|
|
Þýs 103 |
Þýs 303 |
Þýs 503 |
|
|
|
|
|
|
|
Þýs 203 |
Þýs 403 |
Þýs 603 |
|
|
MÁLABRAUT |
|
|
Þýska sem þriðja mál |
5 skylduáfangar (103,203,303,403,503) |
samtals 15 einingar |
|
|
|
|
|
Þýska sem fjórða mál |
3 skylduáfangar (103,203,303) |
samtals 9 einingar |
Í skólanámskránni segir um áfangana:
Þýs 103 Framburður og orðaforði
Áfangalýsing:
Í upphafi verða kynnt nokkur meginatriði
um þýskumælandi lönd (svo sem lega, stærð og
íbúafjöldi), helstu samskipti milli þeirra og Íslands
(t.d. verslun, ferðamennska og framhaldsnám) og skyldleiki íslensku og þýsku. Síðan
er unnið með einfalda texta
sem tengjast
reynsluheimi nemendanna. Lögð er megináhersla
á þjálfun framburðar, uppbyggingu og notkun
orðaforða um nánasta umhverfi, munnlega og skriflega tjáningu,
hlustun og grunnatriði málfræðinnar sem nauðsynleg eru til að
mynda einfaldar aðalsetningar og spurningar.
Þýs
203 Orðaforði og málfræði
Undanfari: Þýs 103
Áfangalýsing:
Orðaforði og málfræðiatriði sem komið hafa
fram í undanfaranum
eru rifjuð upp og sett
í nýtt samhengi,
þ.e. bætt er við orðaforða,
bæði virkum og óvirkum, svo
og málfræði. Áfram er lögð sérstök
áhersla á samtalsæfingar í para-og/eða hópvinnu. Nemendur eru nú
hvattir til að búa sjálfir
til samtöl, bæði munnlega og skriflega. Unnið er m.a. með texta sem varpa
ljósi á daglegt
líf unglinga og nokkrar helstu
venjur og siði hjá þýskumælandi
þjóðum. Nemendur fá innsýn í
minnistækni og
læra að tengja
saman skyld orð málfræðilega og merkingarlega.
Þýs
303 Orðaforði og samtalsæfingar
Undanfari: þýs 203
Áfangalýsing:
Orðaforði sem komið hefur fram í
undanförum er lítillega rifjaður upp. Áfram er
áhersla á samtalsæfingar í para-og /eða hópvinnu
og nemendur
nú látnir segja skoðanir sínar á málefnum.
Lögð er áhersla
á að nemendur
fái innsýn í aðstæður ungs
fólks í þýskumælandi
löndum hvað snertir nám og atvinnuhætti. Í umfjöllun um “Landeskunde”
er fjallað um skiptingu og
sameiningu Þýskalands en þetta eru atriði
sem eru forsenda
skilnings á núverandi þjóðfélagsaðstæðum.
Þýs
403 Orðaforði daglegs lífs
Undanfari: Þýs 303
Áfangalýsing:
Orðaforði og málnotkunarreglur sem komið hafa
fram í undanförum
eru lítillega rifjaðar upp og
þjálfaðar eftir því sem þurfa
þykir. Jöfn áhersla er nú
á munnlega tjáningu og
skriflega færni með almennum orðaforða
um daglegt líf í víðum skilningi.
Aukin áhersla er lögð á
umfjöllun um valin málefni líðandi stundar sem
eru í fréttum
erlendis og/eða hér á landi.
Fjallað er um sambandslönd Þýskalands og valið
efni er tengist
þeim sérstaklega.
Þýs
503 Málefni líðandi stundar
Undanfari: þýs 403
Áfangalýsing:
Lögð er áhersla
á fjölbreytni í textavali og munnlega og skriflega beitingu
málsins í æfingum. Unnið er að hluta
í þemavinnu, þ.e. notaðir eru
textar og
annað kennsluefni af mismunandi gerð
þar sem fjallað
er á ýmsa
vegu um sama málefnið, t.d, umhverfi, vandamál og leiðir að
lausnum þeirra. Að hluta eru
textar valdir af nemendum
þannig að efnið standi þeim
nær og sé
í samræmi við áhugasvið þeirra.
Auk þess er
fjallað nokkuð um málefni líðandi stundar í þýskumælandi
löndum.
Þýs
603 Greining á textum
Undanfari: Þýs 503
Áfangalýsing:
Öllum þáttum sem nemendur hafa fengið þjálfun
í á fyrri
stigum þýskunámsins er haldið við.
Í þessum áfanga er lögð áhersla
á að nemendur
læri að meta
texta og tengja sjálfir upplýsingar úr mismunandi textum og
Þýs
703
Greining á textum og hlustunarefni
Undanfari: Þýs 603
Áfangalýsing:
Áfram er haldið að þjálfa
nemendur í því að greina
og meta texta
og myndefni, en nýna er einnig
farið að greina hlustunarefni, þ.e. að átta
seg á því
hvort í töluðu
erindi sé miðlað upplýsingum, skoðunum lýst eða
viðhorfum. Munnleg og skrifleg
tjáning er æfð en núna er
einnig lögð áhersla á að
færa rök fyrir máli sínu.
Í þemavinnu er fjallað um mállýsku- og menningarmun
þýskumælandi landa.
Auk þess er tekið efni ( texti, tón- eða myndefni), sem nemendur fá
að velja að hluta sjálfir
og sem er
hraðlesið, aðallega í þeim tilgangi
að nemendur njóti eigin kunnáttu
án þess að
íþyngja þeim með öðrum verkefnum
tengdum efninu en að segja í
stuttu erindi (u.þ.b. 5-10 mín) frá því sem
þeir hafa fengist við.
Þýs 803 Mat
á textum og myndefni
Undanfari: þýs
703
Áfangalýsing:
Í þessum áfanga er lögð áhersla
á að nemendur
nái nokkurri leikni í að
færa rök fyrir máli sínu.
Áframhaldandi þjálfun í því að
greina og
meta mismunandi texta og myndefni og
tjá eigin skoðun munnlega og skriflega er
forsenda þeirrar leikni. Auk efnis, sem kennarinn velur,
er einnig í þesum áfanga
tekið efni ( texti, tón-eða
myndefni) sem nemendur fá að
velja að gluta sfálfir. Einnig er notað
graðlesið efni, aðallega í þeim
tilgangi að nemendur njóti eigin kunnáttu án þess að
þiþyngja þeim með öðrum verkefnum
tengdum efninu en að segja í
stuttu erindi (u.þ.b. 5-10 mín.) frá því sem þeir hafa fengist við.