Fyrirsagnalisti
Innritun á haustönn lokið
-
23.6.2006
Föstudaginn 23. júní voru nýjar umsóknir alls 764. Af þeim var 558 boðin skólavist en 206 var hafnað. Nýnemar úr 10 bekk sem fengið hafa skólavist eru 187. Alls hafa 1194 nemendur fengið senda greiðsluseðla.
Sumarsólstöður 21. júní
-
19.6.2006

Sumarsólstöður eru í kringum 21. júní á norðurhveli en 21. desember á suðurhveli. Á sumarsólstöðum á norðurhveli er dagurinn lengstur og sest sólin ekki á öllu svæðinu norðan við nyrðri heimskautsbaug. Einnig er sólin í hvirfilpunkti á hádegi á nyrðri hvarfbaug. Sama gerist á suðurhveli á sumarsólstöðum þar eins og sést á
hreyfimynd á þessari síðu og á þessari
skýringarmynd (sem sýnir sumarsólstöður á norðurhveli).