurftum við nú ekki að labba lengi til þess að finna einn svoleiðis, því Mc er nánast á hverjum götuhorni.
Þegar var búið að kýla út vömbina, var haldið af stað til þess að kíkja á á kirkjuna og torgið fyrir framan hana. Það voru akkúrat í gangi einhverjir tónleikar, reyndar var þetta frekar léleg hljómsveit en samt mikið líf á torginu og það var gaman að sjá það.
Kirkjan var æðislega flott, eftir kirkjuna var labbað áleiðs að kastala þarna rétt hjá, en við stoppuðum á einum stað til þess bara að slaka aðeins á og hafa það gott, njóta þess að vera í Mílanó. Þaðan fórum við að skoða kastalann sem var mjög flottur, stór hallargarður, og eitthvert safn inni í kastalanum.
Eftir að búið var að skoða kastalann, var ákveðið að fara og labba til baka og skoða sig meira um. Síðan tókum við leigubíl heim um kl:17:00, þá voru allir orðnir mjög þreyttir og flestir ákváðu að leggja sig áður en við færum að borða.
Um kvöldið fórum við öll saman út að borða, á mjög fínan veitingastað, þar sem allir fengu sér eitthvað gott í gogginn. Eftir það var rölt upp á hótelherbergi og ætluðum við að fara á diskótek en því miður var búið að færa diskótekið sem við ætluðum á þannig við enduðum bara á sama barnum og við fórum á kvöldinu áður. Það var mjög mikið stuð þar, fórum í karoke, voru margir með góða takta þá aðalega Inga og Vignir :). Sem sagt mjög mikið fjör. Um kl: 3 var haldið upp á hótel til þess að leggja sig eftir mjög skemmtilegt kvöld. :)
Fjölskyldan sem ég var hjá á ítalíu var mjög fín, þau voru fjögur Elisabetta, bróðir hennar, mamman og pabbinn.
Mamman er kennari í barnaskóla, kennir 11 ára
börnum, einnig er hún að syngja með kirkjukór. Pabbinn vinnur í einhverskonar
verksmiðju, sem Betta gat ekki útskýrt nógu vel fyrir mér. Bróðirinn er í skóla
í Parma.
Þessi
fjölskylda er ofsalega trúuð, þau býðja bæn fyrir máltíðir og signa sig. Allt inn
á heimilinu gefur líka stert til kynna hversu trúuð þau eru. Allar myndir á
veggjunum voru af jésú eða maríu mey, einhverjum trúar myndum. Í stofunu hjá
þeim var stórt púlt með risa stórri biblíu á sem var alltaf opin. Á mornanna
þegar ég kom fram í morgunmat, sátu foreldrarnir alltaf í sófa inn í eldhúsi og
voru að lesa úpp úr bæna bók, einnig fóru þau stundum út á kvöldin að hitta einhverja vini til að biðja
með. Mest allt á heimilinu snérist um trúna. Pabbinn var oft eitthvað að djóka
og svona reyndar skildi ég nú ekki mikið af því að hann talaði bara ítölsku.
Mér
fannst eins og heimilisstörfunum væri skipt pínulítið á milli allra, þótt
mamman gerði nú mest á heimilinu. En ég sá pabbann allaveg einu sinni vaska
upp. :)
Það
er sem sagt bara allt gott að segja um þessa fjölskyldu, þau voru rosalega
almennileg við mig og sendu mig heim með pakka fyrir alla fjölskylduna mína.