Foreldrafélag FÁ
Stofnfundur Foreldraráðs Fjölbrautaskólans við Ármúla var haldinn þriðjudaginn 25. nóvember 2008 kl. 17.30 á kennarastofu skólans. Forráðamenn nemenda yngri en 18 ára voru boðaðir á fundinn. Í fundarboði var dagskrá stofnfundarins þessi:
- Setning fundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Fyrirliggjandi drög að lögum félagsins tekin fyrir til samþykktar.
- Kosning í stjórn félagsins.
- Kosning endurskoðenda.
- Önnur mál
Á stofnfundinn voru mættir eftirfarandi foreldrar nemenda í FÁ: Elsa Soffía Jónsdóttir, Helga Oddsdóttir, Inga Þórólfsdóttir, Irene Moreno Contreras og Steinar Harðarson. Auk þess voru á fundinum eftirfarandi starfsmenn FÁ: Arngrímur Gunnhallsson forvarnarfulltrúi, Ólafur Sigurjónsson aðstoðarskólameistari og Gísli Ragnarsson skólameistari.
1. Setning fundar og kosning fundarstjóra og fundarritara
Gísli Ragnarsson bauð fundarmenn velkomna og greindi frá því að í nýjum lögum um framhaldsskóla sem tóku gildi 1. águst 2008 er gert ráð fyrir að foreldraráð séu starfandi við framhaldsskóla. Tveir forráðamenn, Elsa Soffía Jónsdóttir og Steinar Harðarson komu á fund skólameistara til að undirbúa stofnfundinn. Gísli bauðst til að vera fundarstjóri sem var samþykkt af foreldrum. Elsa Soffía tók að sér fundarritun.
2. Fyrirliggjandi drög að lögum félagsins tekin fyrir til samþykktar
Tekin voru fyrir drög að lögum félagsins sem voru send út með fundarboði. Farið var yfir hverja grein laganna og hún afgreidd með atkvæðagreiðslu foreldra. Í lokin voru lögin samþykkt samhljóða af foreldrum í heild sinni. Lagadrögunum var breytt nokkuð í umræðum en allar greinar voru síðan samþykktar samhljóða.
3. Kosning í stjórn félagsins
Steinar Harðarson var kosinn formaður. Aðrir stjórnarmenn eru Elsa Soffía Jónsdóttir, Helga Oddsdóttir, Inga Þórólfsdóttir og Irene Moreno Contreras.
4. Kosning endurskoðenda
Endurskoðandi var kosinn Sigurlaug Sigurðardóttir og Dagný Haraldsdóttir til vara.
5. Önnur mál
Rætt var um forvarnarmál og þá einkum um tölvufíkn unglinga. Ákveðið var að halda fund með forráðamönnum um þau mál í febrúar 2009. Einnig var ákveðið að halda stjórnarfund þriðjudaginn 20. janúar 2009 kl. 17.30.
f.h. Elsu Soffíu Jónsdóttur fundarritaraSmelltu hér til að sjá lög félagsins.
