Skólinn

Köku- og kaffisala til styrktar góðu málefni

Fjölbrautaskólinn við Ármúla safnar fyrir byggingu skóla í Pakistan. Í hádegishléinu á fimmtudag verður söfnunarnefndin með sölu á kökum og kaffi.

Þeir sem ekki hafa áhuga á veitingum en vilja styrkja málefnið geta stungið sem nemur andvirði kaffibolla eða köku í söfnunarbauk sem verður á staðnum.

Markmið nefndarinnar er að safna fyrir byggingu 200 barna skóla með öllu því sem til þarf. Ef nemendur Fjölbrautaskólans við Ármúla, sem eru rúmlega 1000, gefa andvirði kaffibolla og kleinu á viku í söfnunina þá verður markmiðinu fljótt náð.

Legðu málefninu lið með því að kaupa þér hressingu í hádeginu!

Einnig er hægt að leggja inn á reikning skólans:

Kt. 590182-0959

Banki: 1195-26

Reikningur 358

Allar hugmyndir og aðstoð varðandi söfnunina eru vel þegnar.

Harpa   n16058371@fa.is

Sara     n07108053@fa.is

Karlotta n14017955@fa.is



Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica