Fjarnám

Algengar spurningar

  • Af hverju kemst ég ekki alltaf inn í WebCt/Blackboard?

    Svar: Það er mikilvægt að fara nákvæmlega eftir leiðbeiningunum sem sendar eru með aðgangsorðinu við upphaf annarinnar. Til að fara í kennsluumhverfið WebCT þarf að slá inn notandanafn (WebCT ID) sem samanstendur af fa og fyrstu 8 stöfum kennitölu nemanda (t.d. fa01010122) og svo lykilorðið (Password).

    Hin nýja útgáfa af kennsluumhverfinu WebCt CE6 heitin núna frá apríl 2008 Blackboard. Er kerfið öflugra en hið fyrra.

    Nánari leiðbeiningar um uppsetningu vefskoðara verða settir á heimasíðu fjarnáms, smellið HÉR . Ef lykilorðið virkar ekki þarf að hafa samband við fjarnámsstjóra. Netfang: fjarnam@fa.is algengasta ástæðan er sú að rangt notendanafn og lykilorð er skráð inn og því er tryggast að kópera og líma (paste) í stað þess að skrifa orðin í viðeigandi reiti.
  • Þegar ég skrái mig inn í WebCt/Blackboard fer ég til baka í upphafsgluggann með Fjölbrautaskólanum við Ármúla.

    Svar: Vandamálið felst í Google Toolbar og/eða Yahoo Toolbar. Með því að fjarlægja Google Toolbar opnast WebCT rétt. Til að athuga hvort Google Toolbar er uppsett á tölvunni og til að fjarlægja það þarf að:

    smella á START og opna Control Panel

    velja svo Programs og Progams and Features - Uninstal programs (eða Add or Remove Programs).

    leita að Google Toolbar og/eða Yahoo Toolbar og fjarlægja það.

  • Þegar ég reyni að opna bréf og skjöl, t.d glærur get ég ekki opnað þau. Hvað veldu

    Svar: WebCT CE6 notar Pop-up glugga t.d. í umræðum (discussion) og tilkynningum (announcement).
    Því þarf að leyfa Pop-up glugga fyrir viðkomandi vefsíður eða alveg. Í Internet Explorer eru Pop-up gluggar stilltir með því að velja valkostina Tools og Pop-up Blocker. Næst má velja Turn off Pop-up Blocker til að leyfa alla Pop-up glugga (ekki er mælt með því) eða Pop-up Blocker Settings.
    Aðrar Pop-up varnir

    a) Framkvæmdu leit á tölvunni að hugbúnaði með orðasamböndum sem innihalda orðið "pop-up" Stilltu öll lík forrit á Disable eða hafðu WebCT-vefþjóninn undanþeginn. Hér er listi yfir heppileg leitarorð:
    Pop-Up Stopper
    Pop-Up Defender
    Pop-Up Zapper

    b) Pop-up blocking valkostir eru stundum hluti vírusvarna, öryggisvarna, eldveggja eða þeirra vefskoðara sem í notkun eru og við þessu þarf að bregðast í samræmi við það sem hér hefur verið skýrt.

    Leiðbeiningar á ensku varðandi Pop-up hindranir nokkurra algengra netforrita:

    Norton Internet Security
    Zone Alarm Pro
    Google Toolbar
    Yahoo! Toolbar
    MSN Toolbar
    AOL 8.0 and later
    Safari browser
    Microsoft Windows XP, Service Pack 2
    ICQ Toolbar

  • Ef ekkert af þessu sem ráðlagt er hér að ofan hjálpar?

    Svar: Þá er síðasta ráðið að setja upp annan vefskoðara og nota hann í staðinn fyrir Internet Explorer.

    WebCT CE6 styður eftirfarandi vefskoðara fyrir Windows:

    Microsoft IE

    6.0 SP1; 6.0 SP2 (XP SP2)

    Netscape

    7.2

    AOL

    9

    Mozilla

    1.7

    Firefox

    1.0

    og eftirfarandi vefskoðara fyrir MAC OS:

    Mozilla

    1.7 (OS X only)

    Firefox

    1.0 (OS X only)

    Safari

    1.2, 1.3, 2.0 see note 2 (OS X only)


    Mælt er með því að sækja annan vefskoðara eins og Mozilla
    (http://www.mozilla.org/products/mozilla1.x/http://www.mozilla.org/products/mozilla1.x/)

    og nota hann í staðinn fyrir Internet Explorer. Smelltu á slóðina hér að ofan og náðu í Mozilla fyrir stýrikerfið sem þú notar.

    Ath. að forritið spyr þig hvort þú viljir nota það sem aðalvefskoðara (Default Browser) og skaltu svara því neitandi.

    Til að opna WebCT þarf síðan að byrja á því að opna Mozilla, opna svo heimasíðu skólans www.fa.is og velja svo WebCT.

  • Ég þarf að senda verkefni í Assignments. Hvernig geri ég það?

    Svar: Leiðbeiningar er að finna ef þið smellið: HÉR.

  • Hvar finn ég kennsluáætlanirnar?

    Svar: Kennsluáætlanir má finna á vefsíðu viðkomandi deildar eða með því að smella á skammstöfun áfangans á umsóknarsíðunni, áfangar í boði. Þær eru einnig inni í WebCt/Blackboard.

  • Hvar finn ég upplýsingar um undanfara?

    Svar: Hvaða undanfara er krafist kemur fram í kennsluáætlun og á lista yfir áfanga í boði. Einnig má finna upplýsingar um undanfara í námsskrá skólans.

  • Hvernig get ég haft samband við kennarann?

    Svar: Netfang kennarans má finna í kennsluáætlun. Auk þess er hann lista á póstlistanum í WebCt/Blackboard. Þar þarf að finna WebCT netfang með því að smella á: Browse for resipients til þess að finna nafn kennarans.
  • Get ég tekið fleiri en 9 einingar?

    Svar: Ekki án samþykkis fjarnámsstjóra. Fyrst þarftu að skrá þig inn í fjarnámið og senda síðan tölvupóst til fjarnámsstjóra og þá er hægt að setja inn heimild til að bæta við einingum.
  • Hver metur undanfara?

    Svar: Það gerir skólinn. Hafið samband við fjarnámsstjóra. fjarnam@fa.is.
  • Af hverju er ekki hægt að nota hotmail.com eða msn netfang?

    Svar: Það er ekki hægt að treysta á slík netföng. Margir fá ekki sent aðgangsorðið sitt því það lendir í Junk mail og því hvetjum við alla fjarnema til þess að verða sér úti um öruggt netfang.

  • Er prófað gegnum tölvuna?

    Svar: Nei. Próf fara fram í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
  • Er hægt að taka prófin í heimabyggð, ef ég bý ekki á höfuðborgarsvæðinu?
  • Svar. Já, oft er það hægt t.d. í næsta framhaldsskóla eða grunnskóla. Erlendis í sendiráðum, ræðismannsskrifstofum eða í skólum. Ef þú þarft að nýta þér þetta hafðu þá samband við þann skóla eða Sendiráð sem næst þér er og tilkynntu fjarnámsstjóra hver ábyrgðamaður er þar.

  • Getur fólk á öllum aldri verið í fjarnámi?

    Svar: Já.

  • Er öruggt að áfanginn sem ég sæki um verið kenndur?

    Svar: Nei, þátttaka getur verið það lítil að hann falli niður.
  • Kemur fyrir að áfangar yfirfyllast, kemst ég þá kannski ekki að?

    Svar: Það hefur ekki komið til þess ennþá.
  • Hvar fæ ég upplýsingar um aðgangsorð að WebCt/Blackboard ef ég glata því?

    Svar: Aðgangsorð er sent til þeirra sem hafa greitt þann dag sem önnin hefst. Ef þú týnir aðgangsorðinu hefur þú samband við fjarnam@fa.is Mikilvægt er að geyma bréfið með aðgangsorðinu sem send eru í upphafi námsins. Ef aðgangsorðið virkar ekki þá skaltu lesa betur leiðbeiningarnar sem fylgdu því og fara nákvæmlega eftir þeim.

  • Ef ég skipti um skoðun, eða vil breyta einhverju sem ég er búin að skrá mig í, við hvern á ég þá að tala?

    Svar: Umsjónarmann fjarnáms, Steinunni H. Hafstað fjarnam@fa.is. Athugið að hafi skráningargjald verið greitt og önn hafin er ekki hægt að endurgreiða námsgjaldið.
Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica