Ítalía

 

19/3 Þriðjudagur:

Ég vaknaði klukkan 7: 30, eins og flesta morgna þarna úti, fékk mér ristað brauð með osti og skinku eins og fékk alla morgna úti hjá fjölskyldunni. Svo var rölt upp á rútustöð þar sem allir Íslendingarnir ætluðu að hittast, því í dag ætluðum við að skella okkur til Parma. Ég var mættur einn af þeim fyrstu, það er ekki skrítið því bý í 2 mín. göngufæri við rútustöðina, ólíkt öðrum því sumir búa í hálftími aksturstíma í burtu. Þetta var stutt rútuferð til Parma, tók aðeins um þrjú korter að keyra þetta.

 

Við fengum með okkur leiðsögumann í þessa ferð en það var mamma gaursins sem Gulli gisti hjá. Og fór hún með okkur í gegnum í Parma mjög vel og sýndi okkur gamla leikhúsið og nokkrar kirkjur, og talaði hún einnig mjög góða ensku. Svo í hádeginu var farið út að borða á ekta ítölskum stað. Og eftir hádegið var okkur sýnd leikhúsið í Parma sem ég mundi segja að væri flottasti staðurinn sem við fórum að skoða í ferðinni, og vorum við aðeins örfá sem fórum í leikhúsið því flestir stungu af eftir hádegismat. Svo restin af deginum höfðum við til að slappa af og í kíkja í búðir, og það var einmitt það sem við gerðum. Svo um kvöldið var kíkt á krá og nokkrum svellköldum stútað og svo var farið snemma í háttinn.

 

16/3 Laugardagur:

Ég var vakinn klukkan 8:30 og þá var rölt niður að morgunverðaborðinu sem mér persónulega fannst ekki gott, enda hafði maður litla list eftir að hafa verið að djamma til fjögur nóttina áður. Við lögðum af stað um tíuleytið, því í átti að vera skoðunarferð um Milano. Við löppuðum í næstum klukkutíma þangað við sáum í fjarska dómkirkjuna í Milano, þá settum við niður á ítölskum pitsastað sem var alveg ágætur, ekki gat maður borðað mikið og kenni einnig gærkvöldinu um það. Svo löppuðum við inn í kirkjuna sem var alveg stórkostleg og þar næst settumst við á kaffihús beint fyrir utan kirkjuna og keyptum ein litin bjór á aðeins 750 kr íslenskar. Og svo fórum við að kastalinum sem er risabygging og við skoðuðum allt inni í honum, og fór ég svo upp á hótelið til að leggja mig. Vaknið fyrir kvöldmatinn en það var farið út að borða á fínan stað og skellti ég mér á nautasteikina. Svo seinna um kvöldið fóru allir á djammið, en við enduðum á sama stað og síðasta kvöldið það var ekki jafn mikið rugl á liðinu en hinsvegar fannst mér mun skemmtilegra.

 

Fjölskyldan:

Jacopo heitir strákurinn sem ég var hjá og bjó hann hjá foreldrum sínum, mamma hans var húsmóður og vann stundum í hlutastarfi sem kokkur, hún var mjög fjörug en talaði litla ensku. Pabbinn var bankastarfsmaður og vann hann alla virka daga frá 7-7, hann var ætíð mjög alvarlegur og talaði lítið enda kunni hann litla ensku. Átti Jacopo eina systur sem var gift og flutt að heiman, ég hitti hana aldrei.

 

 

Hörður Sturluson