Leiðin að Tröllafossi 31.01.09

Höfundur: Sigmundur Grétar Hermannsson

 

Þegar ég og vinur minn Jón lögðum af stað upp í FÁ þennan morgun vissum við ekki hversu heppnir við vorum með veður. Stór hópur var kominn saman í andyri skólans og voru einstaklingarnir misvel útbúnir, Ætlunin var að ganga á Búrfell í Þingvallasveit en því þurftum við fresta vegna þess að sumir voru ekki nógu vel búnir fyrir þannig fjallgöngu. Helmut og Úlfar voru með varaáætlun sem var Tröllafoss. Við skiptum okkur í þrjá bíla og lögðum af stað í áttina að Mosfellsdal. Við vorum pínu svekktir yfir því að fara ekki á Búrfell en vorum samt sáttir með það að vera komnir á fætur og á leiðinni út úr bænum. Þegar hópurinn var kominn að Hrafnahólum klukkan 10:00 var sólin farin að rísa en það sást þó ekki í hana fyrir fjöllum. (Mynd 1.)

 

Picture 006.jpg

 

Það tók okkur um 10 mín að klæða okkur í hlífðarföt og var hópurinn því lagður af stað klukkan 10:15. Ég hef ekki gengið mikið í snjó og kom það mér á óvart hversu krefjandi var að ganga í snjó sem náði manni upp að hnjám. Þeir einstaklingar sem voru illa útbúnir fyrir ferðina fengu lánaða göngustafi frá þeim sem voru í góðum gönguskóm. Samt var mikið stuð þegar stúlkurnar flugu á hausinn í fannhvítum brekkunum.

Við gengum meðfram á sem heitir Leirvogsá og í hana fellur fossinn Tröllafoss sem við ætluðum að skoða. Við gengum í einn og hálfan klukkutíma upp á Skeggjastaðahóla þar sem við fengum okkur nesti og litum beint niður á Leirvogsá. (Mynd 2 og 3)

 

Picture 077.jpg

 

Picture 050.jpg

 

Þegar allir voru búnir að fá sér að borða var lagt af stað aftur niður af Skeggjastaðahólum og að Tröllafossi. Þar þurftum við að fara niður brekku og skildum við því bakpoka okkar eftir til þess að spara orku. Helmut fór á undan hópnum og kannaði aðstæður og gerði okkur grein fyrir því hversu langt við mættum fara upp að fossinum. (Mynd 4 og 5)

 

Picture 094.jpg

 

Picture 102.jpg

 

Þegar hópurinn var búinn að skoða fossinn lögðum við af stað og gengum í áttina að Sámsstöðum. Mitt á milli Sámsstaða og Stardals skiptist hópurinn, Úlfar, Helmut og Sigmundur snéru við til þess að ná í fararskjótana en Jón leiddi hópinn upp að Þingvallarvegi. Þangað komu svo þremenningarnir á bílum sínum og sóttu þennan fríða hóp. Við höfðum mjög gaman af þessari göngu og vorum ótrúlega ánægðir með veður. Getum ekki beðið eftir næstu ferð sem verður vonandi upp á Búrfell.