Skólinn

Fréttir

Sést hverjir borða hafragraut? - 26.10.2009

graut_8Eins og síðasta þriðjudag verður boðið upp á hafragraut í 10 frímínútum. Það er umhverfisráð skólans sem sér um að skammta á diskana. Lesa meira
 

Hátt, hátt á hnúkinn. - 25.10.2009

moskard_9_74Fjórða gönguferð útvistarhópsins ÍÞR141 var á laugardag. Stefnan var tekin á Móskarðshnúk, tignarlegan píramídalaga tind sem er austast í Esjunni næst Skálafelli. Tindurinn blasir við frá Reykjavík og virðist oft sem sól skíni á hann þrátt fyrir skýjað veðurfar. Ástæða þess er gullinn litur líparítsins sem er aðal bergtegund tindsins. Gangan hófst við göngubrúna yfir Skarðsá. Fyrsti hluti göngunnar var upp mosavaxnar brekkur þar sem hægt var að tína upp í sig léttfrosin krækiber. Lesa meira
 

Andlát - 22.10.2009

krossUndanfarna daga hefur stórt skarð verið höggvið í núverandi og fyrrverandi nemendahóp á sérnámsbraut í FÁ. Lilja Kjartansdóttir andaðist í 19. október. Lilja hóf nám hér á sérnámsbraut haustið 2007.

     Kristinn Örn Friðgeirsson andaðist 17. október. Kristinn lauk námi á sérnámsbraut vorið 2006. Við sendum aðstandendum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Lesa meira
 

Hjá rjúkandi hverum í Reykjadal - 15.10.2009

Hausferd-0259_2Veðurspáin var ekkert sérstök en útivistarhópur FÁ ákvað samt að fara í áður auglýsta gönguferð um Hengilssvæðið 8. október síðastliðinn. Gengið var upp frá Rjúpnabrekkum í Hveragerði um ótroðinn slóða upp að Reykjadal. Eftir því sem ofar dró þyngdist færðin en þeir sem voru vel skóaðir þrömmuðu þetta eins og ekkert væri. Lesa meira
 

Kynning á Nordplus samstarfi á miðvikudag - 11.10.2009

comenius2Nordplus samstarfið er milli fimm skóla. Þeir eru á Íslandi, í Haminan í Finnlandi, Paide í Eistlandi, Saldus í Lettlandi og Mazeikiai í Litháen. Fyrsti fundurinn var á Íslandi í mars sl. en annar fundurinn var í Eistlandi, Litháen og Lettlandi dagana 10. til 17. september sl. Á þann fund fóru tveir kennarar, Eiríkur Brynjólfsson og Gerður Hannesdóttir og fjórir nemendur, Anna Kristín Einarsdóttir, Bergþóra Fanney Einarsdóttir, Sigríður Karlsdóttir og Sveinn Einarsson. Hópurinn ætlar að kynna verkefnið og ferðina og sýna myndir á miðvikudaginn kemur klukkan 12.10 í stofu M26. Lesa meira
 

Gönguferð um Hengilssvæðið - 7.10.2009

burfell_thingv_0032Þriðja gönguferð útvistarhópsins ÍÞR141 á haustönn 2009 verður farin fimmtudaginn 8. október. Áætlað er að ganga yfir Bitruháls á Hengilssvæði og skoða hverasvæðið við Klambragil og í Reykjadal. Mæting í FÁ er klukkan 9 og áætlaður göngutími á Hellisheiðinni er 5 klukkustundir. Spáð er suðaustan kalda (9 m/s) og eins stigs frosti.

Undirbúningsfundur í hádegi kl. 12.10 miðvikudaginn 7. október í stofu M26.

Upplýsingar um gönguferðina eru á /felagslif/utivist/

Lesa meira
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica