|
Gönguleiðin
á Búrfell og Húsfell í Heiðmörk
Það eru sannalega mörg Búrfell á Íslandi. Laugardaginn 28. mars var farin önnur Búrfellsgangan og í þetta skipti var stefnt á Búrfell í Heiðmörk.
Fámennur hópur var samankominn í anddyri skólans á tilsettum tíma kl. 9. Fjórir kennarar og tveir nemendur. Hvar voru allir nemendurnir sem höfðu skráð sig í gönguna? Við biðum til kl. 9:10 og ákváðum svo að fara af stað á tveimur bílum. Við aðgangshliðið kom á móti okkur bíll og reyndust þar vera tveir nemendur á ferð sem bættust í hópinn. Annar bíll beið á bílastæði fyrir utan skóla með þrjá nemendur til viðbótar. Einhverjir þurftu að versla og var stoppað á bensínstöð á leiðinni. Síminn hringdi: „Hvar eruð þið? Á ekki að fara í göngutúr í dag?“ Við ákváðum að hinkra og stuttu seinna höfðu þrír meðlimir bæst í hópinn. Vorum við núna alls 14 manns, 4 kennarar og 10 nemendur.
Ekið var að Vífilsstöðum og þaðan að Hjallaenda í Heiðmörk, þar sem bílar voru skildir eftir. Greinileg gönguslóð liggur frá bílastæðinu að Gjáréttinni. Þaðan fylgdum við Búrfellsgjánni sem veitti okkur örlítið skjól fyrir hvössum og nöprum vindhviðum. Búrfellsgjáin er reyndar ekki gjá í réttri merkingu heldur hraunrás sem tæmdist í lok eldgoss í Búrfelli. Víðar finnast skútar og hellar í veggjum gjárinnar og leituðum við skjóls í nokkrum þeirra.
Í stærsta hellinum við rætur Búrfells var gerður stuttur stans og nestið dregið upp úr pokum.
Þá var komið að síðasta speli upp á Búrfell. Við fylgdum gönguslóðinni í þröngri gjánni upp að gígröndinni. Stormurinn var orðinn svo kröftugur að varla mætti telja stætt. Flestir létu hér við sitja, en nokkrir gengu alla leið upp á toppinn. Þó að Búrfell sé ekki hátt fjall er frábært útsýni yfir Reykjanesskaga og Faxaflóa.
Hér skiptist hópurinn. Níu gengu sömu leið til baka, en kennararnir fjórir ásamt Ólafi Konráð, hlaupara og göngugarpi með meiru, héldu áfram í átt að Húsfelli. Við gengum niður austurhlíðar Búrfells og fylgdum hraunjaðrinum að rótum Húsfells. Sterkur vindur og snjófjúk gerðu uppgönguna erfiða og þurfti sums staðar að skríða upp snjóbrekkuna.
Uppi á fjallshryggnum var varla stætt og ákváðum við að sleppa síðustu metrum upp á toppinn sjálfan, þar sem ekkert okkar var með tilskilið flugpróf.
Húsfell
er mun hærra fjall en Búrfell og var útsýni af fjallshryggnum því ekki síðra
en frá Búrfelli.
Frá Helgafelli gengum við í Helgadal og þvert yfir hraunið að hamraveggjum Smyrlabúðar og þaðan til baka að bílastæðinu við Hjallaenda. Heildargönguleiðin var 13,6 km og vorum við tæpar 4 klst. á leiðinni. Skemmtileg ganga í heldur erfiðu veðri. Eftir mánuð verður svo farið upp á Búrfell í Grímsnesi.
|