ÍÞR 141 - Útivist og fjallgöngur
Nýr íþróttaáfangi var stofnaður á haustönn 2008, ÍÞR 141, með áherslu á útivist og fjallgöngur.
Boðið verður upp á fjórar gönguferðir, hver 3-5 klst. að lengd og þurfa nemendur að fara tvær þeirra til að fá einingu. Ferðirnar verða undirbúnar í sameiningu með hjálp korta og leiðarlýsinga. Tímarnir liggja utan hefðbundarinnar stundatöflu.
Smelltu hér til að sjá námsáætlun áfangans.
Fyrirhugaðar dagsetningar í fjallgöngur á vorönn 2013.
Þú getur smellt á krækjurnar til að fá nánari upplýsingar um göngurnar.
| Dags. | Upplýsingar | Leiðarlýsing og myndir | Myndalbúm |
| 19. janúar |
Lambafellsklofi - Trölladyngja |
Myndir |
|
| 2. febrúar |
Gjábakkahellir |
Frétt og myndir |
|
| 16. febrúar |
Jósefsdalur og Eldborgir |
Myndir |
|
| 6. apríl |
Krísuvíkurberg |
Skólinn tekur þátt í Nordplus samskiptaverkefni sem ber heitið „Outdoor Activities“. Þátttökulöndin eru auk Íslands Danmörk, Eistland, Lettland og Svíþjóð. Hópur úr skólanum fór í heimsókn til Eistlands í apríl 2012 og skoðaði þar m.a. þjóðgarðana Soomaa og Matsalu. Í október 2012 tók hópurinn á móti nemendum og fór með þau m.a. í Skaftafell. Í febrúar 2013 fóru 8 nemendur úr ÍÞG142 ásamt kennara sínum til Svíþjóðar og dvöldu í Abisko þjóðgarði 250 km norðan heimskautsbaugs, þar sem þeir fengu kennslu á gönguskíði, svigskíði, snjóþrúgur og útivist á heimskautasvæði. Annar hópur fer til Lettlands 15.-21. apríl 2013. Upplýsingar og myndir frá verkefninu má finna á nordplusoutdoor.weebly.com.
Í sumar er í boði að fara í sjálfboðavinnuferð í Skaftafell 2.-9. júní. Ferðin er skipulögð í samvinnu við Umhverfisstofnun og mun hópurinn vinna í 5 daga við að laga göngustíga og sinna annarri viðhaldsvinnu. Svo er gert ráð fyrir 2 daga í gönguferðir í þjóðgarðinum. Hópurinn mun tjalda á svæði landvarða, þar sem hann verður með eldhúsaðstöðu. Ferðin er metin til tveggja eininga sem íþróttagrein. Farið verður á eigin bílum og deila þátttakendur ferðarkostnaðinum.
Láttu okkur vita með tölvupósti ef þú hefur áhuga á að skrá þig í þennan áfanga..
