Það rigndi úti en inni var sól í hverju hjarta þegar tæplega 140 nemendur útskrifuðust frá FÁ í dag, föstudaginn 24. maí. Nemendur af 15 námsbrautum voru útskrifaðir, flestir frá félagsfræðabraut, alls 35, af náttúrufræðibraut 16 og viðskipta- og hagfræðibraut 12, svo einhverjir séu tilteknir. Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru við útskriftina í dag:
Útskriftarnemendur komi kl. 13:30
Dagskrá útskriftardagsins:
1. Athöfn sett: Steinn Jóhannsson skólameistari
2. Kórsöngur: Félagar úr sönghóp FÁ.
3. Skýrsla um skólastarfið: Ólafur H. Sigurjónsson aðstoðarskólameistari.
4. Ávarp: Viðar Helgason, fulltrúi 25 ára afmælisstúdenta.
5. Afhending einkunna: Skólameistari, aðstoðarskólameistari og kennslustjórar.
6. Ávarp: Fulltrúi útskriftarnema Heilbrigðisskólans - Þórey Einarsdóttir
7. Jóhann Arnar Þorkelsson, útskriftarnemandi af náttúrufræðibraut og einsöngvari flytur lagið „Í fjarlægð“.
8. Afhending einkunna, framhald
9. Ávarp: Fulltrúi nýstúdenta – Erla Maren Hrafnsdóttir
10. Söngur: Tónlist flutt úr söngleiknum Grease
11. Ávarp og skólaslit: Skólameistari.
12. Myndataka: Íris Mjöll Ólafsdóttir
13. Kveðjuhóf kl. 16:30 fyrir starfsmenn og afmælisstúdenta á kennarastofu.
Sumar minningar fölna aldrei - endurfundir stúdenta og eldri starfsmanna FÁ
Föstudaginn 24. maí er öllum 10 ára, 20 ára, 25 ára og 30 ára júbilöntum boðið til endurfunda við skólann sinn og þó sérstaklega til að sýna sig og sjá aðra - Það er spennandi að sjá hvort/hvernig gömlu skólafélagarnir hafa breyst - er einhver kominn með skalla, er annar með bumbu og er skvísan ennþá sama skvísan?
Tekið verður á móti gestum í anddyri skólans að útskriftarathöfn lokinni kl. 16.30. Gengið verður um ganga og sali og andað að sér gömlum minningum, einnig verður nýbygging skólans skoðuð. Á eftir kynnisferðinni um skólann er júbílöntum og eldri starfsmönnum boðið á kennarastofuna að þiggja hressingu.
Ljúfar myndir frá fyrri árum eru á: http://www.fa.is/fjolbrautaskolinn/afmaelisstudentar/.
Hér má sjá myndir frá 24.maí - hóf fyrir eldri stúdenta: https://www.facebook.com/media/set/?set=a.414272482004305.1073741843.381906895240864&type=1
Prófasýning og frágangur á vali fyrir haustönn verður þriðjudaginn 21. maí kl. 11:00 - 13:00
Nú þegar prófunum er lokið geta menn varpað öndinni léttar og fagnað sumarkomunni. Hér kemur samt ein síðbúin prófspurning ef vera skyldi að einhverja þyrsti eftir fleiri prófum: Hver orti þessa vísu hér að neðan?
Sumarkoma
Úti blæs golan svo himnesk og hlý,
Horfinn er veturinn, trúa má því;
Þrestina heyri ég syngja mót sól:
Sumar er komið um dal og hól.
Gleðilega hvítasunnu!
Nýja grasbrekkan er svo ljúf á að líta að nú fýsir sjálfsagt marga að gerast grænmetisætur. Gras hefur löngum verið mönnum hugleikið, samanber þessa hugleiðingu Jóhannesar úr Kötlum:
Óskiljanlegt er grasið:
maður treður það undir fótum sér
en það reisir sig jafnharðan við aftur.
Óskiljanlegt er grasið:
skepnurnar bíta það og renna því niður
og skila aftur hinu ómeltanlega
– en viti menn:
á því nærist svo nýtt gras.
Já óskiljanlegt er það
hið græna gras jarðarinnar:
auðmýktin og uppreisnin í senn.
Um gagnsemi þess sem ekki er
Hljóðir eru gangar þínir, skólinn minn í Múlanum
Niðurskurður eða uppskurður? Nei, bara skurður.
Hvað viltu verða þegar þú ert orðinn stór?
Þeir sem ekki eru klárir á því að þetta sé kiðlingur, þurfa ekki að lesa lengra…Hott - hott á hesti....Allir knapar í FÁ - takið eftir!