Nám

Almenn námsbraut

Á Almenna námsbraut Fjölbrautaskólans við Ármúla eru skráðir tveir hópar nemenda. Annars vegar þeir sem ekki hafa ákveðið á hvaða námsbrautir þeir vilja skrá sig. Hins vegar nemendur sem ekki hafa náð þeim árangri í ákveðnum greinum í grunnskóla sem krafist er á öðrum brautum skólans.

Þeir sem ekki hafa ákveðið sig eru á Almennri námsbraut uns þeir velja aðra braut.

Þeir sem eru á Almennri námsbraut vegna þess að þeir hafa ekki náð lágmarkseinkunn eru þar þangað til þeir hafa staðist viðkomandi upprifjunaráfanga. Eftir það geta þeir skráð sig á aðrar námsbrautir skólans.

Á Almennri námsbraut er boðið upp á upprifjunaráfanga í íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði. Þeir heita ÍSL193, ENS193, DAN193 og STÆ193. Hér er um er að ræða upprifjun á námsefni grunnskólans fyrir nemendur sem ekki hafa náð lágmarkseinkunn í viðkomandi námsgrein. Nemendur fá námseiningar fyrir þetta nám.

Nemendur sem eru settir í 193-áfanga eru jafnframt í áfanganum SNÝ193. Það er stuðningsáfangi fyrir nýnema. Í þeim tímum fá nemendur sérstaka aðstoð við þá námsgrein sem þeir stóðust ekki í grunnskóla. Kennari SNÝ-áfangans er jafnframt umsjónarkennari þeirra nemenda.

Að öðru leyti mega nemendur á Almennri námsbraut skrá sig í hvaða áfanga sem er á öðrum bóknámsbrautum skólans.

Rík áhersla er lögð á aðhald með nemendum á Almennri námsbraut, bæði hvað varðar mætingar og ástundun í námi. Í því sambandi leggur FÁ mikla áherslu á samstarf heimilis og skóla með sterku umsjónarkerfi og reglulegu sambandi við foreldra.

Í upphafi annar sendir kennslustjóri sem jafnframt er umsjónarkennari nýnema bréf til foreldra nýnema á AN og boðar til funda í framhaldi af því. Hann fundar síðan með hverjum og einum nemanda og foreldum á fyrstu dögum annarinnar.


(Síðast uppfært 23.8.2012)

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica