Fjarnám

Velkomin á fjarnámsvef FÁ.

Vorönn 2013

Næst verður opið fyrir skráningu dagana 29.maí til 4. júní en þá er hægt að skrá sig á sumarönn.

Vorönn 2013 hófst 17. janúar. Þann 28. febrúar eru 1464 nemendur skráðir í fjarnám á önninni.
Próftafla vorannar - lokapróf eru dagana 2. - 17. maí.


 Að opna skjöl í OpenOffice/Libre Office. Sjá hér.

Nýtt kennslukerfi, Moodle verður tekið í notkun á sumarönn 2012, Allir nemendur fá þar aðgang að þeim áföngum sem þeir eru skráðir í. Þar hafa nemendur aðgang að fjölbreyttu námsefni, námsáætlunum, verkefnum og prófum og þar geta þeir einnig haft samband við kennara og aðra nemendur sem skráðir eru í viðkomandi áfanga.

Mikilvægt er að útvega bækurnar tímanlega en bókalista má sjá þegar  viðkomandi áfangi er valinn í: Áfangar í boði á fjarnámssíðunni.

Náms- og starfsráðgjöf:
Opinn tími er á þriðjudögum kl. 14 - 15. Þá er nóg að mæta og þarf ekki að panta.

Símatímar: Mánudaga kl. 14.00 - 15.00 og föstudaga: 11.00 – 12.00.

Þjónusta Hljóðbókasafnsins við nemendur með lestrarerfiðleika. Sjá HÉR.

Mikilvægt er að allar upplýsingar séu réttar og netfangið virkt þannig að upplýsingar um notendanafn að kennslukerfinu WebCt komist til skila, en það er sent í tölvupósti. Póstur sem sendur er frá FÁ er iðulega flokkaður sem ruslpóstur á póstþjóni hotmail.com og lendir því í Junk mail. Þeir sem eru með slíkt netfang geta því ekki treyst því að fá aðgangsorðið sitt.
Þegar heimsendur greiðsluseðill hefur verið greiddur og aðgangs- og lykilorð að Moodle  hefur borist í tölvupósti og þú búinn að skrá þig þar inn ert þú kominn á það svæði þar sem samskipti þín og kennarans annars vegar og þín og annarra nemenda áfangans hins vegar munu fara fram. Hver kennari setur tímaramma til verkefnaskila og ber nemendum að hafa samband við kennara dragist verkefnaskil nemenda úlu. Í Moodle eru mikilvægar dagsetningar varðandi próf og verkefnaskil og annað sem viðkemur áfanganum.


NÁMSFYRIRKOMULAG:

Smellið á Námsfyrirkomulag ef þið viljið afla ykkur ítarlegri upplýsinga um fjarnámið. Þeir sem eru með hotmail netföng geta ekki treyst því að fá aðgangsorðið sent. Ástæðan er sú að ef sendur er út fjöldapóstur á hotmail netföng lendir pósturinn í Junk Mail og kemst því ekki í hendur eignenda sinna. Þetta veldur töfum og leiðindum og er fólk því vinsamlegast beðið um að útvega sér annað og tryggara netfang.

Námið er fyrst og fremst hugsað sem sjálfsnám undir handleiðslu kennara. Það kefst mikils aga og skipulagningar af hálfu nemenda og kennara.

Nemendur þurfa að:

1. Hafa daglegan aðgang að tölvu sem tengd er netinu og ræður við vefinn.
2. Hafa sitt eigið netfang og þurfa að tilkynna breytingar á því til fjarnámsstjóra á fjarnam@fa.is
3. Hafa lágmarkskunnáttu í ritvinnslu og tölvunotkun.
4. Hafa nokkra æfingu í að nota veraldarvefinn og síðan tileinka sér vinnu með kennslukerfinu  Moodle. Þar eru bókalistar, námsáætlanir, verkefni, gagnvirk próf og ítarefni allra áfanga.
5. Hafa tíma til að stunda námið.
Kennsluvefur í upplýsingalæsi. Kynnið ykkur hvar og hvernig best er að: finna, staðsetja, meta, skipuleggja og nota upplýsingar.

Einingafjöldi áfanga er síðasta talan í númeri hans. T.d. DAN 103 er 3 einingar, STÆ 102 er 2 einingar og TÖL 131 er 1 eining. Almennt er reiknað með að tíminn talinn í klukkustundum sem þarf til fjarnámsins á viku sé sú tala sem út kemur þegar einingafjöldinn er margfaldaður með 3. DAN 103 er þá 9 klst á viku, STÆ 102 6 klst og TÖL 131 3 klst.

Mat á fyrra námi:
Fjarnámsnemendur sem óska eftir mati á fyrra námi skulu senda inn öll gögn sem varða nám þeirra í öðrum skólum til fjarnámsstjóra. Nemendur sem eru skráðir í fjarnám í FÁ fá fyrra nám sitt metið án aukakostnaðar. Nemendur sem ekki eru skráðir nemendur við skólann greiða 5.000 krónur fyrir námsmat.



ÁFANGAR Í BOÐI Á NÁMSBRAUTUM FÁ:

1. Félagsfræðabraut

2. Málabraut

3. Náttúrufræðabraut

4. Lyfjatæknabraut

5. Læknaritarabraut

6. Nuddbraut

7. Sjúkraliðabraut

8. Tanntæknabraut

9. Heilbrigðisritarabraut

10. Viðskipta- og hagfræðibraut




Síðast uppfært 28.2.2013

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica