Fjarnám

Moodle - námsumsjónarkerfið

Moodle (Modular Object-Oriented Dynamic Learning Environment)
Moodle er námsumsjónarkerfi (Learning management system LMS) sem hefur verið tekið upp og leysti Blackboard af hólmi. Smelltu hér til að tengjast Moodle námsumsjónarkerfinu.
Til að skrá sig inn á Moodle þarf að slá inn notandanafn og lykilorð í reitina til hægri á síðunni og smella á Innskrá.

Fjarnám
Ef þú stundar nám í fjarnámi þá koma áfangarnir sem þú ert skráð(ur) í fram undir Mínir áfangar og/eða Course overview fyrir miðju síðunnar.
INNA: Nemendur í fjarnámi geta skoðað námsferil sinn í INNU með því að velja Inna fyrir nemendur og skrá kennitölu sína og óska svo eftir lykilorði með því að velja: Sækja nýtt lykilorð og þá er sendur tölvupóstur með lykilorðinu.

Próf: Nemendur sem þurfa sérúrræði í prófum og þeir sem þurfa að taka lokapróf sín annarsstaðar en í FÁ þurfa að tilkynna prófstað fyrir 15. apríl með því að senda tölvupóst á fjarnam@fa.is
Prófkvíðanámskeið verður haldið miðvikudagana: 3., 10., 17. og 24. apríl frá kl. 17:00 til 18:00. Best er að mæta í öll fjögur skiptin. Vinsamlegast skráið ykkur með því að senda tölvupóst á fjarnam@fa.is.

Próftafla vorannar er aðgengileg undir: Próftafla, skoðið einnig upplýsingar um prófafyrirkomulag og prófreglur hér á stikunni til vinstri. MUNIÐ! Nemendum ber að sýna skilríki í prófum!!!!!

Notendanafn og lykilorð er sent til fjarnámsnemenda í tölvupósti í upphafi annar. Slóðin inn á Moodle námsumsjónarkerfi skólans er: http://moodle.fa.is

Dagskóli
Ef þú stundar nám í dagskóla þá þarfti að innrita þig í þá áfanga sem þú stundar nám. Veldu Áfangar - Dagskóli og að lokum viðeigandi áfanga, en þeim er raðað í stafrófsröð. Þú innritar þig í áfangann með því að skrifa inn aðgangslykilinn sem kennari áfangans hefur þegar úthlutað þér, inn í Enrolment key gluggann.
 

Moodle
Síðast uppfært 20.3.2013.

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica