Fyrsti dagurinn í Viadana:

 

18. mars 2002. Við fórum ásamt nokkrum Ítölum að labba um Viadana, þetta er fallegur bær og við búum flest í mjög glæsilegum húsum. Það var rosalega gott veður og við löbbuðum að ánni Po sem liggur rétt hjá Viadana og er þetta stærsta áin á Ítalíu. Eftir að hafa labbað mikið og séð margt fóru allir heim til fjölskyldna sinna og borðuðu rosalega mikinn hádegismat sem er um kl. 13:30, það er stærsta máltíðin yfir daginn, og er hún margréttuð. Síðan fórum við í verslunarmiðstöðina í Viadana og sumir keyptu sér föt og annað. Um kvöldið var svo “Welcome Partie” í skólanum. Þá komu foreldrarnir með fullt af mat og Ítalir og Íslendingar skemmtu sér vel og borðuðu mikið. Eftir matinn fóru svo nokkrir í fótbolta í íþróttasalnum, en síðan var farið heim.

 

Feneyjar:

 

20. mars 2002. Við Íslendingarnir fórum til Feneyja með rútu, og það tók 3 klst. Feneyjar eru glæsileg borg. Við sigldum fyrst á Markúsartorg og skoðuðum höllina Palazze Ducale. Úti á torginu voru mjög margar dúfur og ef maður rétti út hendurnar með korni í þá komu fullt af dúfum og settust á mann. Síðan löbbuðum við um borgina og nokkrir fóru og leigðu Gondóla og fengu siglingu í litlu síkjunum milli húsanna, það var frábært og skemmtilegt. Það er rosalega furðulegt að hafa bara báta í staðinn fyrir bíla, og síki í staðinn fyrir götur. Seinna um daginn hittust allir aftur og við skoðuðum Markúsarkirkjuna, hún er stórglæsileg, það er mjög hátt til lofts og fullt af flottum skrautmunum. Síðan fórum við heim eftir langan og skemmtilegan dag.

 

Fjölskyldan mín:

Fjölskyldan sem ég bjó hjá var mjög yndæl. Það voru bara mamman, pabbinn, Carlotta (stelpan) og bróðir hennar sem var sjaldan heima, hann var um 30 ára. Þau bjuggu í mjög stóru húsi með flottum garði. Mamman kyssti mig alltaf bless að ítölskum sið og fjölskyldan vildi allt fyrir mig gera. Það kom ein kona til þeirra sem sá um að þvo þvottinn, svo kom önnur sem sá um að þrífa húsið og svo kom maður sem sá um garðinn. Þau áttu líka tvo mjög flotta bíla. Þannig að þau voru frekar rík. Það var æðislegt að búa hjá þeim.