Nám

Framhaldsskólabraut

Framhaldsskólabraut er fyrir nemendur sem stefna ekki á stúdentspróf.

Lögð er mikil áhersla á samstarf heimila og skóla. Brautarstjórn fundar með nemendum og foreldrum fyrir upphaf skóla að hausti þar sem nemendum og foreldrum gefst tækifæri til að endurskoða val á námsáföngum.

Lögð er rík áhersla á að finna sterkar hliðar nemendanna og áhugasvið.

Nemendur útskrifast af brautinni með framhaldsskólapróf eftir 60 til 90 eininga nám.

Nemendur á framhaldsskólabraut sem eru í vinnu með námi eiga kost á að fá þá vinnu metna til eininga. Þeir sem ekki eru í vinnu eiga kost á starfsþjálfun sem metin verður til eininga.

Námið skiptist í kjarna og frjálst val.

Kjarninn er skylda fyrir alla nemendur brautarinnar. Eldri nemendur skólans sem óska eftir að útskrifast með framhaldsskólapróf geta þó fengið sambærilega áfanga metna í stað í áfanganna í kjarna.

Annað val er frjálst þannig að nemandi velur það sem hann kýs af námsáföngum skólans.

Kjarni Áfangi Einingar 
Íslenska ÍSL193 3
Enska ENS193 3
Stærðfræði STÆ093 / STÆ193 3
Listsköpun SKÖ103 3
Sagnfræði SAG193 3
Sálfræði SÁL193 3
Náttúrulæsi NÁT193 3
Fjármálalæsi FJÁ193 3
Lífsleikni LKN103 3
Íþróttir 4
Kjarni alls: 31
Frjálst val
Nemendur mega velja hvað sem er af námsáföngum sem FÁ býður upp á til að fylla upp í tilskilinn einingafjölda til að útskrifast með framhaldsskólapróf. Mat á öðru námi kemur einnig til greina. Sé nemandi í vinnu meðfram námi kemur til greina að meta hana til eininga eftir ákveðnum reglum sem skólinn setur.
Frjálst val alls: 29
Alls á braut: 60-90


Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica