Fjarnám

Tilkynningar

Skráning á sumarönn er 29. maí - 6. júní 2008.
Sjá dagatal sumar - og haustannar með því að smella HÉR.


Vorönn 2008.

Próf

Þeir sem eru búsettir úti á landi eiga þess kost að taka prófin í framhaldsskólum landsins. Það er hinsvegar mikilvægt fyrir fjarnámsstjóra að vita hverjir þurfa að taka prófin þar og í hvaða skóla. Þetta þarf að tilkynna til fjarnámsstjóra fyrir 15. apríl 2008.

Sumir skólar og/eða stofnanir taka gjald fyrir þjónustuna sem þó er reynt að stilla í hóf.

Prófin á að taka skv. próftöflu og eru próf 2. - 16.maí. Prófatími er almennt 90 mínútur en hafi nemendur greiningu um lesblindu eða þurfa af öðrum ástæðum lengdan tíma ber þeim að sækja um það til prófstjóra. Æskilegt er að greining eða annað vottorð fylgi umsókn.

Skólarnir þar sem þið getið tekið próf eru auk FÁ:

Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundarfirði

Menntaskólinn á Ísafirði

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Sauðárkróki

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Framhaldsskólinn á Húsavík

Menntaskólinn á Egilsstöðum

Verkmenntaskóli Austurlands, Neskaupstað

Framhaldsskóli Austur Skaftfellssýslu, Höfn

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

Iða, Fræðslunet Suðurlands á Selfossi

Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Keflavík


Á stöðum þar sem eru fjarnáms- eða námsstofur er oft mögulegt að taka próf ef starfsmenn þar geta komið því við.
Ef enginn framhaldsskóli er nálægt hafa nemendur haft samband við skólastjóra næsta grunnskóla og fengið að taka próf sín í umsjón hans.

Senda þarf nafn og netfang viðkomandi skólastjóra/aðstoðarskólastjóra til fjarnámsstjóra.

Erlendis hafa Sendiráð Íslands eða konsúlar þjónustað nemendur sem og ýmsar skólastofnanir sem nemendur verðaáð útvega sjálfir. í Kaupmannahöfn Jónshús.

Nemendur erlendis þurfa sem fyrr sjálfir að sjá um að útvega stað og ábyrgðarmann. Prófin eru send í tölvupósti og því þarf netfang ábyrgðarmanns að fylgja þeim upplýsingum sem fjarnámsstjóri fær, auk nafns stofnunarinnar og ábyrgðarmanns auk stöðu hans í stofnuninni.

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica