Skólinn

Fréttir

ÍÞR 141 - Útivist og fjallgöngur - 31.8.2009

burfell_thingv_0105Hefurðu áhuga á útivist og fjallgöngum? Hefurðu gaman af að reyna svolítið á þig og bæta jafnvel úthaldið? Langar þig að geta bent á fjall í fjarska og sagt: „Sjáið tindinn, þarna fór ég!“ Ef svarið er „já“ þá ættirðu að skrá þig í ÍÞR141. Það geta allir tekið þátt. Eina sem farið er fram á er góður skóbúnaður og hlýr fatnaður.

Tveir kennarar sjá um fararstjórn. Nemendur þurfa að fara í a.m.k. tvær ferðir af fjórum til að fá eina einingu fyrir áfangann.

Lesa meira
 

Busavígsla - 28.8.2009

busavigsla09_246bSvokallaðar busavígslur fara fram í framhaldsskólum landsins þessa dagana. Í Fjölbrautaskólanum við Ármúla fór þessi ,athöfn‘ fram í gær, fimmtudag 27. ágúst, fyrir hádegi. Hún hófst með því að eldri nemendur smöluðu nýnemum út úr stofum og út á tún. Þar máttu þeir dúsa jarmandi inni í rétt þangað til þeir voru leiddir einn af öðrum í gegnum þrautabraut. Í henni þurfti að yfirstíga alls kyns hindranir og innbyrða einhvers konar ómeti áður en nýnemum var gefið frelsi á ný. Eftir það fengu þeir klapp á bakið og árnaðaróskir frá þeim eldri.

      Nýnemar og ,böðlar‘ þeirra gæddu sér síðan á pulsu og kók í lokin á stéttinni fyrir framan skólann.

Lesa meira
 

Nýnemar - 25.8.2009

haust_219bSkólahald er komið á fullan skrið í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Nýnemar í ár sem koma úr 10. bekk eru um 150 talsins.

Útivistardagur (busavígsla) verður fimmtudaginn 27. ágúst og hefst athöfnin kl. 9.55. Kennsla fellur því niður frá þeim tíma. Við hvetjum eldri nemendur til að aðstoða nýnema á allan hátt og sýna í verki að þeir eru velkomnir í skólann.

Lesa meira
 

Ódýrar samgöngur - Strætó - 20.8.2009

vetni_straetoNámsmenn í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um að kaupa strætókort sem gildir allan veturinn. Verð er kr. 15.000. Einnig er hægt að kaupa kort fyrir hvora önn á 8.000 kr.

  Umsókn fer fram á vefsvæði Strætó https://www.straeto.is/kortasida og verður mynd að fylgja umsókninni. Kortið gildir fyrir þann sem er skráður fyrir því.

Lesa meira
 

Haustönnin hefst - 17.8.2009

Skólastarfið á haustönn hefst á hefðbundinn hátt með fundi starfsmanna fimmtudaginn 20. ágúst.

Sama dag opnast aðgangur nemenda að stundatöflum sínum í gegnum Mínar síður eða INNU fyrir nemendur. Aðgangsorðin fá nemendur send í tölvupósti eða pósti. Á Mínum síðum finnur nemandinn bókalista yfir þá áfanga sem hann er skráður í. Bókalisti yfir alla áfanga er undir flýtivali á heimasíðu skólans.

Nýnemum er boðið á fund með umsjónarkennurum sínum fimmtudaginn 20. ágúst kl. 13.

Töflubreytingar fara fram í skólanum fimmtudaginn 20. ágúst kl. 13.00-17.00 og föstudaginn 21. ágúst kl. 9.00-16.00.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 24. ágúst.

Framhaldsnám sjúkraliða byrjar 28. ágúst skv. stundatöflu.

Skólinn hefur 150 bílastæði til að úthluta nemendum og verða stæðin leigð frá 24. ágúst til 30. nóvember 2009 á kr. 8000. Nemendur geta sótt um stæði á skrifstofu skólans eða með því að senda tölvupóst á fa@fa.is. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans.



Lesa meira
 

Bílastæði - 14.8.2009

bilastaedi_02

150 bílastæðum við skólann verður úthlutað til nemenda á haustönn. Stæðin verða leigð frá 24. ágúst til 30. nóvember 2009 á kr. 8000. Nemendur geta sótt um stæði á skrifstofu skólans eða með því að senda tölvupóst á fa@fa.is.


Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að nota annan samgöngumáta en einkabílinn. Rúmlega fjórðungur starfsmanna valdi á síðustu önn að skilja bíl sinn eftir heima, koma gangandi, hjólandi, á vespu eða með strætisvagni.


Skólastjórn Fjölbrautaskólans við Ármúla beinir þeim eindregnu tilmælum til nemenda að þeir leggi ekki bílum sínum í merkt stæði fyrirtækja og heimila í nágrenni skólans. Nóg er af bílastæðum við Laugardalshöllina sem er í 5 mín göngufjarlægð frá skólanum.

Lesa meira
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica