|
Einkenni og styrkleikar Styrkleikar: Hér er upptalning á styrkleikum lesblindra en mikilvægt
er að horfa til þeirra en ekki bara það sem lesblindir nemendur eiga í
erfiðleikum með. Vert er að íhuga hvernig hægt sé að nýta styrkleikana í
námi, starfi og daglegu lífi. Vísbendingar um
dyslexíu – lesblindu: Hér eru talin upp ýmis einkenni sem
geta verið vísbendingar um lesblindu (dyslexíu).
Hægt er að nýta upptalningu sem gátlista ef grunur er um slíkt. Stærðfræðierfiðleikar dyscalculia: Hér eru talin upp ýmis einkenni
þeirra sem eiga í erfiðleikum með stærðfræði einnig eru ábendingar varðandi
kennslu þeirra. Dyspraxía – erfiðleikar
með skipulag, áttir og tímastjórnun: Hér eru talinn upp ýmis einkenni sem trufla nám og skipulag í
daglegu lífi. Nemendur með dyslexíu eiga oft í
erfiðleikum með áttun, raðvinnslu og skipulag en það þarf ekki að vera.
Einnig getur einstaklingur verið með dyspraxíu án
þess að vera með dyslexíu. Frjó hugsun og frægir lesblindir: Hér er umfjöllun um styrkleika lesblindra og frásagnir af
lesblindu fólki sem hefur náð langt og öðlast aðdáun fyrir frjóa hugsun og
hugmyndaauðgi. Slíkar frásagnir geta styrkt sjálfsmynd og trú á eigin getu en
lesblindir nemendur hafa oft ekki nægjanlegt sjálfstraust. Dyslexía sem náðargáfa: Hér er umfjöllun um hugmyndafræði Ron Davis um einkenni og styrkleika lesblindra. Hugmyndafræði
hans leggur áherslu á styrkleika í stað veikleika lesblindra. |