ÍÞG-182
Kennari: Sæþór Ólafsson auk leiðbeinenda.
Námsefni: Fyrirlestrar, efni á veraldarvefnum og ljósrit frá kennara.
Markmið:
- Að nemendur kynnist undirstöðuatriðum kayakíþróttarinnar.
- Kynnist tvískiptingu íþróttarinnar.
- Þekki nauðsynlegasta búnað og umgengni á honum.
- Læri hinar óskrifuðu reglur varðandi húðkeipinn (kayakinn).
- Kynnist undirstöðuatriðum í veðurfræðum.
- Að nemendur sýni fram á nauðsynlega færni í því að bjarga sér og öðrum úr sjó.
Námsmat:
- Nememdur þurfa að mæta 2x í sundlaug og einu sinni á sjó með kennara. Einnig þarf mæting nemenda í staðbundna tíma að vera yfir 80%. Nemendur eru hins vegar alltaf velkomnir að æfa sig í sundlauginni á föstudögum kl. 13:00-15:00 og sunnudögum kl. 17:00-20:00 sem búnir eru að fá leiðsögn hjá kennara.
- Verklegt í sundlaug: Nemandi þarf að standast verklegt próf sem fer fram í Laugardalslaug. Nemendur þurfa að kunna á bátinn, árina og svuntuna. Einnig þurfa nemendur að kunna að fara úr bát á hvolfi og bjarga félaga.
- Verklegt á sjó: Nemandi þarf að fara að minnsta kosti einu sinni á sjó og sýna fram á færni sína í að fara úr bát á hvolfi (wet exit) og bjarga félags sínum.
Kayakferðir:
Reykjanesferð:
Fyrirhugað er að fara í Reykjanes í Ísafjarðardjúpi í febrúar eða mars. Að öllum líkindum verður lagt af stað á föstudegi og komið í Reykjanes um kvöldið. Þar verður heit súpa á boðstólnum og uppá búið rúm. Á laugardeginum verður morgunmatur. Eftir morgunnæringuna verður margt í boði s.s. æfingar í sundlaug, æfingar á sjó, stuttar ferðir og einnig langri ferðir fyrir þá sem vilja. Í lok dags verður einhverskonar kvöldmatur. Um kvöldið verða myndsýningar og ýmislegt sniðugt á boðstólnum. Á sunnudeginum verður svipuð dagskrá í boði.
Ef ekkert verður af Reykjanesferðin vegna veðurs verður farið upp í Hvammsvík yfir helgi.
Viðeyjarferð:
Í loka annar ca. 21 maí, 28 maí eða 5 júní verður farið í næturferð frá Geldingarnesi. Lagt verður af stað síðla kvölds og róið út fyrir Þerney og land tekið í Viðey að sunnanverðu. Þar verður tjaldbúðum slegið upp og safnað í varðeld. Meðlimir í Kayakklúbb Reykjarvíkur verða með í för sem og partýtjaldið sem klúbburinn á. Um morguninn verður svo róið heim á leið.
Hvítárferð:
Í lok maí eða byrjun júní. Ætlar Kayakklúbbur Reykjarvíkur að bjóða þeim sem vilja í nýliðaferð niður Hvítá. Lagt er af stað frá Brúarhlöðum og róið niður að Drumboddsstöðum. Fín byrjendaferð!
Jónsmessuróður:
Árlega hefur verið róið frá Hvammsvík á Jónsmessunótt. Ykkur er boðið með.
Þeir sem ætla í hana verða að hafa samband við mig og skrá sig. Skráningin verður bindandi.
Fyrispurnir sendast á: saethor @fa.is |