Jafndægur, sú stund þegar sól er beint yfir miðbaug jarðar. Þetta gerist tvisvar á ári, á tímabilinu 19.-21. mars (vorjafndægur) og 21.-24. september (haustjafndægur). Um þetta leyti er dagurinn (frá sólarupprás til sólarlags) um það bil jafnlangur nóttinni hvar sem er á jörðinni, og af því er nafnið dregið. Breytileiki dagsetninganna stafar aðallega af því að almanaksárið er ekki nákvæmlega jafnlangt árstíðaárinu, og samræmingin við árstíðaárið verður að gerast í stökkum, með aukadegi í hlaupárum. (Almanak Háskóla Íslands)
Á vorönn 2009 bjuggu nemendur í BÍÓ203 til sjö kynningarmyndir fyrir Heilbrigðisskólann í FÁ. Tilgangur myndanna var að kynna á lifandi hátt verknám og starfsþjálfun á starfsmenntabrautum Heilbrigðisskólans. Nemendur Heilbrigðisskólans léku í myndunum og nemendur Þórs Elísar Pálssonar unnu myndirnar með hjálp hans. Myndirnar má sjá með því að smella hér á vef skólans /heilbrigdisskolinn/myndbrot/ eða velja tengil á næstu síðu.
Lesa meira
Nýlega lauk ljósmyndasamkeppni Morgunblaðsins. Þrjár stúlkur eru skráðar fyrir þeirri mynd sem sigraði. Það eru Rebekka Ragnarsdóttir, María Árnadóttir og Dísa Mai Thi Jósepsdóttir. Tvær þessHvað gera nemendur í FÁ að loknum skóladegi á föstudegi? Svarið er augljóst; þeir klæða sig í gönguskó og fara í fjallgöngu! Sautján nemendur tóku þátt í göngu á Vífilsfell (655 m) á föstudag. Þetta var fyrsta gangan af fjórum sem skipulagðar eru í tengslum við ÍÞR141. Vífilsfell er ekki sérstaklega hátt en það er bratt og nokkuð erfitt uppgöngu. Það fékk hver að halda sínum takti í göngunni. Sumir fóru hægt yfir en aðrir hraðar. Allir urðu samt mjög móðir.
Næsta ferð í ÍÞR141 er yfir Fimmvörðuháls 17. – 18. september. Vegalengd er 22 km og hækkun um 1000 metrar. Áætlaður tími í göngu er 8-9 tímar. Kynningarfundur varðandi ferðina verður miðvikudag 9. september kl. 12.10 í stofu M26.
Lesa meiraSvona gengur bara hreint ekki! Er þetta spurning um leti, greindarskort eða hvort tveggja? Þeir sem eru gangandi og hjólandi geta varla smokrað sér framhjá þessum bíl. Þeir sem eru fatlaðir í hjólastólum geta alls ekki komist þarna framhjá og þurfa að snúa sér við og fara út á götu.
Eitt getum við í FÁ huggað okkur við. Það eru örugglega engir nemendur í FÁ svona heimskir að þeir geri sér ekki grein fyrir þessu. Þetta getur ekki verið nemandi sem leggur svona – er það?
Lesa meira