Skólinn

Skólinn

Vikupistill skólameistara (2012/10)

Söngleikurinn Þorparinn

Í söngleiknum Þorparanum er skyggnst inn í veröld Klettavíkurbúa á einum merkasta degi ársins, sjálfum Sjómannadeginum. Þorpsbúar hafa í nógu að snúast við að undirbúa kaffiboð og ball kvöldsins undir dyggri forystu formanns kvenfélagsins. Þorparinn Benóný snýr til baka eftir nokkurra ára dvöl í höfuðstaðnum og aðkomumaðurinn Frímann gefur út vafasamt bæjarblað, svo ekki sé meira sagt!

Íbúar Klettavíkur eru Benóný (Ingimar Þór Richter), Nína (Thelma Dögg Guðmundsdóttir), Hjálmar (Elvar Rúnarsson), Júlía Rós (Hafrún Hafliðadóttir), Frímann (Guðmundur Dór Guðmundsson), Salka (Véný Viðarsdóttir), Lovísa (Loubna Anbari), Magga (Sara Lind Kristbjörnsdóttir), Tanja (Pálmey Helgadóttir), Halldóra (Unnur Margrét Unnarsdóttir), Beggý (Anna Margrét Jónsdóttir), Málfríður (Marly Gomes), Ása (Iða Brá Ingadóttir), Sigga (Elísabet O. Hilmarsdóttir), Flavia (Chiara Cavagnero), Lóa (Toramattie Annie Sahadeo), Nonni (Júníus Einar Þorsteinsson) og Tómas (Elías Örn Halldórsson).

Um „bakvinnslu“ sáu Andrea Hauksdóttir, Eydís Rún Jónsdóttir, María Hauksdóttir, Sara Víðsisdóttir, Zhang Jiaqi, Thelma Dögg Guðmundsdóttir og Iða Brá Ingadóttir.

Hlómsveitina skipa Andri Freyr Hilmarsson, Elvar Freyr Elvarsson, Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Lukas Stateczny.

Öll tónlist í söngleiknum er eftir Magnús Eiríksson. Með tónlistar- og leikstjórn fara Guðný Birna Ármannsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir sem skrifuðu einnig handrit söngleiksins.

Söngleikurinn var frumsýndur á laugardaginn og var samdóma álit allra að sýningin væri hin besta skemmtun. Hafliði og Herdís enskukennarar skrifuðu þetta eftir sýninguna. Hafliði:  Þetta er besta skemmtun sem ég hef notið á þessu ári - enginn má missa af því að sjá hve nemendur eru hæfileikaríkir“ og Herdís: „Sammála!! Frábær sýning, við skemmtum okkur svakalega vel!! Til hamingju öllsömul!!! :-) Þið eruð æði! Maður er stoltur af sínu fólki, það er á hreinu!“.

Ég þakka öllum þeim sem hlut eiga í þessari frábæru sýningu fyrir góða skemmtun. Sérstakar þakkir fá Guðný Birna og Lára Dögg. Ég hvet alla að tryggja sér miða sem fyrst á þær sýningar sem eftir eru, kl. 20.00 á þriðjudag og miðvikudag.

 

Umhverfisvika í FÁ

Dagskrá:

Mánudagur 26. mars: Umhverfisvikan sett á steypunni kl. 10.00. Myndin „Age of stupid“ sýnd kl. 11.10 í fyrirlestrarsal. Myndin Flow sýnd kl. 11.10  í stofu M-201. Frí í tíma fyrir þá sem mæta.

Þriðjudagur 27.mars: Grænmetismarkaður á steypunni kl. 11-13. Fyrirlestur frá HAPP – „Hið súra við sykurinn“, í íþróttasal kl. 11.10. Frí í tíma fyrir þá sem mæta.

Miðvikudagur 28. mars: Fatamarkaður á steypunni með þátttöku nemenda og starfsfólks.  Hvað verður í matinn í hádeginu?

Fimmtudagur 29. mars: Kynningar á vistvænum vörum á steypunni kl. 11-13. Fræðsla um lífræna ræktun kl. 11.10 í íþróttasal. Frí í tíma fyrir þá sem mæta.

 

Á næstunni

  • Þriðjudaginn 27. mars kemur hópur danskra menntaskólanema frá Århus í heimsókn í FÁ.
  • Fimmtudagskvöldið 29. mars verður haldin söngkeppni sérnámsbrauta framhaldsskólanna í salnum í FÁ. Sama kvöld verður árshátíð nemenda haldin á Nasa og fá þeir nemendur sem mæta á dansleikinn frí í skólanum föstudaginn 30. mars kl. 8.10-10.15.
  • Páskafrí hefst 2. apríl og stendur til 11. apríl. Ég óska nemendum og starfsmönnum í FÁ gleðilegra páska.
Gísli  
 

Vikupistill skólameistara (2012/9)

Vorið á næsta leiti

 

Í dag er góuþræll og á morgun hefst Einmánuður og þá eru jafnframt vorjafndægur. Enn einu sinni hefur okkur tekist að þreyja Þorrann og Góuna. Á vefsíðunni fuglar.is birtist eftirfarandi frétt þann 15. mars:

Tjaldar sáust við Leiruvegin á Akureyri. Rauðhöfðaöndum hefur fjölgað í nágrenni Hafnar og grágæs var í álftahóp við Kríutjörn í Nesjum. 5 lómarvoru á Þveit í Nesjum. All margir tjaldar í Fáskrúðsfirði. 15 skrofur sáust út af Garðskaga.“ Vorið er alveg að koma.

 

 

Nú eru aðeins tvær vikur í páskafrí og kennsludögum vorannar fækkar óðum, aðeins 22 kennsludagar eftir. Ekki þarf að fjölyrða um það hversu mikilvægt er að nýta þann tíma vel.

 

Val fyrir haustönn

Fjöldi áfanga sem nemendur mega velja fyrir haustönn 2012:

  • Nemandi sem stenst alla áfanga vorannar getur að hámarki valið 6 áfanga auk íþrótta.
  • Nemandi stenst ekki alla áfanga vorannar er einungis heimilt að velja 3 einingar umfram staðnar einingar. Allir mega þó velja 12 einingar samtals án tillits til árangurs vorannar.
  • Hægt er að sækja um undanþágu frá þessum reglum til skólastjórnar.

110 nemendur hafa skráð val í Innu.

 

Kennslumat

Kennslustjórar hafa í samráði við fagstjóra ákveðið hvaða áfanga skuli meta á þessari önn og munu þeir fylgjast með framkvæmd matsins og aðstoða kennarana ef þess er þörf.

      Kennslumatið hófst 14. mars og stendur til 27. apríl. Krækja í kennslumatið er á Mínum síðum og þurfa nemendur að skrá sig inn í fyrsta skiptið sem þeir opna það. Notandanafn og lykilorð er sama og á Mínum síðum.

      Kennararnir eru beðnir að gera viðeigandi ráðstafanir til að framkvæma kennslumatið í kennslutíma, t.d. með því að panta fartölvuvagn eða tölvustofur.

      Að loknu mati þarf nemandinn að smella á valkostinn Senda svör fyrir hvern áfanga fyrir sig. Þegar fleiri nemendur nota sömu tölvu við matið þarf e.t.v. að endurræsa tölvuna.

Lesa meira
 

Vikupistill skólameistara (2012/8)

Opið hús í FÁ fimmtudaginn 15. mars kl. 16.30 til 18.30.

Fimmtudaginn 15. mars verður opið hús í FÁ. Grunnskólanemar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Nemendur skólans eru hvattir til að koma og kynna sér það nám sem í boði verður á næstu önn. Á opnu húsi verður kynning á námsbrautum, deildum og einstökum áföngum, auk þjónustu við nemendur. Skipulagið verður með svipuðu sniði og í fyrra. Aðstaða verður í sal, á steypu, í raungreinastofum og í kennslustofum heilbrigðisskólans.

 

Frumkvöðlar í FÁ

Nemendur í markaðsfræði í FÁ taka þátt í fyrirtækjasmiðjunni  „Ungir frumkvöðlar“. Markmið þessarar keppni er að læra gerð viðskiptaáætlana, markaðssetningu og að kynnast því hvernig fyrirtæki er stofnað. FÁ-ingar kynntu tvö fyrirtæki í Smáralind um helgina: IceCards sem gefur út spilið FlippFlopp og Nemanudd sem hefur það að  markmiði að kynna nuddnema skólans og koma þeim á framfæri. Úrslit keppninnar munu liggja fyrir í lok apríl.

 

Íslandsmót iðn-og verkgreina

Íslandsmót iðn-og verkgreina var haldið í HR dagana 8. og 9. mars. Sjúkraliðar tóku í fyrsta sinn þátt í þessari keppni og voru keppendur frá FÁ, FB og VMA. Keppnin fór þannig fram að nemendur þurftu að annast sjúklinga við tilteknar aðstæður og sýna hæfni sína og kunnáttu. FÁ sendi tvö tveggja manna lið í keppnina og lentu þau bæði í 2. sæti. Lið FB varð í fyrsta sæti en litlu munaði að sögn dómara. Allir keppendur fengu viðurkenningarskjal og verðlaunapening frá mótshöldurum og Sjúkraliðafélag Íslands gaf öllum  þátttakendum vinnuúr. Þátttakendur FÁ í keppninni voru: Hulda Jónsdóttir, Saga Ólafsdóttir, Kristbjörg Gunný Jónsdóttir og Rakel Ósk Þorsteinsdóttir. Ég vil þakka kennurum og nemendum sjúkraliðabrautar FÁ fyrir gott framtak.

 

Forvarnardagur í FÁ

Fimmtudaginn 22. mars verður forvarnardagskrá í skólanum kl. 10.15–12.00. Í boði verða 12 forvarnakynningar frá ýmsum aðilum. Dagskrá forvarnadagsins verður send út þriðjudaginn 20. mars. Kennsla fellur niður fimmtudaginn 22. mars kl. 10.15–12.00.


Lesa meira
 

Vikupistill skólameistara (2012/7)

Næstu vikur

Nú eru aðeins tæpar fjórar kennsluvikur í páskafrí. Þessi tími reynist nemendum oft erfiður og er námsleiði farinn að segja til sín. Eflaust eru einhverjir nemendur kvíðnir vegna slælegrar frammistöðu. Mætingar sumra nemenda hafa því miður verið slakar og nokkrir hafa helst úr lestinni. Ég tel mjög brýnt að við starfsmenn skólans reynum að örva nemendur til dáða með öllum ráðum.

Árdagar

Árdagar 2012 tókust vel. Dagskráin var fjölbreytt að vanda og var boðið upp á margt fróðlegt og skemmtilegt. Starfsmenn og nemendur unnu frábært starf við undirbúning og framkvæmd Árdaganna og lögðu sig fram um að gera þessa daga eftirminnilega. Ég vil þakka öllum sem lögðu hönd á plóg kærlega fyrir gott starf í þágu skólans.

Opið hús 15. mars

Opið hús verður fimmtudaginn 15. mars kl. 16.30-18.30. Námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans verður kynnt. Öll aðstoð við skipulag og dagskrá opna hússins er vel þegin.


Lesa meira
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica