16. mars Milano
Í dag var komið að því að
skoða Milano. Gönguferðin niður í miðbæ frá hótelinu tók um hálftíma og urmull
af fallegum gömlum húsum að sjá á leiðinni. Þegar í miðbæinn var ekkert minna
af fallegum húsum en toppurinn var að sjá dómkirkjuna Duomo sem var byggð á 500
árum. Verðir voru fyrir utan að passa ad allir sem færu inn væru huldir frá
hálsi og niður. Þegar inn var komið var að sjá þrjár kapellur. Duomo er
stórkostleg að utan og innan og ótrúlegt er að sjá hvernig hún heppnaðist eftir
að vinnslan á henni gekk frá listamanni til listamanns í nokkrar aldir. Því
næst var farið að skoða Castello og var hann þræddur að utan og innan. Leið tók
á kvöld og var snætt á veitingastað rétt hjá hótelinu. Seinni part kvöldsins
var svo eytt á karoke bar þar sem nokkrir nemendur tóku lagið og fóru
algjörlega á kostum.
20. mars Feneyjar
Í dag er komið að því að
skoða borg bátanna. Ferðin byrjaði á þriggja tíma rútuferð sem endaði á
bátahöfn.Við fórum með “strætó” bátnum og sigldi hann með okkur að
Markúsartorginu. Farið var beint og skoðað höllina sem var þar á torginu. Þetta
var gríðarlega stór höll og náðum við ekki að klára að skoða hana alla. Inni
var hægt að sjá fullt af risa stórum sölum og voru loftin flest úr gulli sem
var mótað í myndaramma. Við sáum sýningarsali með vopnum og herklæðum en sem
vakti mesta athygli var skírlífsbeltið sem var hlegið mikið að. Á
Markúsartorginu gáfu nokkrir af krökkunum dúfunum að borða. Við stelpurnar skelltum okkur á Gondola og
sáum þar á meðal húsið hans Marco Polos
og Mozarts.
Markúsarkirkjan var næst á
dagskrá og var hún ríkuleg að sjá, flest allt úr gulli og öðrum gersemum sem
var safnað eða tekið sem toll við byggingu hennar. Kveldinu var síðan eitt
heima hjá fjölskyldunni.
Fjölskyldan sem ég var hjá
var hið yndislegasta fólk. Ég bjó í blokk og í íbúðinni bjó Gaia og móðir
hennar. Flestir af meðlimum fjölskyldunnar búa í blokkinni líka. Móðir hennar
starfar með fötluðum. Þau voru mjög gestrisin og þrifin (mamman alltaf með
ryksuguna kl:8:00). Það var mjög gaman að snæða með þeim í hádeginu og á
kvöldin þegar allir voru saman. Smá samskipta örðuleikar þar sem Gaia var eina
sem skildi og talaði ensku en eftir
stuttan tíma var maður byrjaður að skilja aðeins hvað þau væru að segja.
En í stuttu máli er þetta hlýtt og gott fólk og allir nágrannar í kring, allir
voðalega rólegir og áhyggju lausir. Í ókominni framtíð á ég bókað eftir að
heimsækja þau aftur og vonandi fæ ég þau í heimsókn fljótlega.