|
Ísl 503 |
|
|||||||
Mál og málnotkunMarkmið þessa hluta námsins er að vekja með nemendum umræðu um íslenskt mál og málstefnu. Lesið hugleiðingar um mál og málstefnu, vinnið verkefnin sem þar eru. Farið síðan yfir í næsta lið. Hugleiðingar um mál og málstefnu Verkefni um íslenskt mál Markmið verkefnisins er að kynnast starfi Íslenskrar málstöðvar. Smelltu á krækjuna hér fyrir ofan og svaraðu eftirfarandi spurningum. Sendu kennara í tölvupósti. 1. Smelltu á Orðanefndir. Margar íðorðanefndir hafa verið skipaðar á liðnum árum og flestar þeirra starfa af krafti. Nefndu dæmi um þrjár nefndir og gerðu grein fyrir hver starfandi nefnda er elst og hvenær hún var stofnuð? 2. Allmörg íðorðasöfn hafa orðið til á liðnum áratugum.. Skoðaðu þau og segðu frá þeim sem þú telur að gætu komið þér að gagni í framtíðinni. Rökstyddu val þitt. 3. Vefsetning íslenskra hugtakasafna er liður í tungutækniverkefni ríkisstjórnarinnar. Skoðaðu Hugtakasafn Þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins. Hverjir gætu nýtt sér það? 4.Skoðaðu landaheiti og höfuðstaðaheiti og tíndu til 3 lo. og 3 þjóðaheiti fjarlægra landa. 5. Lestu grein Ara Páls Kristinssonar um íslenska málstefnu og skrifaðu a. m.k. 10 línur um tvö aðalatriði hennar. Ítarefni
|
||||||||