Prófareglur og fyrirkomulag prófa
Upplýsingar um prófstaði er að finna undir Próffyrirkomulag.
NEMENDUR ÞURFA AÐ MÆTA MEÐ SKILRÍKI Í PRÓF
Fyrir alla nemendur sem taka próf:
-
Nemanda ber að mæta stundvíslega í þau próf sem hann er skráður í og hafa meðferðis persónuskilríki.
-
Prófað er í M stofum á 2. hæð FÁ og geta nemendur séð á listum sem hanga uppi í í anddyri í hvaða stofu þeirra próf er.
-
Nemandi skal leggja perónuskilríki á prófborð svo yfirsetumaður geti borði þau saman við nafnalista.
-
Prófatíminn er tvær klukkustundir. Prófin eru samin með það í huga að flestir nemendur ljúki þeim á einni og hálfri klukkustund.
-
Nemanda sem verður uppvís að svindli (notar óheimil hjálpargögn, veitir eða þiggur hjálp frá öðrum nemanda), er vísað úr prófi og hann fær falleinkunn.
-
Slökkt skal á farsímum í prófi og þeir mega ekki vera á prófborði.Sama gildir um önnur raftæki.
-
Nemendur geta haft með sér hressingu, en mælt er með ílátum sem ekki skrjáfar í.
Mörgum nemendum gagnast vel að nota eyrnatappa í prófunum. -
Sömu reglur gilda á öllum prófstöðum okkar.
-
Þeir sem þurfa lituð prófblöð, stærra letur eða aðra sérþjónustu þurfa að óska eftir því fyrir 10. apríl og senda afrit af greiningu.
Próftími:
-
Nemendum sem af sérstökum ástæðum þurfa lengri próftíma er bent á að nýta vel þessar 2 klukkustundir sem próftíminn er. Prófin miðast við að hægt sé að ljúka við að taka þau á 90 mínútum en þeir sem þurfa fá allt að 120 mínútur til að leysa þau.
-
Nemendur mega fara úr prófi eftir að 30 mínútur eru liðnar af próftíma.
-
ATH! Veikindi ber að tilkynna með því að senda tölvupóst á fjarnam@fa.is viðkomandi prófdag.
-
Greiða þarf krónur 1.500 fyrir sjúkrapróf.
-
Þeir sem taka próf erlendis eða úti á landi tilkynna veikindi á fjarnam@fa.is og til ábyrgðarmanns á viðkomandi prófstað.
Tvö próf á sama tíma:
-
Ef tvö tvö próf lenda á sama tíma á sama degi getur nemandi óskað eftir að taka annað prófanna á sjúkraprófsdegi og þarf ekki að greiða fyrir.
