Skólinn

Mont Blanc ganga 1. júlí 2007

1.7.2007

Félagi úr gönguhópnum Garpi tók þátt í næturgöngu upp á Mont Blanc þann 1. júlí. Gangan var lokaáfangi vikulangrar ferðar um frönsku Alpana sem var skipulögð af Íslenskum fjallaleiðsögumönnum fyrir tólf manna hóp. Mont Blanc er hæsta fjall,,gömlu Evrópu” og er rúmlega 4800 metra hátt.

Mont Blanc gangan hófst síðla dags 30. júní í fjallaþorpinu Chamonix í frönsku Ölpunum. Þaðan var tekinn kláfur og síðan lest upp í 2400 metra hæð. Frá lestarstöðinni var gengið upp í skála sem er í 3200 metra hæð og sofið í nokkra tíma. Stuttu eftir miðnætti var lagt af stað með mannbrodda og ísaxir í niðamyrkri og strekkingsvindi. Þegar komið var í 4350 metra hæð var hvassviðrið og kuldinn svo mikil að frönskum leiðsögumönnum þótti ekki ráðlegt að halda lengra og því var skjögrað til baka.

Þrátt fyrir að aðeins hafi vantað tæpa 500 metra upp á að áfanganum hafi verið náð þá tekst gönguhópnum Garpi vonandi að ljúka honum við fyrsta tækifæri og reisa fána skólans á toppi fjallsins.

mont_045

Fetað sig eftir jöklinum

mont_002

Úlfar íslenskukennari t.h. ásamt Matthíasi ferðafélaga.

mont_003

Litið upp úr klungrinu og horft í kringum sig.



 

Senda grein


Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica