Um bókasafnið
Hlutverk bókasafna í framhaldsskólum er að vera upplýsingamiðstöð fyrir nemendur og kennara, sbr. 39. grein a í lögum um framhaldsskóla 2008, nr. 92 12. júní.
Það skal búið bókum, tímaritum, myndefni og öðrum safnkosti sem tengist skólastarfi. Jafnframt skal veita aðgang að rafrænum gögnum innan skóla og á netinu. Einnig er boðið upp á efni sem hvetur nemendur til stöðugrar þekkingarleitar í leik og starfi og bókmenntalesturs. Með því er stuðlað að heilbrigðu lífefni og þroska.
Í tengslum við húsnæði skólasafns skal vera lesaðstaða með aðgangi að upplýsingaritum á skólasafni.
Í starfsemi skólasafns skal leggja áherslu á að þjálfa nemendur í sjálfstæðri leit upplýsinga og notkun gagnabanka.
Upplýsingar um safnkost er að finna í gagnagrunni bókasafnsins á vef skólans, METRAleit.
Bókasafn Fjölbrautaskólans við Ármúla er einkum ætlað nemendum og starfsliði FÁ.
Nemendum í fjarnámi við FÁ skal bent á að þeim stendur til boða þjónusta bókasafnsins á sömu forsendum og nemendum dagskólans.
Aðrir notendur hafa einungis lágmarksaðgang að gögnum safnsins, þ.e.a.s. safnið lætur þeim eingöngu í té aðstöðu til að nota gögn þess á staðnum.
Fjarnemendum, sem óska eftir þjónustu bókasafnsins, en hafa ekki tækifæri til að koma sjálfir, er bent á að senda tölvupóst til bókasafnsfræðinga skólans.
Lesaðstaða er fyrir u.þ.b. 50 manns. Lítil aðstaða er fyrir hópvinnu.
Á ganginum fyrir framan bókasafnið er vél sem er allt í senn ljósritunarvél, tölvuprentari og skanni. Hægt er að kaupa inneign á prentkort á bókasafninu. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu þjónustu- og tölvuvers skólans.
Starfsfólk safnsins er:
Kristín Björgvinsdóttir bókasafnsstjóri, kristin@fa.is
Þóra Kristín Sigvaldadóttir bókasafnsfræðingur, thora@fa.is
Verið velkomin á bókasafnið
12. maí 2011
