við Ármúla |
Stjörnufræði |
|
Kvartilaskipti tungls Kvartilaskipti tungls kallast útlitsbreytingar sem verða á tunglinu yfir einn mánuð (fjórar vikur). Hér að neðan er teikning sem sýnir kvartilaskipti tungls eins og við sjáum þau á jörðu niðri. Á öðrum stað er mynd sem sýnir það sama en með öðrum hætti. Nýtt tungl: tunglið er í sjónlínu með sólu, sést ekki eða óljóst. Vaxandi tungl: lýsandi hluti tunglsins stækkar dag frá degi. Ef hægt er að grípa inn í ljósbogann (mánasigð) með vinstri hendi fer tunglið vaxandi og er það táknað með mynd af vinstri lófa. Fullt tungl: tunglið er í gagnstöðu við sól, að er um 15 daga gamalt. Minnkandi tungl: lýsandi hluti tunglsins minnkar dag frá degi. Ef hægt er að grípa inn í ljósbogann (mánasigð) með hægri hendi fer tunglið minnkandi og er það táknað með mynd af hægri lófa.
|
|