Æfingar
"Wet Exit"
Toga í lykkjuna.
Ýta sér út úr bátnum.
Og þið eruð komin út.
Ef manni líður ekki vel á hvolfi eru góðar líkur á því að fólki muni aldrei líða vel á kayak. Því er um að gera að leika mikið í sundlauginni.
Mjaðmahnykkur
Björgun án þess að fara úr bátnum.
Eitt af því sem getur verið hvimleitt áður en fólk lærir veltuna er að þurfa í sífellu að fara úr bátnum. Synda með hann upp að bakkanum og tæma hann.
Í sumum tilfellum er hægt að komast í veg fyrir það ef fleira fólk er á staðnum með því að nota "eskimo rescue". Þessi æfing felst í því að sá sem er á hvolfi hallar sér fram. Lemur fast í botn bátsins svo fólk í kringum hann heyri. Strjúki svo botninn fram og til baka til að gefa til kynna hvar björgunaraðilinn eigi að koma. Hafið hendurnar í 20 cm. fjarlægð frá bátnum því það getur verið æði sárt að klemma hendina milli bátanna. Þegar þið finnið fyrir stefni björgunaraðilans grípið þið um það, togið ykkur upp og notið mjaðmahnykkinn.

Lág stuðningur og há stuðningur
Einnig var farið í lág stuðning "low brace" og há stuðning "high brace". Undirstaða þessra æfinga er mjaðmahnykkurinn. Einnig er mjaðmahnykkurinn ein sú mikilvægasta ef sú ekki mikilvægasta æfing ef veltan á að nást með góðu móti.
Lág stuðningur
Bakhlið árinnar snýr niður sem og úlliðir en olnbogarnir snúa upp.
Þrýsta bakhliðinni niður og eftir kemur öflugur mjðmahnykkur.
Há stuðningur
Olnbogar og úlliður snú upp. Blaðið snýr "rétt".
Manneskjan fær stuðning frá árinni. Ath. hvernig olnbogi fer ekkiI upp fyrir öxl.
Efri hluti búksins færist aftar og mjaðmahnykkurinn er framkvæmdur.
 Og þið eruð komin upp aftur.
Undirstaða þess að ná góðum tökum á há stuðningi og veltunni seinna er góður mjaðmahnykkur.
|