Skólinn

Fréttir

Skólinn kvaddur - 27.4.2009

IMG_7141Útskriftarnemar kvöddu skólann sinn á hefðbundinn hátt síðastliðinn föstudag. Flestir nemanna voru íklæddir bláum búningum og léku svokallað ,,Cookie Monster“ eða Kökuskrímslið sem er þekkt persóna úr amerísku barnaefni. Eftir dans og hopp og hí á palli þar sem kennarar voru kallaðir upp og ,,heiðraðir“ á misjafnan hátt var sýndur myndbandsannáll. Loks fengu kökuskrímslin kökur og snittur á kennarastofunni.

(Hér má sjá myndbandsannál útskriftarhópsins)

(Fleiri myndir frá dimmisjón má sjá hér.)

Lesa meira
 

Umhverfisvika 20. - 22. apríl - 20.4.2009

graen_01_10Umhverfisdagar hófust í dag og af því tilefni verður skólinn í grænum tónum. Kennarar og nemendur eru hvattir til að koma grænklæddir í skólann þessa daga. Sýning um „Sjálfbæra þróun á vegum Sameinuðu þjóðanna“, verður í Betri stofunni. Í tengslum við hana mun fræðslumynd um sjálfbæra þróun rúlla á tjaldi á Steypunni í hádegishléi á mánudagi. Sýning á verkum nemenda á sérnámsbraut verður uppi á gangi í austurálmu. Lesa meira
 

Opið hús - kynning á skólanum - 17.4.2009

vorap_08Verið velkomin á opið hús í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.

Þriðjudag 21. apríl Kl. 17 – 19.

Námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans verður kynnt.

Lesa meira
 

Gönguferð á Búrfell í Heiðmörk - 16.4.2009

burfell2_0012Það eru sannarlega mörg Búrfell á Íslandi. Laugardaginn 28. mars var farin önnur Búrfellsganga útivistar- og fjallgönguhópsins ÍÞR141. Í þetta skipti var stefnt á Búrfell í Heiðmörk.

   Fámennur hópur var samankominn í anddyri skólans á tilsettum tíma kl. 9. Fjórir kennarar og tveir nemendur. Hvar voru allir nemendurnir sem höfðu skráð sig í gönguna?

(Framhald á ferðasögunni má finna hér. Smelltu svo hér til að sjá myndir úr ferðinni.)

Lesa meira
 

Bleikur dagur - Mætum í bleiku! - 15.4.2009

bleikurFimmtudag 16.apríl er bleikur dagur í skólanum. Dagurinn er tileinkaður jafnréttisbaráttu kvenna og feminisma. Í skólanum er búið að hengja upp veggspjöld með ýmsum staðreyndum um bág kjör kvenna í heiminum og ójafnrétti. Sóley Tómasdóttir mun halda fyrirlestur á Steypunni í hádeginu og settur verður upp kynningarbás frá UNIFEM. Nemendur og kennarar eru hvattir til að mæta í bleiku í tilefni dagsins.

Einnig er í undirbúningi að stofna jafnréttisráð við skólann sem hefði það hlutverk að vera umræðuvettvangur fyrir áhugasama kennara og nemendur um jafnrétti innan skólans.

Lesa meira
 

Veturinn - 13.4.2009

vor_99Sagt er fyri Vori

Vetur flúi!

Hvergi hann þó flýr

en færist ofar!

Vor skríður undir,

Vetrar er yfir

bringa breið

um bláloft gnæfandi.

 

Þannig yrkir Bjarni Thorarensen um veturinn. Blóm sem Vetur svæfði í haust eru byrjuð að rumska í hálffrosinni moldinni. Fyrstu vorboðarnir eru marglitir krókusar og lyklar sem minna okkur á að sumar er skammt undan – og aðeins 11 kennsludagar eftir af skólaárinu. Kennsla hefst að loknu páskaleyfi miðvikudag 15. apríl.

Lesa meira
 

Íþróttavakning framhaldsskóla - 3.4.2009

Lokahátíð Íþróttavakningar framhaldsskóla verður haldin í Fífunni og Smáranum í Kópavogi, laugardaginn 4. apríl kl. 14:30-19:00. LokahatidStaða skólanna
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica