Skólinn

Fréttir

Upphaf vorannar 2009 - 30.12.2008

Opnað verður fyrir stundatöflur nemenda síðdegis þann 4. janúar.

Stundatöflurnar eru aðgengilegar undir valkostinum Mínar síður og í INNU.

Notendanöfn og lykilorð eru þau sömu og á haustönninni.

Nýir nemendur fengu lykilorðin send í pósti. Aðrir nemendur geta nálgast þau á skrifstofu skólans.

Starfsmannafundur verður 5. janúar kl. 10.00.

Töflubreytingar verða 5. janúar kl. 12–15 og 6. janúar kl. 10 – 15.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 7. janúar.

 

Útskrift frá FÁ - 22.12.2008

utskriftdes08_103_2Útskrift frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla fór fram í Háskólabíói föstudag 19. desember. 129 nemendur voru útskrifaðir, þar af þrír af tveim brautum. Í upphafi söng kór skólans nokkur jólalög. Aðstoðarskólameistari fór síðan yfir starfsemi skólans á önninni áður en skólameistari afhenti prófskírteini. Lesa meira
 

Bílastæði - 2.12.2008

Í byrjun haustannar var sett upp aðgangshlið til að stjórna aðgangi að bílastæðum skólans. Samhliða setti skólinn sér samgöngustefnu, sem felur í sér hvatningu til starfsmanna að nota annan samgöngumáta, og nemendum var gefinn kostur á að leigja bílastæði.

Reynslan hefur verið góð. Rúmlega fjórðungur starfsmanna valdi að skilja bíl sinn eftir heima, koma gangandi, hjólandi, á vespu eða með strætisvagni. 145 nemendur sóttu um stæði í upphafi haustannar og fengu 102 nemendur úthlutað stæðum.

Umgengi hefur stórbatnað og aldrei hefur þurft að láta fjarlægja bíl, sem ólöglega hefur verið lagt.

bilastaedi_005

Þetta skipti sér í lagi nemendur okkar á starfsbrautum máli, sem eru í hjólastól og keyrðir og sóttir í skólann.

Í ljósi reynslunnar var ákveðið að bjóða þeim nemendum sem fengu stæði á haustönn að halda því á komandi vorönn. Greiðsluseðlar hafa verið sendir út og nægir að greiða til að staðfesta leiguna. Til viðbótar verður líklega um 50 stæðum úthlutað í byrjun annar og geta nemendur sótt um bílastæði í tölvupósti (fa@fa.is) eða skráð sig á skrifstofu skólans.

Aðgangshliðið verður opið á próftíma.



Lesa meira
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica