|
Kennslufræði og námsstíll nemandans (learning style) Hér eru ýmsar ábendingar varðandi
kennslu og nám sem koma öllum nemendum til góða ekki bara lesblindum. Námsstíll – learning style: Hér
er umfjöllun um námsstíla (learning style). Einnig er hægt að láta nemendur taka „próf“ á
netinu á íslensku til að kanna námsstíl viðkomandi og skoða ábendingar um
árangursríkar aðferðir í samræmi við námstíl. http://vark-learn.com/Icelandic síðan þarf að
velja questionnaire þá kemur upp spurningalisti á
íslensku. Þegar honum hefur verið svarað er ýtt á OK og þá koma niðurstöður
og hægt er að skoða þær stoðsíður sem eiga við námstíl viðkomandi. Námsstíll – Dunn og Dunn: Hér er mjög vel unnin íslensk
vefsíða um námsstílslíkan Dunn og Dunn sem þrír
kennarar unnu í framhaldsdeild KHÍ 2006. Slóðin á hana er http://starfsfolk.khi.is/ingvar/namsstilar_dunn/
Snælandsskóli hefur einnig gert fallegt veggspjald í A3 stærð með
námsstílslíkani Dunn og Dunn
á íslensku.
Hljóðrænir
nemendur: Hér eru
ábendingar um aðferðir, sem skila árangri fyrir nemendur, sem læra best með
að hlusta og ræða um námsefnið. Sjónrænir
nemendur:
Hér eru ábendingar um aðferðir, sem skila árangri fyrir nemendur sem
læra best ef námsefni er í sjónrænu formi. Námstíll (learning style) og stærðfræði: Umfjöllun er ætlað að auka meðvitund um að
nemendur í stærðfræði hafa ólíka námsstíla þ.e. velja mismunandi leiðir til
að vinna með upplýsingar. Einnig eru tillögur um hvernig hægt er að gera
öllum hugrænum námsstílum jafn hátt
undir höfði í kennslustofu. Kynna nýtt tungumál: Hér eru ýmsar ábendingar sem hægt er að hafa til
hliðsjónar þegar verið að kenna lesblindum nemendum erlend tungumál. Erlend
tungumál: Vandamál
lesblindra við tungumálanám og hugmyndir að úrræðum. Hér er hagnýt
yfirlitstafla yfir undirliggjandi þætti dyslexíu
sem hafa áhrif á málanám og hugmyndir að úrræðum. Raungreinar
og dyslexía: Í
umfjöllun er reynt að draga fram á hvaða hátt nám í líffræði og skyldum
greinum eins og lífeðlisfræði og sjúkdómafræði er lesblindum nemendum erfitt.
Einnig eru ábendingar um hvernig hægt er að auðvelda nemendum að öðlast
þekkingu og hæfni á sviði líffræði, lífeðlisfræði og skyldra faggreina. Raddir
nemenda:
Hér eru ábendingar til kennara frá nemendum í stuðningsáfanga
fyrir lesblinda nemendur. Til
kennara yngri barna: Hér eru dæmi um nokkur
ráð sem virka frá kennurum til kennara. |