Opnað verður fyrir stundatöflur nemenda sunnudaginn 3. janúar 2010.
Lykilorð verða send í tölvupósti
. Sömu aðgangsorð eru í gildi og á síðustu önn.
Nemendur sem eru ekki skráðir með netfang geta sótt aðgangsorð sín á skrifstofu skólans eftir helgi.
Starfsmannafundur verður mánudaginn 4. janúar kl. 10.00.
Töflubreytingar verða 4. janúar kl. 12–15 og 5. janúar kl. 10 – 15.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 6. janúar.
Farsælt nýtt ár.
Útskrift frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla fór fram 19. desember. Athöfnin fór fram að þessu sinni í Digraneskirkju. 107 nemendur voru útskrifaðir, þar af tveir af tveim brautum. Meðtaldir eru þeir nemendur sem luku námi í ágúst.
Aðstoðarskólameistari, Ólafur H. Sigurjónsson, fór yfir starfsemi skólans á önninni. Í máli sínu ræddi hann m.a. um ný framhaldsskólalög sem gefa kennurum og skólafólki tækifæri til að skipleggja námsgreinar og námsbrautir. Einnig benti hann á að nú styttist í að nýbygging skólans verði tekin í gagnið. Gert er ráð fyrir að salur og eldhús verði tilbúin næsta haust. Við það verður allur aðbúnaður nemenda umtalsvert betri en áður hefur verið. Útskrift nemenda eftir brautum var eftirfarandi:
Lesa meira16. desember kl.11:00 til 14:00: Prófasýning og frágangur á vali fyrir vorönn
17. desember kl. 8:30: Endurtektarpróf
18. desember kl. 16:30 æfing fyrir brautskráningu í Digraneskirkju (skyldumæting)
19. desember kl. 14:00 brautskráning í Digraneskirkju, Nemendur komi kl. 13:30
Afhending einkunna: nemendur geta nálgast einkunnir í INNU 16. desember.
Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi þann
3. desember á alþjóðadegi fatlaðra. Eftirtaldir voru tilnefndir:
Kennslu í FÁ lýkur 27. nóvember og við tekur prófatími. Fyrstu prófin eru mánudag 30. nóvember.
Þótt mörgum þyki gott að vera laus við kennara og kennslustundir þá er prófatíminn álagstími sem þarf að skipuleggja vel. Það er mikilvægt að fá nægan svefn og stunda holla hreyfingu til að hafa nægt úthald í próflestrinum.
Nánari upplýsingar um prófaundirbúning og skipulag er að finna á þessari síðu (Prófaundirbúningur). Prófreglur og upplýsingar um fyrirkomulag prófa má finna hér.
Lesa meiraSíðastliðinn föstudag dimmiteruðu útskriftarnemar í FÁ. Hópurinn var allur klæddur í sérsaumaða þýska búninga sem móðir eins nemandans hafði lagt nótt sem nýtan dag í að sauma. Þýsk alpatónlist skapaði skemmtilega stemningu og var ekki laust við að viðstaddir dilluðu sér með í takt. Sumir jóðluð jafnvel.
Hátíðin heppnaðist vel og höfðu viðstaddir á orði að skipulagning hefði verið góð. Í útskriftarmyndbandinu var gert góðlátlegt grín að kennurum og ýmsum þáttum í skólalífinu. Síðan voru kennarar og starfsmenn kallaðir upp á svið og þeim veittar hinar ýmsu háalvarlegar viðurkenningar.
Að dagskrá lokinni bauð Gísli skólameistari til veislu á kennarastofunni þar sem í boði var smurbrauð, sætar kökur og kóladrykkir.
(Smellið hér til að skoða fleiri myndir frá deginum.)
Lesa meira
BÍÓ áfangarnir verða með mikla frumsýningarveislu í næstu viku. Úrvalið verður af fjölbreyttu tagi, bæði stuttmyndir og heimildarmyndir sem nemendur hafa unnið. Sýningar verða í hádeginu á Steypunni.
Nemendur eru hvattir til þess að kynna sér það sem hóparnir hafa verið að gera á önninni. Hver veit nema framtíðar Cameron, Coppola eða Hrafn Gunnlaugsson leynist meðal BÍÓ-þátttakendanna?
Með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan er hægt að sjá hluta af því sem BÍÓ – nemendur hafa verið að fást við.
mms://media.fa.is/BIO/bio_kynning.wmv
Lesa meira
16. nóvember er Dagur íslenskrar tungu. Dagurinn er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar skálds og hefur verið haldinn hátíðlegur síðan 1996. Deginum hefur einnig verið bætt við fánadagana og því blaktir íslenski fáninn við hún fyrir utan skólann.
Til hátíðarbrigða ætlar Dagur Sigurðsson tónlistarmaður að syngja nokkur lög á Steypunni klukkan 12. Einnig verður hægt að taka þátt í laufléttri lauflétt getraun tengdri Jónasi. Dregið verður úr réttum svörum og eru verðlaunin bíómiðar á íslensku myndina Desember.
Lesa meira
Lokið er skráningu í leikfélag FÁ. Stefnt er að því að setja upp sýningu í apríl á næsta ári. Í fyrra sýndi leikhópurinn Bítlasöngleik á NASA við mikla hrifningu áhorfenda. Væntanlega verður næsta sýning jafn góð ef ekki betri því mikill áhugi hefur verið meðal nemenda á að taka þátt í starfinu. Um 40 þátttakendur hafa skráð sig í félagið.
Lesa meira
Undanfarna daga hefur stórt skarð verið höggvið í núverandi og fyrrverandi nemendahóp á sérnámsbraut í FÁ. Lilja Kjartansdóttir andaðist í 19. október. Lilja hóf nám hér á sérnámsbraut haustið 2007.
Kristinn Örn Friðgeirsson andaðist 17. október. Kristinn lauk námi á sérnámsbraut vorið 2006. Við sendum aðstandendum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Lesa meira
Veðurspáin var ekkert sérstök en útivistarhópur FÁ ákvað samt að fara í áður auglýsta gönguferð um Hengilssvæðið 8. október síðastliðinn. Gengið var upp frá Rjúpnabrekkum í Hveragerði um ótroðinn slóða upp að Reykjadal. Eftir því sem ofar dró þyngdist færðin en þeir sem voru vel skóaðir þrömmuðu þetta eins og ekkert væri.
Lesa meira
Nordplus samstarfið er milli fimm skóla. Þeir eru á Íslandi, í Haminan í Finnlandi, Paide í Eistlandi, Saldus í Lettlandi og Mazeikiai í Litháen. Fyrsti fundurinn var á Íslandi í mars sl. en annar fundurinn var í Eistlandi, Litháen og Lettlandi dagana 10. til 17. september sl. Á þann fund fóru tveir kennarar, Eiríkur Brynjólfsson og Gerður Hannesdóttir og fjórir nemendur, Anna Kristín Einarsdóttir, Bergþóra Fanney Einarsdóttir, Sigríður Karlsdóttir og Sveinn Einarsson. Hópurinn ætlar að kynna verkefnið og ferðina og sýna myndir á miðvikudaginn kemur klukkan 12.10 í stofu M26.
Lesa meira
Þriðja gönguferð útvistarhópsins ÍÞR141 á haustönn 2009 verður farin fimmtudaginn 8. október. Áætlað er að ganga yfir Bitruháls á Hengilssvæði og skoða hverasvæðið við Klambragil og í Reykjadal. Mæting í FÁ er klukkan 9 og áætlaður göngutími á Hellisheiðinni er 5 klukkustundir. Spáð er suðaustan kalda (9 m/s) og eins stigs frosti.
Undirbúningsfundur í hádegi kl. 12.10 miðvikudaginn 7. október í stofu M26.
Upplýsingar um gönguferðina eru á /felagslif/utivist/
Lesa meiraJafndægur, sú stund þegar sól er beint yfir miðbaug jarðar. Þetta gerist tvisvar á ári, á tímabilinu 19.-21. mars (vorjafndægur) og 21.-24. september (haustjafndægur). Um þetta leyti er dagurinn (frá sólarupprás til sólarlags) um það bil jafnlangur nóttinni hvar sem er á jörðinni, og af því er nafnið dregið. Breytileiki dagsetninganna stafar aðallega af því að almanaksárið er ekki nákvæmlega jafnlangt árstíðaárinu, og samræmingin við árstíðaárið verður að gerast í stökkum, með aukadegi í hlaupárum. (Almanak Háskóla Íslands)
Á vorönn 2009 bjuggu nemendur í BÍÓ203 til sjö kynningarmyndir fyrir Heilbrigðisskólann í FÁ. Tilgangur myndanna var að kynna á lifandi hátt verknám og starfsþjálfun á starfsmenntabrautum Heilbrigðisskólans. Nemendur Heilbrigðisskólans léku í myndunum og nemendur Þórs Elísar Pálssonar unnu myndirnar með hjálp hans. Myndirnar má sjá með því að smella hér á vef skólans /heilbrigdisskolinn/myndbrot/ eða velja tengil á næstu síðu.
Lesa meira
Nýlega lauk ljósmyndasamkeppni Morgunblaðsins. Þrjár stúlkur eru skráðar fyrir þeirri mynd sem sigraði. Það eru Rebekka Ragnarsdóttir, María Árnadóttir og Dísa Mai Thi Jósepsdóttir. Tvær þessHvað gera nemendur í FÁ að loknum skóladegi á föstudegi? Svarið er augljóst; þeir klæða sig í gönguskó og fara í fjallgöngu! Sautján nemendur tóku þátt í göngu á Vífilsfell (655 m) á föstudag. Þetta var fyrsta gangan af fjórum sem skipulagðar eru í tengslum við ÍÞR141. Vífilsfell er ekki sérstaklega hátt en það er bratt og nokkuð erfitt uppgöngu. Það fékk hver að halda sínum takti í göngunni. Sumir fóru hægt yfir en aðrir hraðar. Allir urðu samt mjög móðir.
Næsta ferð í ÍÞR141 er yfir Fimmvörðuháls 17. – 18. september. Vegalengd er 22 km og hækkun um 1000 metrar. Áætlaður tími í göngu er 8-9 tímar. Kynningarfundur varðandi ferðina verður miðvikudag 9. september kl. 12.10 í stofu M26.
Lesa meiraSvona gengur bara hreint ekki! Er þetta spurning um leti, greindarskort eða hvort tveggja? Þeir sem eru gangandi og hjólandi geta varla smokrað sér framhjá þessum bíl. Þeir sem eru fatlaðir í hjólastólum geta alls ekki komist þarna framhjá og þurfa að snúa sér við og fara út á götu.
Eitt getum við í FÁ huggað okkur við. Það eru örugglega engir nemendur í FÁ svona heimskir að þeir geri sér ekki grein fyrir þessu. Þetta getur ekki verið nemandi sem leggur svona – er það?
Lesa meiraHefurðu áhuga á útivist og fjallgöngum? Hefurðu gaman af að reyna svolítið á þig og bæta jafnvel úthaldið? Langar þig að geta bent á fjall í fjarska og sagt: „Sjáið tindinn, þarna fór ég!“ Ef svarið er „já“ þá ættirðu að skrá þig í ÍÞR141. Það geta allir tekið þátt. Eina sem farið er fram á er góður skóbúnaður og hlýr fatnaður.
Tveir kennarar sjá um fararstjórn. Nemendur þurfa að fara í a.m.k. tvær ferðir af fjórum til að fá eina einingu fyrir áfangann.
Lesa meira
Svokallaðar busavígslur fara fram í framhaldsskólum landsins þessa dagana. Í Fjölbrautaskólanum við Ármúla fór þessi ,athöfn‘ fram í gær, fimmtudag 27. ágúst, fyrir hádegi. Hún hófst með því að eldri nemendur smöluðu nýnemum út úr stofum og út á tún. Þar máttu þeir dúsa jarmandi inni í rétt þangað til þeir voru leiddir einn af öðrum í gegnum þrautabraut. Í henni þurfti að yfirstíga alls kyns hindranir og innbyrða einhvers konar ómeti áður en nýnemum var gefið frelsi á ný. Eftir það fengu þeir klapp á bakið og árnaðaróskir frá þeim eldri.
Nýnemar og ,böðlar‘ þeirra gæddu sér síðan á pulsu og kók í lokin á stéttinni fyrir framan skólann.
Lesa meira
Skólahald er komið á fullan skrið í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Nýnemar í ár sem koma úr 10. bekk eru um 150 talsins.
Útivistardagur (busavígsla) verður fimmtudaginn 27. ágúst og hefst athöfnin kl. 9.55. Kennsla fellur því niður frá þeim tíma. Við hvetjum eldri nemendur til að aðstoða nýnema á allan hátt og sýna í verki að þeir eru velkomnir í skólann.
Lesa meira
Námsmenn í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um að kaupa strætókort sem gildir allan veturinn. Verð er kr. 15.000. Einnig er hægt að kaupa kort fyrir hvora önn á 8.000 kr.
Umsókn fer fram á vefsvæði Strætó https://www.straeto.is/kortasida og verður mynd að fylgja umsókninni. Kortið gildir fyrir þann sem er skráður fyrir því.
Lesa meiraSkólastarfið á haustönn hefst á hefðbundinn hátt með fundi starfsmanna fimmtudaginn 20. ágúst.
Sama dag opnast aðgangur nemenda að stundatöflum sínum í gegnum Mínar síður eða INNU fyrir nemendur. Aðgangsorðin fá nemendur send í tölvupósti eða pósti. Á Mínum síðum finnur nemandinn bókalista yfir þá áfanga sem hann er skráður í. Bókalisti yfir alla áfanga er undir flýtivali á heimasíðu skólans.
Nýnemum er boðið á fund með umsjónarkennurum sínum fimmtudaginn 20. ágúst kl. 13.
Töflubreytingar fara fram í skólanum fimmtudaginn 20. ágúst kl. 13.00-17.00 og föstudaginn 21. ágúst kl. 9.00-16.00.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 24. ágúst.
Framhaldsnám sjúkraliða byrjar 28. ágúst skv. stundatöflu.
Skólinn hefur 150 bílastæði til að úthluta nemendum og verða stæðin leigð frá 24. ágúst til 30. nóvember 2009 á kr. 8000. Nemendur geta sótt um stæði á skrifstofu skólans eða með því að senda tölvupóst á fa@fa.is. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans.

150 bílastæðum við skólann verður úthlutað til nemenda á haustönn. Stæðin verða leigð frá 24. ágúst til 30. nóvember 2009 á kr. 8000. Nemendur geta sótt um stæði á skrifstofu skólans eða með því að senda tölvupóst á fa@fa.is.
Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að nota annan samgöngumáta en einkabílinn. Rúmlega fjórðungur starfsmanna valdi á síðustu önn að skilja bíl sinn eftir heima, koma gangandi, hjólandi, á vespu eða með strætisvagni.
Skólastjórn Fjölbrautaskólans við Ármúla beinir þeim eindregnu tilmælum til nemenda að þeir leggi ekki bílum sínum í merkt stæði fyrirtækja og heimila í nágrenni skólans. Nóg er af bílastæðum við Laugardalshöllina sem er í 5 mín göngufjarlægð frá skólanum.
Lesa meira
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá 24. ágúst. Töflubreytingar verða 20. - 21. ágúst. Kennarfundur 20. ágúst. Nánari tímasetning síðar.
Skrifstofa skólans er lokuð til 4. ágúst vegna sumarleyfa. Þeir sem þurfa nauðsynlega að hafa samband við skólann er bent á eftirfarandi netföng: Skólameistari; gisli@fa.is, Aðstoðarskólameistari; ohs@fa.is, Fjármálastjóri; eddab@fa.is, Fjarnámsstjóri; fjarnam@fa.is.
Umsóknarfrestur um skólavist rann út 11. júní.
Í dag 16. júní hafa borist 652 nýjar umsóknir og skólinn getur ekki tekið við nema litlum hluta þessa umsækjenda, því miður.
Svarbréf ásamt greiðsluseðli er sent á lögheimili. Við viljum minna nemendur á að mjög mikilvægt er að greiða greiðsluseðlana á réttum tíma. Með greiðslu innritunargjalds er umsóknin staðfest. Ef ekki er greitt á réttum tíma er litið svo á að nemandinn hafi fallið frá umsókn sinni og verða þá aðrir teknir inn í staðinn.
Síðasti dagur til að sækja um skólavist í framhaldsskóla
haustið 2009 er fimmtudagur 11. júní.
Nemendur sækja um rafrænt á heimasíðu Menntagáttar. Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá bréf með leiðbeiningum og veflykli sem opnar þeim aðgang að innrituninni. Forráðamenn þeirra fá einnig bréf frá menntamálaráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Aðrir nemendur geta sótt um veflykil á og fá hann sendan til sín í netpósti.
Smelltu á myndina til að innrita þig rafrænt.
Í vor útskrifuðust frá skólanum 144 nemendur, þar af 6 af tveim brautum og einn af þrem brautum. Athöfnin fór fram fimmtudaginn 21. maí í Háskólabíói.
(Sjá myndir með því að smella hér.) Myndir hér líka.
Gísli Ragnarsson skólameistari setti hátíðina sem hófst með söng kórs skólans en síðan flutti Ólafur Hjörtur Sigurjónsson aðstoðarskólameistari skýrslu um skólastarfið á önninni. Skólameistari ásamt kennslustjórum hverrar deildar afhentu síðan einkunnir.
Útskriftarnemarnir Kolbrún Ósk Hrafnsdóttir og Tinna Eiríksdóttir fluttu ræður. Kolbrún fyrir hönd nemenda heilbrigðisskólans og Tinna fyrir hönd nýstúdenta. Þorsteinn J. Vilhjálmsson, sem fagnar 25 ára stúdentsafmæli frá skólanum, flutti ræðu fyrir hönd síns útskriftarárgangs.
Skólameistari flutti að lokum kveðjuræðu og óskaði útskriftarnemum velfarnaðar og gleðilegs sumars.
Lesa meira
Ef þú ert eitthvað í vafa með útreikninga kennarans þá er tækifæri í dag, miðvikudag, til að skoða prófin og fá útskýringar kennara. Einkunnir nemenda birtast í INNU en prófasýning verður milli klukkan 11 og 14. Einnig er gott að nemendur komi og hitti umsjónarkennara sinn ef þeir ætla að breyta miklu varðandi val sitt eða eru óákveðnir varðandi val fyrir næstu önn.
Þótt þú eigir ekkert erindi í skólann væri samt gaman að sjá þig, taka í höndina á þér og segja: ,,TAKK FYRIR ÖNNINA OG GLEÐILEGT SUMAR!“
Lesa meira
Ertu íslenskur ríkisborgari á aldrinum 20-29 ára og hefurðu áhuga á að komast til Japans? Nú er tækifærið því stjórnvöld í Japan hafa ákveðið að bjóða nokkrum ungmennum í tíu daga kynnisferð í haust. Þátttakendum gefst tækifæri til að kynnast japönsku þjóðfélagi og upplifa daglegt líf á japönsku heimili. Það eina sem þú þarft að gera til að eiga möguleika á að komast með er að skrifa á ensku eina A4 síðu um hvað þar er sem heillar þig við Japan. Ritgerðinni, ásamt ferilskrá og upplýsingum um þátttakanda, á að skila til Sendiráðs Japans á Íslandi, ekki síðar en fimmtudaginn 4. júní.
Lesa meira
Út er komið blaðið Kronika sem hefur komið út sem skólablað í Fjölbrautaskólanum við Ármúla frá árinu 1994. Ritstjóri blaðsins í ár er Ari Brynjólfsson en aðrir í ritnefnd eru Guðrún Svava Kristinsdóttir, Kristján Hafþórsson og Folda Guðlaugsdóttir.
Efni blaðsins í ár er fjölbreytt, fyndið og fræðandi. Sérstaklega er grein Ara um ferð BÍÓ-hópsins úr FÁ til Berlínar skemmtileg. Því miður tókst ekki að gefa blaðið út í pappírsformi vegna kreppunnar sem ríkir í þjóðfélaginu. Þetta ágæta blað er samt hægt að nálgast á pdf-sniði með því að smella á þennan tengil hér. Sömuleiðis má nálgast eldri árganga hér.
Lesa meiraÚtskriftarnemar kvöddu skólann sinn á hefðbundinn hátt síðastliðinn föstudag. Flestir nemanna voru íklæddir bláum búningum og léku svokallað ,,Cookie Monster“ eða Kökuskrímslið sem er þekkt persóna úr amerísku barnaefni. Eftir dans og hopp og hí á palli þar sem kennarar voru kallaðir upp og ,,heiðraðir“ á misjafnan hátt var sýndur myndbandsannáll. Loks fengu kökuskrímslin kökur og snittur á kennarastofunni.
(Hér má sjá myndbandsannál útskriftarhópsins)
(Fleiri myndir frá dimmisjón má sjá hér.)
Lesa meiraVerið velkomin á opið hús í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Þriðjudag 21. apríl Kl. 17 – 19.
Námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans verður kynnt.
Lesa meiraÞað eru sannarlega mörg Búrfell á Íslandi. Laugardaginn 28. mars var farin önnur Búrfellsganga útivistar- og fjallgönguhópsins ÍÞR141. Í þetta skipti var stefnt á Búrfell í Heiðmörk.
Fámennur hópur var samankominn í anddyri skólans á tilsettum tíma kl. 9. Fjórir kennarar og tveir nemendur. Hvar voru allir nemendurnir sem höfðu skráð sig í gönguna?
(Framhald á ferðasögunni má finna hér. Smelltu svo hér til að sjá myndir úr ferðinni.)
Lesa meira
Fimmtudag 16.apríl er bleikur dagur í skólanum. Dagurinn er tileinkaður jafnréttisbaráttu kvenna og feminisma. Í skólanum er búið að hengja upp veggspjöld með ýmsum staðreyndum um bág kjör kvenna í heiminum og ójafnrétti. Sóley Tómasdóttir mun halda fyrirlestur á Steypunni í hádeginu og settur verður upp kynningarbás frá UNIFEM. Nemendur og kennarar eru hvattir til að mæta í bleiku í tilefni dagsins.
Einnig er í undirbúningi að stofna jafnréttisráð við skólann sem hefði það hlutverk að vera umræðuvettvangur fyrir áhugasama kennara og nemendur um jafnrétti innan skólans.
Lesa meira
Sagt er fyri Vori
Vetur flúi!
Hvergi hann þó flýr
en færist ofar!
Vor skríður undir,
Vetrar er yfir
bringa breið
um bláloft gnæfandi.
Þannig yrkir Bjarni Thorarensen um veturinn. Blóm sem Vetur svæfði í haust eru byrjuð að rumska í hálffrosinni moldinni. Fyrstu vorboðarnir eru marglitir krókusar og lyklar sem minna okkur á að sumar er skammt undan – og aðeins 11 kennsludagar eftir af skólaárinu. Kennsla hefst að loknu páskaleyfi miðvikudag 15. apríl.
Lesa meira
Staða skólanna
Eins og fram kom í fyrri frétt hér á heimasíðunni tóku nemendur í Við 113 áfanganum þátt í Vörumessu í Smáralind um helgina. Krakkarnir stóðu sig einstaklega vel og unnu verðlaun fyrir besta sölubásinn á vörumessunni. Tvenn verðlaun voru í boði. Annars vegar fyrir besta sölubásinn og hins vegar fyrir besta sölumanninn. Það var fyrirtækið Orðlaus sem fékk verðlaunin.
Lesa meira
Nemendur í markaðsfræði (VIÐ 113) hafa þessa önnina unnið hörðum höndum við að stofna fyrirtæki, framleiða vöru og selja. Markaðsfræðihópurinn tekur þátt í Fyrirtækjasmiðju Ungra Frumkvöðla og kynna sínar vörur á vörumessu í Smáralind (á jarðhæð hjá Hagkaup) í dag, föstudag kl. 16-19 og á morgun, laugardag frá kl. 11-15. Tvö fyrirtæki keppa frá FÁ þetta árið, Nice Travel sem er með Íslandskort með viðburðum um allt land í sumar og Orðlaus sem bjó til Íslenskukennsluforrit fyrir nýbúa á fjórum tungumálum.
Við hvetjum alla til að koma um helgina og styðja við bakið á krökkunum.
Lesa meiraLaugardag 28. mars fer útvistar- og fjallgönguhópur nemenda upp á Búrfell og Húsfell í Heiðmörk. Hægt verður að velja um tvær leiðir. Annars vegar upp með Búrfellsgili og sömu leið til baka (u.þ.b. 2 klst. ganga) eða að ganga hring um Búrfell, Húsfell og Helgafell (5-6 klst.). Mæting kl. 9 í anddyri skólans. Nánari upplýsingar um gönguna eru á heimasíðu áfangans (sjá hér).
Fyrir mánuði síðan fór útivistar- og fjallgönguhópurinn á Búrfell í Þingvallasveit í blíðskaparveðri. Hér á eftir má sjá myndir og lesa frásögn Ólafs Konráðs Albertssonar úr ferðinni:
Lesa meira
Rannsóknir sýna að um 10% almennra nemenda eigi við einhvers konar lestrarerfiðleika að etja. Á tækni- og tölvuöld eru auðvitað til ýmis hjálpartæki sem auðvelda lesturinn, s.s. snældur, geisladiskar og talgervlar. Fjölbrautaskólinn við Ármúla reynir á ýmsan hátt að styðja nemendur sem eiga við lestrarerfiðleika að stríða. Ein leiðin er að búið er að setja talgervil, eða vefþulu eins og sumir kalla forritið, inn á flestar tölvur í skólanum sem nemendur hafa aðgang að. (Sjá nánar hér.)
Lesa meira
Þann 20. - 21. mars ár hvert sker sólin vorjafndægrapunktinn. Sólin stefnir þá í norðurátt yfir miðbaug himins og fer hækkandi á himninum. Þessi dagsetning markar þar af leiðandi upphaf vors á norðurhveli jarðar. Hálfu ári síðar eða 22. september sker sólin haustjafndægrapunktinn. Sólin stefnir þá í suðurátt undir miðbaug himins og fer lækkandi á himninum. Mynd af þessu. Þessi dagsetning markar upphaf hausts á norðurhveli jarðar. Þar sem árstíðir eru gagnstæðar á norður- og suðurhvelinu markar vorjafndægur hjá okkur komu hausts hjá íbúum í Suður-Ameríku, Ástralíu og sunnanverðri Afríku.
Aðeins 21 kennsludagur eftir til prófa
Stjórnvöld í Japan bjóða upp á styrk til námsdvalar í Japan fyrir evrópsk ungmenni á framhaldsskólastigi. Markmið styrkveitinganna er að ýta undir nemendaskipti milli svæðanna og renna stoðum undir aukin skilning milli Japans og Evrópu. Annars vegar er boðið upp á styttri 5 vikna dvöl og hins vegar lengri 5 mánaða dvöl fyrir styrkþega. Á meðan að á dvölinni stendur, munu styrkþegar sækja japanska skóla, dveljast á venjulegum japönskum heimilum og taka þátt í ýmsum viðburðum í Japan. Á árinu 2009 verða alls veittir tveir styrkir til íslenskra nemenda, einn styrkur til styttri dvalar og annar til lengri dvalar.
Lesa meira
Fyrsti dagur Árdaga FÁ tókst einstaklega vel og var þátttaka nemenda í sýningum og atriðum mjög góð. Gísli skólameistari setti hátíðina að lokinni kennslu klukkan 10 og síðan voru flutt tvö lög úr Bítlasöngleiknum.
Framheimilið fylltist af fólki klukkan 10.30 og var nánast hvert einasta sæti á pöllunum setið. Eftir hopp og hamagang keppti lið nemenda við kennara í knattspyrnu. Mjótt var á mununum en nemendur höfðu þó sigur.
Fjörið magnaðist eftir hádegi því þá opnuðu útskriftarnemar kaffihús á Steypunni og nýbúar úr hópi nemenda kynntu lönd sín og sýndu dans. Þarna voru atriði frá Kólumbíu og Guyana og horfðu mjaðmastirðir Íslendingar öfundaraugum á suðrænar drottningar sveifla sér í Cumbia og fleiri dönsum. (Smelltu á þennan tengil til að sjá myndir frá Árdögum.) Fleiri myndir hér
(Í RÚV kom frétt um Árdagana. Hægt er að skoða fréttina með því að smella hér.)
Lesa meira
ÁRDAGAR FÁ hefjast í dag, þriðjudag. Kennt verður samkvæmt stundatöflu fyrstu tvo tímana.
Kl. 10:00 verða Árdagar settir með stórgóðu tónlistaratriði úr Bítlasöngleiknum. Síðan hefst ÍÞRÓTTAHÁTÍÐ í Framheimilinu - ALLIR AÐ MÆTA!
Kl. 12:30 opnar kaffihús á Steypunni þar sem verður TÓNLIST, DANS OG MATUR. Nýbúar skólans verða með kynningar. KYNNIÐ YKKUR DAGSKRÁ DAGSINS!
Lesa meira
Fallegur karlkennari við skólann vakti athygli ritstjóra heimasíðunnar á því að um helgina hefði verið keppt í reykvískri fegurð. Leikar fóru fram á sviði Broadway og að lokum stóð Magdalena Olga Dubik uppi sem sigurvegari – ungfrú Reykjavík. Magdalena er 22 ára fiðlusnillingur sem hefur verið í námi í Listaháskólanum í Hannover en stefnir nú á stúdentspróf frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Það voru fleiri FÁ-fljóð sem vermdu efstu sætin í keppninni. Elísa Guðjónsdóttir varð í þriðja sæti og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir fékk flest símaatkvæði.
(Mynd fengin af mbl.is. Ljósmyndari:Ómar. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.)
Lesa meira
Árdagar verða settir með pompi og prakt á þriðjudag, dagskrá sjá hér. Eftir setningu er skyldumæting á glæsilega íþróttahátíð í Framheimilinu. Það þarf enginn að hafa áhyggjur af því að missa af viðburðum í skólanum því að þeir hefjast ekki fyrr en að íþróttahátíðinni lokinni. Munið svo öll að það verður KENNT FYRSTU TVO TÍMANA alla Árdagana og því mæta allir í sína venjulegu tíma samkvæmt stundatöflu!
Lokaskráning í ferðir, sjá hér, er á miðvikudag, 25. febrúar, klukkan 12.00 – 14.00. Hægt er að velja um hátt í 30 ferðir svo að allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Lesa meira
Önnur gönguferð útvistarhópsins verður farin laugardaginn 28. febrúar og er áætlun að ganga á Búrfell í Þingvallasveit. Allir þeir sem ætla að taka þátt í göngunni verða að mæta á undirbúningsfund í dag, 23. febrúar, kl. 15.40 í stofu M26. Farið verður yfir nauðsynlegan útbúnað og klæðnað.
Síðasta ganga hópsins var að Tröllafossi. Smellið hér til að lesa frásögn og skoða fleiri myndir úr þeirri ferð.
Lesa meira
Í dag er Handabandadagurinn mikli í FÁ. Forvarnarhópur skólans hvetur alla til að heilsa og taka í höndina á að minnsta kosti þremur sem viðkomandi er ekki vanur að heilsa. Einnig á að kynna sig með nafni.
Höfum það að markmiðið að þekkja sem flesta í kringum okkur í skólanum. Góður kunningsskapur á milli nemenda og kennara skapar jákvæðara andrúmsloft og skemmtilegri skóla. Heilsumst!
Lesa meira
Árdagar, galopnir og óvenju skemmtilegir dagar í Fjölbrautaskólanum við Ármúla, nálgast nú. Þetta verða þriðjudagur 3. mars., miðvikudagur 4. mars, (ferðir, sjá nánar hér) og fimmtudagur 5. mars. Alla dagana verður kennt í fyrstu tveimur kennslustundum. Nemendur mega þó búast við því að ýmislegt verði á annan máta en venjulega í þessum kennslustundum. Þriðjudag verður furðufatadagur og eru allir, jafnt nemendur sem kennarar, hvattir til að draga fram allt þetta furðulega sem þeir klæðast ekki alla jafna hversdags. Þennan dag verða Árdagar settir með látum og síðan taka við margskonar atburðir í skólanum og í Framheimili fram eftir degi.
Lesa meira
Með því að leggja bílum þvert meðfram girðingu við nýbygginguna fást nú fleiri stæði (sjá mynd). Þess vegna er hægt að úthluta 15 bílastæðum til viðbótar. Mikilvægt er að bílstjórar leggi bílum sínum vel og taki ekki óþarflega mikið pláss.
Aðgangskortin eru afgreidd hjá fjármálastjóra. Smelltu hér til að sjá lista yfir þá heppnu.
Greiðsluseðlar verða sendir í pósti. Hafi nemendur ekki greitt leiguna fyrir eindaga verður aðgangi þeirra lokað og stæðið úthlutað öðrum. Að lokum má benda á gjaldfrjáls bílastæði við Laugardalshöll sem er í 5 mín. göngufjarlægð frá skólanum.
Eins og fram kom hér á heimasíðunni fyrir stuttu var Fjölbrautaskólinn við Ármúla valinn til að taka þátt í þýsku umhverfiskvikmyndaverkefni: Jugend denkt um Welt. Kvikmyndaáfanginn Bíó103 (síðar Bíó203) tók verkefnið að sér og naut leiðsagnar Thomas Frick, þýsks auglýsingaleikstjóra, sem dvaldi hér í eina viku og kenndi nemendum handritsgerð. Hápunktur verkefnisins var ferð til Berlínar þar sem BíÓ203 hópurinn slóst í för með krökkum frá Króatíu, Póllandi, Frakklandi og Þýskalandi. Dagskráin í Berlín var þéttskipuð og einkenndist af fyrirlestrum á þýsku og sinfóníuferðalögum. Margt bar fyrir augu, ný vinabönd mynduðust og ýmislegt skemmtilegt kom upp á í ferðinni. Ferðasaga hópsins verður rakin í næsta tölublaði Króniku í vor. (Hér er stutt klipp þar sem m.a. má sjá hluta íslenska hópsins.)
Lesa meira
Jarðvinnsla við nýbygginguna er hætt í bili. Því er hægt að úthluta 15 bílastæðum til viðbótar í dag. Alls fá því 107 nemendur bílastæði á vorönninni. Aðgangskortin eru afgreidd hjá fjármálastjóra.
Smelltu hér til að sjá lista yfir þá heppnu.
Leiga á bílastæði er kr. 6000 fyrir önnina, frá 10. febrúar-30. apríl. Greiðsluseðlar verða sendir í pósti. Hafi nemendur ekki greitt leiguna fyrir eindaga verður aðgangi þeirra lokað og stæðið úthlutað öðrum.
Svo má benda á gjaldfrjáls bílastæði við Laugardalshöll sem er í 5 mín. göngufjarlægð frá skólanum.
Lögreglan kom í dag til að vara þá nemendur við sem leggja bílum sínum ólöglega eða í merkt stæði fyrirtækja. Á morgun verður lögreglan með kranabíl og sektar eigendur þeirra bíla sem lagt er ólöglega (t.d. upp á gangstétt). Sekt fyrir að leggja ólöglega er kr. 2.500 og ef bíllinn verður dreginn í burtu kostar kr. 12.300 að leysa hann út aftur. Næg bílastæði eru við Laugardalshöllina í 5 mín. göngufjarlægð.
Lesa meira
Recall 2008 er nýr námstæknihugbúnaður sem er hannaður með það fyrir augum að auðvelda námsmönnum allt nám. Recall 2008 er í stuttu máli forrit sem er ætlað að halda utan um allar glósur á þægilegan hátt. Einnig nýtist forritið til að spyrja út úr glósunum og leggja próf fyrir nemandann þannig að hann viti hvar hann stendur í náminu. Recall undirbýr fyrir prófin á fljótlegan og þægilegan hátt. Fimmtudag 29. janúar kl. 15.40 verður kynning og kennsla á Recall 2008 í stofu M23. Nánari upplýsingar um Recall er að finna á www.recall.is
Lesa meira
Hafiði heyrt það betra? Skólayfirvöld eru að benda á að þeir sem sem vilja geyma bílinn sinn á öruggum stað í stuttri fjarlægð frá skólanum geti lagt honum við Laugardalshöllina. HAH! Þetta lið hlýtur að vera að grínast? HALLÓ!...Laugardalshöllina? Nei, sénsinn! Ég fer sko ekki að leggja fyrir ofan Laugardalshöllina rétt hjá Suðurlandsbrautinni og þurfa að LABBA í fjórar til fimm mínútur að skólanum. Frekar eyði ég hálftíma í að keyra nokkra hringi um hverfið og leita að stæði aðeins nær. Verst hvað ég er komin með mörg SEINT samkvæmt Innu. Nú eða þá ég treð mér inn í þröngt stæði hjá einhverju fyrirtækjanna í grenndinni. Það getur ekki skipt miklu máli þótt ég taki bílastæði frá stirðu og gigtveiku fólki sem er að fara í sjúkraþjálfun í Gigtlækningastöðina þarna rétt hjá. Aðalmálið er að ÉG, ÉG, ÉG þurfi ekki að labba of langt í skólann!
Lesa meira
Nemendahópur sem er í kvikmyndaáfanga í FÁ vinnur nú hörðum höndum að gerð sjónvarpsauglýsingar. Verkefnið er hluti af samevrópsku verkefni fyrir ungt fólk og auk Íslands taka Frakkland, Pólland og Króatía þátt í verkefninu. Markmiðið er að vekja ungt fólk til umhugsunar um umhverfi sitt og er yfirskrift verkefnisins ,,Jugend denkt um welt“. Í lok þessa mánaðar hittast þátttakendur á ráðstefnu í Berlín og vinna í framhaldinu að lokagerð auglýsinga sem verða sýndar um alla Evrópu.
Lesa meira
Skólastjórn Fjölbrautaskólans við Ármúla beinir þeim eindregnu tilmælum til nemenda að þeir leggi ekki bílum sínum í merkt stæði fyrirtækja og heimila í nágrenni skólans. Við höfum vitneskju um að sjúklingar sem leita til Gigtlækningastöðvarinnar í Ármúla 5 hafi átt í miklum erfiðleikum að sækja meðferðartíma vegna bílastæðavanda. Það er algjörlega óviðunandi.
Ágætu nemendur! Við skorum á ykkur að virða rétt nágranna okkar.
Skólastjórn FÁ

Nóg er af bílastæðum við Laugardalshöllina sem er í 5 mín. göngufjarlægð frá skólanum.
Í dag var tekinn í notkun nýr inngangur í Ármúla 10. Í stað þess að ganga inn verslanamegin er gengið upp stiga á austurhlið hússins. Þessi inngangur verður aðalinngangur framvegis fyrir N-stofur skólans. Stigahurð í anddyri er nú lokuð inngöngu en nýtist sem brunaútgangur.
Lesa meira
37 nemendur fengu úthlutað bílastæðum í dag og bætast þeir við hóp 55 nemenda sem þegar höfðu fengið stæði í lok haustannar. Aðgangskortin eru afgreidd á skrifstofu skólans.
Smelltu hér til að sjá lista yfir þá heppnu.
Greiðsluseðlar voru sendir í dag og kostar leiga á bílastæði kr. 8000 fyrir önnina, frá 11. janúar - 30. apríl. Hafi nemendur ekki greitt leiguna fyrir eindaga verður aðgang þeirra lokað og stæðið úthlutað öðrum.
Fleiri stæðum verður úthlutað þegar jarðvinnslu við nýbygginguna lýkur innan fárra daga og fá þá þeir sem sóttu um núna annað tækifæri. 40 nemendur eru á biðlista og er ekki ólíklegt að flestir geti fengið stæði.
Svo má benda á gjaldfrjáls bílastæði við Laugardalshöllina sem er í 5 mín. göngufjarlægð frá skólanum.
Nú eru síðustu forvöð að sækja um bílastæði.
Frestur til að sækja um stæði rennur út í kvöld, fimmtudaginn 8. janúar.
Dregið verður úr umsóknum föstudaginn 9. janúar og verða niðurstöður birtar á heimasíðu skólans.
Leiga á bílastæði kostar kr. 8000 fyrir vorönnina.
Nóg er af gjaldfrjálsum stæðum við Laugardalshöllina í u.þ.b. 5 mín. göngufæri frá skólanum.
Fjölmörg prentkort liggja hnuggin ofan í skúffum á skrifstofu skólans og bíða eftir því að eigendur þeirra hirði um að sækja þau. Þarna er um mikil verðmæti að ræða því að hvert prentkort inniheldur 400 króna inneign sem hægt er að nýta í prenturum skólans, bæði í vestur- og austurálmu. 400 krónur nægja til að prenta út 40 svarthvít blöð eða 8 blöð í lit. Þeir nemendur sem eiga prentkort frá síðustu önn eða eldri og hafa notað alla inneignina geta glaðst yfir því að 400 króna inneign kom á kortin þeirra í byrjun nýrrar annar.
Lesa meira