Skólinn

Fréttir

Skólabyrjun í janúar 2011 - 30.12.2010

Opnað verður fyrir stundatöflur nemenda  (mínar síður)  þriðjudaginn 4. janúar.ara

Lykilorð eru send í tölvupósti.

Starfsmannafundur verður þriðjudag 4. janúar kl. 10.00.

Töflubreytingar verða 4. janúar kl. 13–17 og 5. janúar kl. 9 – 16.

Kynningarfundur með nýjum nemendum 5. janúar kl. 13:00.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 6. janúar.

Skráning í fjarnám 7. janúar til 13. janúar.

Kennsla fjarnáms hefst 18. janúar.

Skóladagatal sjá hér.

Takk fyrir liðið ár, farsælt nýtt ár.

 

Útskrift frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla - 20.12.2010

utskrift_h2010_107Brautskráning nemenda frá skólanum var 18. desember. Athöfnin fór fram í nýjum sal skólans og var þetta í fyrsta sinn sem hann var notaður við útskrift. Gísli Ragnarsson skólameistari setti athöfnina en síðan söng kór skólans nokkur jólalög. Síðan flutti Ólafur Hjörtur aðstoðarskólameistari skýrslu um skólastarfið á önninni. Skólameistari ásamt kennslustjórum hverrar deildar afhentu síðan einkunnir. Fulltrúar nýstúdenta, Brynjar Hafsteinsson og Þorvarður Kristjánsson fluttu ræður áður en skólameistari flutti kveðjuræðu og sleit athöfninni.

(Smellið hér til að sjá myndir frá athöfninni)

Lesa meira
 

Brautskráning laugardag 18.desember - 16.12.2010

Brautskráning nemenda fer fram í hátíðarsal skólans á laugardag, 18. desember kl. 14. Útskriftarnemendur eiga að mæta hálftíma fyrr.

 

Mikilvægt er að allir útskriftarnemar mæti á æfingu fyrir útskriútskriftv2010ftina 17. desember kl. 15.

Lesa meira
 

Prófasýning - 15.12.2010

armuli_004Prófasýning verður í skólanum í dag milli 11 og 14.

Einnig gefst þeim nemendum sem eiga eftir að ganga frá vali fyrir næstu önn eða þurfa að breyta vali sínu tækifæri til að gera það í samráði við umsjónarkennara.

Lesa meira
 

Draumur rætist um FÁ skóla í Pakistan - 13.12.2010

pak_1Haustið 2006 hófu þrjár stúlkur, Sara, Karlotta og Harpa,að safna peningum með það að markmiði að byggja skóla fyrir 200 börn í Pakistan. Stofnuð var hjálparstarfsnefnd sem byrjaði á að selja kaffi og kleinur í skólanum.

Starfið vatt upp á sig, fleiri bættust í hópinn og krónunum fjölgaði í sjóðnum með tímanum.

Ýmsum þótti markmiðið fjarlægt í byrjun. Hvernig átti að vera hægt að safna næstum þrem milljónum króna með kaffisölu, tónleikum, ljóðabókum og sölu á notuðum fatnaði? Var ekki nóg að kaupa eina geit?

Lesa meira
 

Próftími - 29.11.2010

armuli_001Próf eru hafin í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Próf fara einungis fram í stofum að þessu sinni en ekki í anddyrinu á Steypu. Gengið er inn um aðalinngang skólans. Upplýsingar um prófstað eru á töflu í anddyrinu.

Próftöflu dagskóla má sjá hér.

Próftöflu fjarnáms má sjá hér.

Prófareglur má sjá hér.

Lesa meira
 

BÍÓ-frumsýning í hádeginu - 24.11.2010

bioÍ hádegi miðvikudag 24. nóv. verður frumsýning hjá Bíó áfanganum. Frumsýndar verð þrjár nýjar stuttmyndir.

        Nemendur og starfsfólk er boðið velkomið. Sýningar hefjast kl. 12.15 í nýja salnum.

Lesa meira
 

Útivistarhópur á Kerhólakambi - 23.11.2010

kerholakamb_033aFjórða ganga útvistar- og fjallgönguhópsins ÍÞR141 var laugardag 6. nóvember. Hópurinn sem lagði af stað frá Esjubergi á Kjalarnesi var nokkru minni en hópar í síðustu ferðum. Margir sem höfðu skráð sig guggnuðu á að fara. Við því var að búast því framundan var erfiðasta ganga annarinnar, um 8 km ganga og næstum 850 metra hækkun upp á Kerhólakamb. Gengið var frá bænum Esjubergi og stefnt á Hestgil í Esjunni. Það ber nafn með rentu því að á móti gönguhópnum tóku nokkrir hestar og gáfu góð ráð varðandi uppgönguleið. Ekki veitti af því að stígurinn upp fyrsta kaflann, stutt klettabelti, var ógreinilegur á köflum og ekki laust við að þeir sem voru lofthræddir fengju fiðring í magann.

(Fleiri myndir er hægt að sjá með því að smella hér.)

Lesa meira
 

Dimmisjón - 19.11.2010

dimmisisjon_008Í dag, föstudag, dimmiteruðu útskriftarnemar í FÁ. Hópurinn klæddist búningi litlu geimveranna í Leikfangasögu (Toy Story). Nýi salurinn var notaður fyrir hátíðina og naut útskriftarmyndbandið sín vel þar sem því var varpað upp á endavegg salarins. Fjölmargir komu og fylgdust með enda plássið nóg og hljómburður góður.

Að dagskrá lokinni bauð Ólafur aðstoðarskólameistari nemendum að koma upp á kennarastofu og þiggja brauð, ost og salat.

(Myndir frá hátíðinni má sjá hér.)

Lesa meira
 

Hátíðardagur og svið í matinn - 16.11.2010

dagur_tungu_025Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í dag, þriðjudag. Ungir nemendur úr nágrannaskóla okkar, Múlaborg, komu og tóku þátt í hátíðarhöldunum og sungu með kór FÁ. Eiríkur Páll fjallaði um bloggarann Jónas Hallgrímsson og Svavar Knútur spilaði og söng.       

            Þröstur matsveinn var með heita sviðakjamma í hádegismat og gerðu fjölmargir matnum góð skil. Fréttamenn mbl.is voru á staðnum, fylgdust með borðhaldinu og ræddu við nemendur og starfsmenn. Hægt er að sjá fréttina með því að smella hér.

Lesa meira
 

Dagur íslenskrar tungu - dagskrá í sal - 16.11.2010

tungaÍ tilefni af Degi íslenskrar tungu verður dagskrá í sal skólans klukkan 11.30. Börn úr leikskólanum Múlaborg koma í heimsókn og syngja og fara með þulu. Þeim til stuðnings verður kór FÁ sem nýverið hóf æfingar. Eiríkur Páll íslenskukennari flytur hátíðarávarp og síðan leikur listamaðurinn Svavar Knútur nokkur lög á gítar og tónar með.

Kennarar eru beðnir að hleypa nemendum fyrr úr tímum og ganga með þeim niður í salinn til að hlýða á dagskrána.

Lesa meira
 

Grænfáninn í þriðja sinn - 10.11.2010

graenn_002Fimmtudag 11.nóvember er Norræni loftslagsdagurinn. Dagurinn er einnig merkilegur fyrir það að þá fær FÁ grænfánann afhentan í þriðja sinn en fáninn er afhentur til tveggja ára í senn. Verkefnisstjóri Grænfána verkefnisins, Orri Páll, afhendir fánann við formlega athöfn í sal skólans.

Nemendur og kennarar eru hvattir til að vera viðstaddir og fara með nemendum sínum úr kennslutíma 15 mínútum fyrir 12 niður í nýja fyrirlestrarsalinn. Mætum öll í einum grænum!

Nánari upplýsingar um verkefnið má sjá hér.

Lesa meira
 

Samstarfsverkefni í Póllandi - 8.11.2010

polland02Í síðasta mánuði fóru tólf nemendur skólans og tveir kennarar til Póllands í tengslum við samstarfsverkefnið „Becoming human“ sem er styrkt af þróunarsjóði EFTA. Á síðustu önn sátu þessir nemendur áfanga þar sem þeir lærðu um sögu Póllands, seinni heimsstyrjöldina og um hugmyndina að baki mannréttindum. Auk þess tóku þeir á móti nemendum úr samstarfsskólanum í Grudziadz. Lesa meira
 

Peruvika í FÁ - 2.11.2010

perustrakurna stendur yfir peruvika FÁ. Skólinn er skreyttur í grænum lit og eru nemendur einnig hvattir til að mæta í grænu. Nemendafélagið heldur uppi skemmtilegri og metnaðarfullri dagskrá. Á mánudag var kynning á atburðum og um kvöldið var FIFA mót. Í þriðjudagshádegi voru leikir og spurningakeppni. Á miðvikudag kemur tónlistarmaður og leikur nokkur lauflétt og skemmtileg lög.

Massar skólans fá að bretta upp ermarnar og sýna hvað í þeim býr á fimmtudag því þá verður bekkpressukeppni í hádeginu. Um kvöldið verður svo haldinn „djúpur pottur“ þar sem föngulegt fljóð úr Tækniskólanum velur úr flokki þriggja FÁ-fola. Eitthvað skemmtilegt verður síðan á föstudag sem síðar verður kynnt.

Góða skemmtun!

Lesa meira
 

Ganga á Helgafell - 28.10.2010

helgafell_046_-_CopyÞriðja ganga útivistar- og fjallgönguhópsins var á Helgafell í Hafnarfirði 23. október. 27 nemendur og 5 starfsmenn skólans tóku þátt í göngunni. Gangan hófst stutt frá sumarbúðum KFUM Kaldárseli og var gengið meðfram jaðri vatnsverndarsvæðis Hafnfirðinga. Eftir rúmlega 1,5 km var komið að rótum fjallsins. Fólk fækkaði fötum enda var veðrið einstakt, lítilsháttar frost og logn. Gangan á toppinn tók stutta stund eða rúman hálftíma og var göngufólk því rétt komið í göngustuð þegar toppnum, 338 m var náð.

(Fleiri myndir er hægt að sjá með því að smella hér.)

Lesa meira
 

Frábært, glæsilegt, ánægjulegt! - 24.10.2010

Lið FÁ fagnaði sigri í úrslitaleik framhaldsskólamótsins í knattspyrnu um helgina. Miklar vonir voru bundnar við knattspyrnulið FÁ í vetur eftir að það varð í 2. sæti í fyrra á framhaldsskólamótinu. Liðið er skipað harðskeyttum leikmönnum sem ákváðu strax í haust að berjast til síðasta blóðdropa og vinna mótið í ár. Þetta tókst og vann liðið FB 2-1 í úrslitaleiknum. Fjölbrautaskólinn við Ármúla óskar meisturunum til hamingju með að hafa fært skólanum titilinn. meistar

Liðið skipa: Einar Andri Einarsson, Eggert Rafn Einarsson, Hafsteinn Briem, Sturlaugur Haraldsson, Þórir Guðjónsson, Guðmundur Magnússon, Jimmy Salinas, Hörður Björgvin Magnússon, Anton Sverrir Jensson, Alfreð Már Hjaltalín  og Kristján Hafþórsson. Þjálfari er Örvar Jakobsson og liðsstjórar eru Magnús Yngvi Einarsson og Brynjar Jökull Guðmundson. Umfjöllun á fotbolti.net. Viðtal við þjálfara.

Lesa meira
 

Stóra-Kóngsfell - 19.10.2010

kongsfell_53bÖnnur ganga útivistar- og fjallgönguhópsins var laugardag 9. október. Veðrið lék sannarlega við hópinn sem steig út úr rútunni við Bláfjallaafleggjara og hélt af stað í átt að Stóra-Kóngsfelli. Nemendur voru minnugir síðustu göngu á Stóra-Meitil þegar vindurinn blés og köld rigning sullaðist í gegnum vandaðasta regnfatnað. Þess vegna voru nær allir hlýlega búnir í upphafi göngunnar en brátt þurfti að æja til að fækka fötum í hitanum. Sólin skein og náttúran skartaði sínu fegursta enda var tilkomumikið að ganga um 1000 ára gamalt mosagróið hraunið sem liggur upp að fjöllunum Stóra-Kóngsfelli og Drottningu.

(Fleiri myndir úr ferðinni er hægt að sjá með því að smella hér.)

Lesa meira
 

Mötuneyti fyrir nemendur og starfsfólk - 13.10.2010

Langþráður draumur um mötuneyti í skólanum er loks orðinn að veruleika. Að loknu miðannarfíi 14. og 15. október er stefnt að því að á mánudaginn 18. október verði byrjað aaaa1á að selja girnilegan og hollan hádegismat fyrir sanngjarnt verð í nýju og glæsilegu mötuneyti í sal skólans.

Hádegismatur verður frá 11.00 – 13.15. Matsveinn er Þröstur Harðarson.

Lesa meira
 

Önnur ganga útivistarhóps á laugardag - 7.10.2010

vedur_kongsfellÖnnur ganga útvistarhópsins verður laugardag 9. október. Gengið verður á Stóra-Kóngsfell (602 m) frá Bláfjallavegi. Áætluð vegalengd fram og til baka er 6 km og áætluð heimkoma kl. 14. Mæting er kl. 8.45 við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Farið verður í rútu að og þarf að greiða kr. 1000 við brottför. Tilkynnið þátttöku í tölvupósti á usa@fa.is eða á skrifstofu í síðasta lagi fimmtudag 7. október.

Veðurspá fyrir daginn er með eindæmum góð!

Lesa meira
 

Orkumiklir hafrar - 5.10.2010

steypa_07Síðustu þriðjudaga hefur umhverfisráð skólans boðið upp á hafragraut í löngu frímínútum. Langar raðir hafa myndast við pottinn og margir gera grautnum góð skil.

   Hafrar hafa einstaklega mikið næringargildi, þeir koma jafnvægi á blóðsykur og gefa fyllingu í langan tíma. Allt skiptir þetta máli fyrir námsfólk sem vill hafa fulla orku yfir daginn og halda vöku sinni í tímum undir mónótónísku mali kennara.

Lesa meira
 

Fjölbrautaskólinn við Ármúla og Fótaaðgerðaskóli Íslands undirrita samning - 4.10.2010

Síðastliðin föstudag gerðu Fjölbrautaskólinn við Ármúla og Fótaaðgerðaskóli Íslands að tilstuðlan Mennta- og menningarráðuneytis samning um framkvæmd náms fyrir fótaaðgerðafræðinga.samn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Samningin undirrituðu Inga Kolbrún Hjartardóttir skólastjóri Fótaaðgerðaskóla Íslands, Þórir Ólafsson Menntamálaráðuneyti og Gísli Ragnarsson skólameistari.

Námið fer fram samkvæmt gildandi aðalnámskrá framhaldsskóla í fótaaðgerðafræði sem staðfest var af menntamálaráðuneytinu árið 2007. Samkvæmt aðalnámskrá er nám í fótaaðgerðafræði samtals 130 einingar og skiptist í 25 einingar í almennum greinum, 93 einingar í heilbrigðisgreinum og sérgreinum fótaaðgerðafræði, auk 12 eininga í vinnustaðanámi. Námið dreifist á sjö til átta annir þar sem sérgreinar fótaaðgerðafræðinnar raðast á seinustu þrjár annirnar. Fjölbrautaskólinn við Ármúla sér um innritun nemenda og námsferil.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla sér um kennslu áfanga í fyrrihluta námsins sem eru sameiginlegir öðrum starfsmenntabrautum Heilbrigðisskólans. Miða skal við að nemendur hafi lokið áföngum í almennum heilbrigðisgreinum áður en þeir hefja nám í sérgreinum fótaaðgerðafræðinnar. Fótaaðgerðaskóli Íslands sér um kennslu í séráföngum fótaaðgerðafræðinnar í seinnihluta námsins og ber einnig ábyrgð á áföngum í vinnustaðanámi. Nemendur bera allan kostnað af þeim hluta námsins sem fram fer í Fótaaðgerðaskóla Íslands. Fótaaðgerðaskóli Íslands og Fjölbrautaskólinn við Ármúla sjá sameiginlega um útskrift að námi loknu. Fjölbrautaskólinn við Ármúla og Fótaaðgerðaskóli Íslands auglýsa báðir námið á vefsíðum sínum.

 

Nemendur í Nordplus samstarfi í Finnlandi - 28.9.2010

IMG_0214Fjölbrautaskólinn við Ármúla tekur þátt í NordPlus samstarfi ásamt skólum í Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Finnlandi. Markmiðið með samstarfinu er að koma á kynnum milli kennara og nemenda landanna. Í fyrra fóru fjórir nemendur ásamt tveim kennurum til Eystrasaltslandanna. Hópurinn heimsótti skóla í löndunum, dvaldi hjá þarlendum fjölskyldum og hitti einnig kennara og nemendur frá Finnlandi sem taka þátt í verkefninu. Nýlega fór utan nýr hópur úr skólanum til bæjarins Hamina í Finnlandi. Lesa meira
 

Útivist í úrhelllisrigningu og roki - 27.9.2010

rigningVeður var með allra versta móti í fyrstu ferð útivistar- og fjallgönguhópsins. 34 nemendur og 4 kennarar voru mættir í rútuna sem lagði af stað frá FÁ klukkan 9 laugardagsmorgun. Rok og rigning jókst eftir því sem ekið var ofar á Hellisheiðina. Bílstjóri rútunnar sagði að hann hefði oft ekið þessa leið en sjaldan í jafn mikilli rigningu. Hópurinn var samt ákveðinn í að leggja á Stóra-Meitil og arkaði af stað úr Þrengslum með hausinn undir sér upp hlíðina áleiðis að Stakahnúk. Lesa meira
 

ÍÞR141 - Fyrsta fjallganga - 22.9.2010

hromundartindur_051_-_CopyFyrsta fjallgönguferð haustannar verður laugardag 25. september á Stóra-Meitil. Gangan hefst við Stakahnúk í Þrengslum í 260 m hæð. Gengið er upp á hálsinn og síðan áleiðis eftir sléttu hrauni að rótum Stóra-Meitils sem er 514 m hár. Göngulengd er 6-7 km. Spáð er 10 stiga hita og rigningu. Nemendur í áfanganum sem ætla í gönguna þurfa að skrá sig á skrifstofu skólans fyrir kl. 12 á hádegi fimmtudag eða senda póst til Úlfars á usa@fa.is. Ferðakostnaður er 1000 krónur og greiðist við brottför.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu áfangans: www.fa.is/felagslif/utivist/

Lesa meira
 

Bíllaus dagur - 22.9.2010

bilar_009Í dag, miðvikudag 22. september, er „bíllaus dagur í Evrópu“. Þá er lögð áhersla á að fólk skilji einkabílinn eftir heima. Grænfánaskólinn FÁ hvatti nemendur og starfsfólk til að taka þátt í bíllausa deginum. Á bílastæði skólans voru samt margir bílar í dag en einnig fleiri reiðhjól en venjulega. Það er því greinilegt að einhverjir hafa skilið einkabílinn eftir heima og hjólað enda hjólaveður eins og best varð á kosið. Lesa meira
 

Samgönguvika - hjólum, göngum eða tökum strætó! - 16.9.2010

ganga_012Í dag, 16. september, hófst Samgönguvika, samevrópskt átak um bættar samgöngur í borgum. Hún er árlega frá 16. – 22. september og er ætlað að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur. Fleiri en 2000 borgir og bæir í Evrópu taka þátt í Samgönguviku árið 2010. Íbúar borga eru hvattir til þess að nota almennings samgöngur, hjóla eða ganga. Einnig er vikan hvatning til yfirvalda um að stuðla að notkun þessara samgöngumáta og fjárfesta í nauðsynlegum aðbúnaði.

Nánar er hægt að lesa um samgönguvikuna og skoða t.d. dagskrá vikunnar á eftirfarandi slóð: http://samgonguvika.is/dagskra/

Lesa meira
 

Busaball á Sódómu - 14.9.2010

dansararMiðvikudagskvöldi 15. september heldur Nemendafélagið dansleik á Sódómu Reykjavík. Fram koma Dj Leifur, Friðrik Dór, Erpur, Mc Gauti & Henrik Biering. Miðaverð er 2500 krónur fyrir meðlimi NFFÁ 3000 krónur fyrir aðra.

Athugið að kennsla fellur niður í fyrsta tíma kl. 8:10 fimmtudaginn 16. september.

Lesa meira
 

Umhverfisráð kynnir umhverfismál - 8.9.2010

subbur_005Nemendur í Umhverfisráði nemenda (UMH214) munu á fimmtudag ganga í stofur og kynna umhverfismál fyrir samnemendum sínum. Þeir minnast á umgengni í salnum, sígarettustubba, flokkunarkassa fyrir hvítan pappír o.s.frv.

Vonandi hvetur þessi heimsókn ráðsins nemendur til góðrar umgengni, vekur upp gleðitilfinningu og von um betri, umhverfisvænan heim.

Lesa meira
 

Nýnemaferð í Fljótshlíð - 1.9.2010

fljotNemendur eiga að koma í skólann kl. 8.30 fimmtudaginn 2. september. Rúturnar fara af stað kl.9.00 frá skólanum. Komið verður heim föstudaginn 3. september um kl. 15.00. Nemendur eru beðnir að undirbúa sig fyrir hæfileikakeppni.

Allt sem nemendur taka með sér er á þeirra ábyrgð og mælumst við til þess að nemendur taki ekki með sér verðmæta hluti eins og tölvur, tónhlöður (ipod) og dýrar myndavélar.

Lesa meira
 

Busavígsla - 31.8.2010

busa_h11_096Nýnemar úr 10. bekk voru boðnir velkomnir í skólann í dag með busavígslu. Að loknum öðrum tíma glumdu lúðrar og sírenur og hópnum var smalað saman á Steypunni af eldri nemendum. Síðan var hópurinn leiddur jarmandi út á tún þar sem búið var að útbúa nokkurs konar þrautabraut. (Myndasafn frá deginum má sjá með því að smella hér!) Lesa meira
 

Útivistardagur þriðjudag. - 30.8.2010

busav_012Útivistardagur (busavígsla) verður á morgun, þriðjudag 31. ágúst. Athöfnin hefst um kl. 10 þegar nýnemar verða sóttir í kennslustofur. Nemendur verða látnir leysa þrautir í anddyri skólans og fara síðan út á grasflötina austan megin við skólann, þar sem þeir taka þátt í ýmsum leikjum. Að lokinni vígslu er nýnemum boðið upp á veitingar. Kennsla fellur niður eftir kl. 10 þennan dag.

Lesa meira

 

Kennarar frá Eistlandi í heimsókn - 29.8.2010

eistarTíu eistneskir kennarar komu í heimsókn í FÁ í síðustu viku. Þeir eru allir raungreinakennarar og hittu raungreinakennara í FÁ til skrafs og ráðagerða. Þeir eru frá framhaldsskóla í Paide í Eistlandi en sá skóli tekur þátt í NordPlus verkefni ásamt FÁ og skólum í Lettlandi, Litháen og Finnandi. Eistnesku kennarararnir heimsóttu líka Ingunnarskóla. Lesa meira
 

Fyrsta skólavika - 26.8.2010

steypa_012Fyrstu skóladagar haustannar fóru vel af stað. Nýnemar fengu góða aðstoð eldri nemenda og starfsfólks skólans við að finna stofur sínar, hvort sem þær voru í austur-, vestur- eða miðálmu eða jafnvel í N eða Á! Svo er bara spurning hvar íþróttahúsið er?

Þeir nemendur sem hafa komið á bílum hafa troðfyllt þau bílastæði sem eru á skólalóðinni. Frá og með föstudegi 27. ágúst verða nemendur að nota aðgangslykil til að komast á bíl inn á lóðina.

Allir í strætó!

Lesa meira

 

Bílastæði - 25.8.2010

150 bílastæðum er úthlutað til nemenda og verða stæðin leigð frá 27. ágúst til 30. nóvember 2010 á kr. 8000. Nemendur geta sótt um stæði á skrifstofu skólans eða með því að senda tölvupóst á fa@fa.is.


bilastaedi_005

Þegar hafa u.þ.b. 60 nemendur sótt um bílastæðakort við skólann og geta þeir vitjað afgreiðslu umsóknar á skrifstofu. Nemendur sem hafa kort frá fyrri önn en hafa ekki sótt um eru beðnir um að skila korti sínu til skrifstofu. Greiðsluseðlar verða sendir á lögheimili. Innheimt er skilagjald sem verður endurgreitt í lok annar.


Skólastjórn Fjölbrautaskólans við Ármúla beinir þeim eindregnu tilmælum til nemenda að þeir leggi ekki bílum sínum í merkt stæði fyrirtækja og heimila í nágrenni skólans. Nóg er af bílastæðum við Laugardalshöllina sem er í 5 mín. göngufjarlægð frá skólanum.


Aðgangshliðinu verður lokað frá og með föstudegi 27. ágúst.

Lesa meira
 

Haustönn - 12.8.2010

Í Fjölbrautaskólanum við Ármúla er undirbúningur fyrir önnina í fullum gangi og bíða nemendur og kennarar óþreyjufullir eftir að skólahald hefjist að nýju eftir sumarleyfi. Nokkrar breytingar verða á húsnæðismálum skólans því hluti af nýrri viðbyggingu verður tekinn í notkun á haustönn. Um leið breytist núverandi húsnæði. Skrifstofur stjórnenda skólans verða fluttar og einnig verður vinnuhe16._juli_2010_(118)rbergi kennara í austurálmu nýtt í annað. Framkvæmdir halda síðan áfram í vetur og áætlað að þeim ljúki næsta sumar.

Næstu daga fá allir nemendur bréf frá skólanum um upphaf haustannar. Í bréfinu er notendanafn og lykilorð að Innu (stundatafla nemenda). Taflan opnar 20. ágús11._agust_2010_(119)t.

 

 

 

 

 

 

 

Helstu tímasetningar í upphafi haustannar:

20. ágúst kl. 13.00         Fundur með nýnemum (nemendum úr 10. bekk).

23. ágúst kl. 10.00             Kennarafundur.

23. ágúst kl. 13.00-17.00 Breytingar á stundatöflum.

24. ágúst kl. 10.00-17.00 Breytingar á stundatöflum.

25. ágúst.                            Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá.

 

Fjarnám:

Þrátt fyrir niðurskurð  á fjarnámi verður boðið er upp á 110 áfanga á haustönn 2010 en skólinn mun sem fyrr reyna að koma til móts við þann stóra nemendahóp sem stundar fjarnám.
Skráning fer fram dagana 1. til 7. september. Sérstök skráningarsíða verður opin þá daga. Slóðin er: www.fa.is/fjarnam/  Þar eru einnig upplýsingar um allt sem varðar fjarnámið auk nýrrar gjaldskrár sem gildir fyrir haustönnina.

 

Lesa meira
 

Útskrift frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla - 22.5.2010

IMG_1444Útskrift fór fram í Háskólabíói á föstudag og hófst athöfn klukkan 13. Frá skólanum útskrifuðust 144 nemendur, þar af 4 af tveim brautum. Útskrift var með hefbundnu sniði, Gísli Ragnarsson skólameistari setti hátíðin sem hófst með söngatriði en síðan flutti Ólafur Hjörtur aðstoðarskólameistari skýrslu um starfið á önninni. Útskriftarneminn og dúx skólans, Magdalena Olga Dubik, spilaði einstaklega fallegt fiðluverk fyrir áheyrendur áður en skólameistari og kennslustjórar afhentu einkunnir. Fulltrúar útskriftarnema fluttu ræður áður en skólameistari flutti sína lokaræðu og sleit skólanum.

(Smellið hér til að skoða myndasafn.)

Lesa meira
 

Annarlok - 11.5.2010

19. maí kl.11:00 til 14:00: Prófasýning og frágangur á vali fyrir vorönn. Nauðsynlegt er að nemendur lagfæri val ef þarf. Ræðið við umsjónarkennara.

19. maí kl. 8:30: Endurtektarpróf

19. maí kl. 17 æfing fyrir brautskráningu í Háskólabíó (skyldumæting)

21. maí kl. 13:00 brautskráning í Háskólabíó, Nemendur komi kl. 12:30

Afhending einkunna: nemendur geta nálgast einkunnir í INNU 19. maí


 

Stjórn Nemendafélags - 4.5.2010

Ný stjórn nemendafélagsins hefur verið valin: Tara Sverrisdóttir var kjörin formaður, María Sól Ingólfsdóttir ritari, Daði Kristján Vigfússon gjaldkeri og Rakel Mist Einarsdóttir formaður skemmtinefndar. Á mynd eru Tara og María Sól.

Aðrir í stjórn Tara og María Sóleru:

Agnes Geirsdóttir, Andri Jóhannsson, Anton Sverrir Jensson, Arnaldur Sigurðarson, Arnar Þór Ólafsson, Baldur Kristjánsson, Elísabet Karen Magnúsdóttir, Glóey Runólfsdóttir, Guðmundur Dór Guðmundsson, Hanna Siguråst, Júdit Krista Jakobsdóttir, Júlíus Már Sigurðsson, Klara Alexandra Sigurðardóttir, Kristbjörg Tinna Sigurðardóttir, Magnús Freyr Erlingsson, Maríanna Rún Kristjánsdóttir, Ragnhildur D Steingrímsdóttir, Sigríður Karlsdóttir, Sigrún Ásta Jörgensen og Sigurður Ólafur KjartanssonTara og María.

 

Kosningar í nemendafélagið - NFFÁ - 27.4.2010

Miðvikudaframbodg 28. apríl verða kosningar í NFFÁ. Allir sem hafa greitt félagsgjöld í félagið hafa atkvæðarétt. Barátta er um ritara- og formannssætið. Nemendur skólans, jafnt hinir yngri sem eldri, eru hvattir til að nota atkvæði sitt til að kjósa það fólk sem þeir treysta best í nemendafélagið. Gott félagslíf er allra hagur.

    Kosningarnar hefjast klukkan 9 á Steypunni.

Lesa meira
 

Útskriftarhópur kveður - 23.4.2010

IMG_1296_-_CopyÚtskriftarefni sem útskrifast frá FÁ í vor komu saman í morgun og kvöddu skólann sinn. Stúdentsefnin voru áberandi í rauðum nautabanafötum og slógu um sig með spænskum hrópum. Skólinn var fallega skreyttur í stíl við fatnaðinn og skapaðist sannkölluð spænsk stemning á Steypunni. Þorvarður Kristjánsson flutti ræðu í byrjun dagskrár. Síðan samkvæmt venju voru hinir ýmsu kennarar og starfsmenn kallaðir á svið og fengu þeir blóm, koss og borða frá hópnum. Í útskriftarvideó var m.a. gert góðlátlegt grín að raunum „eilífðarstúdents“ í skóla- og félagslífi FÁ. (Videó má sjá hér.) (Hér má einnig sjá myndir.) Lesa meira
 

Mætum í bleiku á jafnréttisdaginn - 15.4.2010

bleikurJafnréttisdagurinn í Ármúlaskóla verður haldinn í annað skiptið á morgun föstudaginn 16.apríl og eru allir hvattir til að mæta í bleikum klæðnaði og ræða jafnréttismál innan sem utan kennslustunda. Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands heldur stutt erindi um mansal í kaffitímanum kl. 9.55. Þar verður því m.a. svarað hver tengslin séu á milli mansals og súlustaða.

     Opinn málfundur um þetta mál og önnur jafnréttismál hefst síðan klukkan 10.25.

Lesa meira
 

Frumsýning á leikritinu Einu sinni var.... - 14.4.2010

Frumsýning á leikritinu Einu sinni var.... verður 14. apríl kl. 20:30 á Steypunni í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.

Hér er klassísk ævintýrasaga færð í nýjan búning sem inniheldur leik, dans og söng. Regína Ína er saklaus sveitastúlka sem ákveður að hefja nýtt líf með því að flytja í borgina og leitar athvarfs hjá Guddu frænku sinni. Lífið er enginn dans á rósum en það breytist í borginni þar sem ævintýrin gerast enn.

Sýningar: esv

14. apríl kl. 20:30

15. apríl kl. 20:00 og 22:00

Verð: 500 kr. (16 ára og yngri greiða ekkert)

 

ÍÞR141- Hrómundartindur á laugardag - 14.4.2010

geitafell_99_29Þriðja ganga útivistahópsins verður næsta laugardag. Gengið verður á Hrómundartind sem er hæsta fjall í Grafningi að Hengli og Ingólfsfjalli undanskildu. Gengið verður frá Ölkelduhálsi sem er í um 400 metra hæð og komið við á Tjarnarhnúk og Lakahnúk áður en gengið verður upp á Hrómundartind (520 m). Á leiðinni til baka verður gengið upp Tindagil. Áætluð vegalengd er um 8 km. Veðurspá fyrir laugardag er góð og verður vafalaust fallegt útsýni af tindinum.

         Kynningarfundur fyrir ferðina verður í hádeginu miðvikudag í stofu M26.

Lesa meira
 

Stomp á Steypunni í tilefni umhverfisviku - 13.4.2010

Í hádeginu á þriðjudag ætlar trommarinn úr hljómsveitinni Hraun að halda uppi léttum leik á Steypunni þar sem útbúin eru hljóðfæri úr allskyns sorpi. Hver veit nema kennarar skólans „stompi“ með? steypa_03

      Á mánudag hófst umhverfisvika í skólanum þar sem athygli fólks er vakin á „grænum“ lífsstíl. Á Steypunni eru kynningarbásar þar sem m.a. eru kynntar vistvænar vörur og endurvinnsla útskýrð. Til hliðar við Steypuna er fatamarkaður og rennur allur ágóði til Mæðrastyrknefndar.

Lesa meira
 

Boðið til Bandaríkjanna fyrir góðan árangur í ræðukeppni - 6.4.2010

allirog_domararÍ lok febrúar fór fram á ensku ræðukeppni ungmenna á aldrinum 16-20 ára. Þetta er í fyrsta sinn sem keppni af þessu tagi er haldin á Íslandi. Að henni stóðu ESU, The English-Speaking Union of Iceland, í samvinnu við sendiráð enskumælandi landa á Íslandi og FEKÍ, Félags enskukennara á Íslandi.

   Í framhaldi af keppninni var Snæfríði boðið á sumarnámskeið í Bandaríkjunum.

       

Lesa meira
 

Á að leyfa spilavíti? - Umræður á Steypunni - 24.3.2010

umaedaBíó áfanginn mun standa fyrir öðrum umræðuþætti á Steypunni n.k. miðvikudag 24. mars í hádeginu, umræðuefnið verður: Á að leyfa spilavíti á Íslandi. Eins og síðast þá verða þekktir gesti í þættinum sem láta sig málið varða. Væntum við þess að nemendur mæti í ,,sjónvarpssal‘‘ og fylgist með umræðunni og jafnvel taki þátt í henni enda er mikill áhugi fyrir þessu málefni hér í skólanum. Fundurinn hefst kl. 12.10 og stendur yfir í 30 mín. Lesa meira
 

Pólskir nemendur í heimsókn - 18.3.2010

polland_02_-_bÁ mánudag komu tveir kennarar og 20 pólskir nemendur í heimsókn í skólann okkar. Þeir dvelja hér fram á laugardag 20. mars. Heimsóknin er liður í verkefninu ,,Becoming Human“ en þar er fjallað um mannréttindi, mannréttindabrot og hvernig draga megi úr fordómum. Nemendurnir hafa sótt kennslustundir í skólanum og farið í ýmsar vettvangsferðir. Í október munu síðan 20 nemendur úr FÁ fara í svipaða heimsókn til Póllands. Nánari upplýsingar og myndir eru á vefsíðunni becominghuman.fa.is Lesa meira
 

Hádegisfyrirlestur um kynbundið ofbeldi - 16.3.2010

jadar_image_grayÍ hádeginu heldur Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann fyrirlestur á Steypunni um kynbundið ofbeldi. Þórdís Elva er leikkona, leikskáld og rithöfundur, fædd árið 1980. Hún skrifaði bókina Á mannamáli sem fjallar um kynbundið ofbeldi. Bókin hefur vakið mikla athygli og umræðu. Sagt er að hún sé mikilvægt lóð á vogarskálarnar og sönnun þess að hægt sé að breyta umræðunni, lögunum og bæta hlutskipti brotaþola á Íslandi. Í hádegisfyrirlestrinum verður m.a. eftirfarandi spurningum velt upp:

·         Er körlum líka nauðgað á Íslandi?

·         Er kynferðisofbeldi gegn börnum algengt hérlendis?

·         Hvaða áhrif hafa klæðaburður, áfengisneysla, háttalag og tengsl brotaþola og  ofbeldismanns í nauðgunarmálum?

·         Hversu margir í Ungfrú Ísland / á Alþingi / í landsliðinu hafa mögulega verið misnotaðir sem börn ef marka má niðurstöður íslenskra rannsókna?

 

Lesa meira
 

Fjallganga og þyrluflug - 14.3.2010

skalafell_99_38bFyrir nokkrum vikum lagði útivistar- og fjallgönguhópur FÁ til atlögu við tind Skálafells (574 m) á Hellisheiði. Garpar þurftu frá að hverfa vegna storms og skafrennings. Önnur atlaga var því gerð að fjallinu á laugardag. Veðurspá var góð. Lítils háttar þoka, fjögurra stiga hiti og vindur mældist 6 m/sek.

        17 nemendur hófu gönguna upp Hverahlíð þegar klukkan var að verða tíu. Ösla þurfti leysingavatn á leiðinni og urðu þeir sem voru illa búnir til fótanna fljótt blautir. Uppgangan á fjallið var tíðindalítil. Gengið var upp aflíðandi brekku sem á köflum var nokkuð grýtt. Flestir göngumenn voru með göngureynslu í farteskinu eftir að hafa prílað upp á Geitafellið fyrr á önninni og tipluðu öruggum fótum yfir skriður sem á vegi þeirra urðu.

Lesa meira
 

Að loknum Árdögum - 10.3.2010

ardagar_195Árdagar 2010 tókust mjög vel. Dagskráin var fjölbreytt og var boðið upp á margt fróðlegt og skemmtilegt. Síðasti dagur árdaganna var ferðadagur. M.a. fór stór hópur nemenda í Bláa lónið.

Fjölmargir lögðu mikla vinnu á sig til að gera þessa daga eftirminnilega og hljóta þeir þakkir fyrir sitt framlag.

Lesa meira
 

Árdagar - ferðadagur - 5.3.2010

ardagar_182Það var þétt og skemmtileg dagskrá á árdögum í gær. Hún hófst með því að nemendur söfnuðust í fyrsta skipti saman inni í sal nýbyggingarinnar. Þar kynnti leiklistarhópurinn leikritið Einu sinni var... sem flutt verður 14. apríl á Steypunni. Víetnamskir nemendur dönsuðu og sigurvegari söngkeppni FÁ Eyrún Eðvaldsdóttir söng listilega svo mörgum viðstöddum vöknaði um augu.

Í dag föstudag 5. mars er boðið upp á fjölbreyttar fræðslu- og skemmtiferðir innan og utan Reykjavíkur.

Lesa meira
 

Árdagar - Forvarnadagur - 4.3.2010

ardagar_000Klukkan 9.30 í dag verða allir nemendur og kennarar kallaðir út í nýbyggingu skólans. Þar gefst tækifæri til að virða fyrir sér framtíðarhúsnæði FÁ. Um leið byrjar forvarnadagur árdaga. 12 kynningar verða í miðálmunni, um 45 mín. langar, sem verða fluttar tvisvar sinnum. Það er því lítið mál að ná tveim kynningum í dag. Erindin eru áhugaverð og fjöldi gesta kemur og kynnir hin ýmsu málefni. Fyrri lotan hefst kl. 10:15 og sú seinni kl. 11:10. Dagskráin er eftirfarandi:

Lesa meira

 

Árdagar - Íþróttahús í dag - 3.3.2010

ardagar1_0083Árdagar hefjast í dag 3. mars kl. 10 með því að starfsmenn og nemendur ganga fylktu lið í íþróttahús. Þar verður softball keppni milli kennara og nemenda í léttum dúr.                   

Sjáumst í íþróttahúsinu!

Lesa meira
 

BÍÓ213 efna til fundar á Steypunni í hádeginu. - 1.3.2010

mars10_13Nemendur áfangans BÍÓ213 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla hafa efnt til fundar á þriðjudakatrin-jakobsdottirginn 2. mars í skólanum sem nefnist „Upp úr skotgröfunum - umræða um framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar". Áætlað er að fundurinn taki 40-50 mínútur.

Hópurinn hefur boðið Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, Páli Magnússyni, útvarpsstjóra RÚV, Ragnari Bragasyni leikstjóra og Hrönn Kristinsdóttur, framleiðenda, að taka þátt á fundinum, og hafa þau staðfest komu sína.

Markmið fundarins er að stuðla að málefnalegri umræðu um framtíð kvikmyndagerðar hérlendis. Fundurinn verður tekinn upp, unninn og síðan sýndur fullkláraður á heimasíðu skólans.
pallmagg
Fundarstjórar/Þáttastjórnendur eru Þorfinnur Ómarsson og Gylfi Þór Sigurðsson, nemandi við skólann.

Hópurinn er undir handleiðslu Þórs Elís Pálssonar kvikmyndagerðamanns sem kennir við skólans, og snýr verkefnið að upptöku og vinnslu á sjónvarpsefni. Lesa meira
 

Árdagar í undirbúningi - 24.2.2010

Í næstu viku var1erða árdagar (dagskrá) í FÁ. Þeir hefjast miðvikudag 3. mars að lokinni kennslu klukkan 10 með því að starfsmenn og nemendur ganga fylktu liði niður í íþróttahús. Þar verður sparkað bolta og sprellað svolítið.

   Fjöldi forvitnilegra og skemmtilegra atburða verður á döfinni miðviku- og fimmtudag. Milli viðburða verður hægt að gæða sé á kaffi og bakkelsi úr nemendakaffihúsi sem verður í anddyri skólans. Einn af hápunktum miðvikudagsins er söngkeppnin sem haldin verður í Broadway.       

        Föstudaginn 5. mars verður boðið upp á fjölbreyttar fræðslu- og skemmtiferðir innan og utan Reykjavíkur. Nemendur þurfa að skrá sig í ferðirnar. Framkvæmdanefnd Árdaga ætlar að ganga í stofur á fimmtudag og kynna dagskrána. Nemendur þurfa síðan að skrá sig í hádeginu (fimmtudag) og í tíu-frímínútum (föstudag) í þær ferðir sem þeir óska eftir að fara í. Verið virk og takið þátt í fjölbreyttri dagskrá Árdaga!

Lesa meira
 

Útivistarhópur - Kynningarfundur v. Skálafells - 24.2.2010

skalafellFjallgöngu- og útivistarhópurinn stefnir á göngu á Skálafell á Hellisheiði næsta laugardag. Fjallið er skammt frá Geitfellinu sem hópurinn gekk á fyrir skömmu. Brottför frá FÁ verður klukkan 09.00. Áætlaður göngutími er 3-4 klst. Spáð er lítilsháttar snjókomu, norð-austan 7 m/sek og 9 stiga frosti. Það er því mikilvægt að klæða sig vel.

           Stuttur kynningarfundur verður haldinn í hádeginu miðvikudag 24. febrúar í stofu M26.

Lesa meira
 

Brunaæfing - 22.2.2010

eldurViðvörunarbjöllur hljómuðu um skólann síðastliðinn fimmtudag. Tilefnið var brunaæfing þar sem æfð voru viðbrögð nemenda og starfsfólks skólans ef eldur kæmi upp í húsinu. Bjöllurnar hljómuðu stöðugt, öllum var gert að fara stystu leið út úr skólanum, skilja dót sitt eftir og safnast saman á túninu austan við skólann.

      Æfingin gekk nokkuð vel. Flestir nemendur tóku æfinguna alvarlega og fylgdu fyrirmælum kennara og starfsfólks. Brátt stækkar skólinn okkar og þá verða þessar brunaæfingar enn mikilvægari. Skólayfirvöld þakka nemendum fyrir jákvæðni og góða samvinnu á æfingunni.

Lesa meira
 

Strákar hvar eruð þið? Það vantar stráka í Árdaganefnd! - 16.2.2010

novMikil leit stendur yfir í skólanum að strákum sem eru tilbúnir til aðleggja á sig mikla en skemmtilega vinnu við undirbúning og framkvæmd Árdaga. Dagarnir verða 2. – 4. mars næstkomandi og miklu máli skiptir að fá hugmyndaríkt fólk til að taka þátt í starfinu. Hæð og háralitur skiptir engu máli. Áhugasamir strákar eru beðnir um að senda póst til Stefaníu Maríu sem er forsvarsmaður hópsins. Netfang hennar er n1208734@fa.is

 

Blóðgjöf er lífgjöf - 9.2.2010

blodgjof_01Miðvikudag 10. febrúar verður Blóðbíllinn fyrir utan Fjölbrautaskólann við Ármúla. Hjúkrunarfræðingar bankans taka vel á móti öllum sem annað hvort vilja gefa blóð eða vilja fá upplýsingar um blóðgjöf. M.a. mæla þeir blóðþrýsting og púls. Nýir blóðgjafar eru ekki látnir gefa blóð í fyrsta skipti heldur fylla þeir út eyðublað um heilsufar sitt og síðan láta þeir taka úr sér blóð í þrjú sýnisglös, alls 12 ml. Hjúkrunarfræðingar Blóðbankans eru ótrúlega færir að taka blóð án þess að blóðgjafi finni nánast nokkurn sársauka. Gjöfin sem þú gefur og leggur inn í Blóðbankann getur aftur á móti bjargað lífi nýbura, krabbameinssjúkra, fólks sem ferð í skurðaðgerðir eða lendir í slýsum.

Er ekki ein lítil stunga þess virði?

Lesa meira
 

Hverjir læðast af stað á laugardagsmorgni? - 1.2.2010

Ágeitafell_99_9rrisulir ökumenn sem áttu leið um Ármúlann að morgni laugardags sáu dularfulla skugga skjótast fyrir framan skólann. Sumir svifu inn um framdyr skólans en aðrir læddust um fyrir utan og létu lítið fyrir sér fara. Flestir voru með litla bakpoka og vel skóaðir. Erfitt var að átta sig á hverjir þarna voru á ferð enda niðamyrkur og rúm klukkustund í sólarupprás. Hverjir voru þetta? Afturgöngur eða þjófar? Írafells-Móri , Glámur eða Náttfari? Sem betur fer voru þarna engar vafasamar persónur eða öfl á ferðinni heldur hópur nemenda í útivistaráfanga skólans á leið í fyrstu göngu annarinnar.

(Hægt er að sjá fleiri myndir hér!)

Lesa meira
 

Fangavaktarfólk í BÍÓ-áfanga - 28.1.2010

Flestir ættu að þekkja nafn Ragnars Bragasonar en hann er þekktastur fyrir að leikstýra Nætur-, Dag- og Fangavaktarþáttunum. Ragnar er fyrrum nemandi hér við skólann og Í FÁ steig hann sín fyrstu skref í gerð stuttmynda sem kveiktu áhuga hans á kvikmyndagerð.       

           Ragnar og Harpa EFA-Ragnar-Harpa_010lísa Þórsdóttir framleiðandi komu í heimsókn í BÍÓ-áfangann og sögðu frá tilurð Næturvaktarinnar og framhaldinu sem varð á því ævintýri. Nemendur fengu upplýsingar um tilurð persónanna í þáttunum, bakgrunn þeirra og ýmsan fróðleik um sköpunarferlið. Ragnar og Harpa útskýrðu einnig framleiðsluferlið, hversu skemmtilegt og auðvelt það var á margan hátt að taka upp Fangavaktina og svo hvernig bíómyndin varð til. Í lokin sögðu þau frá þeim þreifingum sem eru hafnar varðandi útrás Næturvaktarinnar til Bandaríkjanna.

        Í næstu viku stendur BÍÓ áfanginn fyrir bíósýningu á Steypunni. Sýningin verður í hádegishléinu og eru nemendur hvattir til að koma og njóta sýningarinnar.

Lesa meira
 

Verðmæti bíða á skrifstofunni - 20.1.2010

Fjöprentkort_005lmörg prentkort liggja hnuggin ofan í skúffum á skrifstofu skólans og bíða eftir því að eigendur þeirra hirði um að sækja þau. Þarna er um mikil verðmæti að ræða því að hvert prentkort inniheldur 400 króna inneign sem hægt er að nýta í prenturum skólans, bæði í vestur- og austurálmu. 400 krónur nægja til að prenta út 40 svarthvít blöð eða 8 blöð í lit. Þeir nemendur sem eiga prentkort frá síðustu önn eða eldri og hafa notað alla inneignina geta glaðst yfir því að 400 króna inneign kom á kortin þeirra í byrjun nýrrar annar. Lesa meira
 

Styrkur til námsdvalar í Japan 2010 - 19.1.2010

Sjapan_flagtjórnvöld í Japan vilja ýta undir nemendaskipti milli Japans og Evrópu. Af því tilefni bjóða stjórnvöld í Japan íslenskum nemendum styrk til námsdvalar. Annars vegar er boðið upp á 5 vikna dvöl og hins vegar 5 mánaða dvöl. Tveir íslenskir nemendur fá styrk til styttri námsdvalar. Enn er óákveðið hversu margir munu hljóta styrk til lengri námsdvalar. Styrkþegar munu sækja japanska skóla, dveljast á venjulegum japönskum heimilum og taka þátt í ýmsum viðburðum í Japan.

      Vélritaðri umsókn um skiptinámsdvöl skal skilað til Sendiráðs Japans á Íslandi eigi síðar en 8. febrúar 2010. Sendiráðið mun meta innsendar umsóknir og standa að viðtölum við umsækjendur sem koma til greina. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu sendiráðsins: http://www.is.emb-japan.go.jp/

Lesa meira
 

Hjólað í skólann - 15.1.2010

Nú viðrar svo sannarlega til hjólreiða og veðrið getur bara batnað eftir því sem nær líður vori. Það er því tilvalið að bæta þrekið og ná af sér aukakílóum með því að taka þátt í áfanganum ÍÞR131 – Hjólað í skólann. Áfanginn gefur eina einingu og hægt er að taka hhjol01bann í staðinn fyrir aðra íþróttaáfanga. Ef veður er slæmt eina viku er hægt að hjóla meira næstu viku eða þegar betur viðrar. Á sama hátt er hægt að hjóla meira í mars, apríl og maí. Nemendur þurfa að hjóla 150 km á önninni til að fá einingu fyrir áfangann. Lesa meira
 

Skráning í leiklistarhóp og áheyrnarprufur - 13.1.2010

190_land_hugeNú stendur yfir skráning í leiklistarhóp FÁ. Auglýst er eftir fólki sem hefur áhuga á að taka þátt í uppsetningu á verkinu ,Einu sinni var...' í leikstjórn Brynju Valdísar. Verkið er klassísk ævintýrasaga færð í nýjan búning með litríkum og skemmtilegum persónum. Það vantar heilmikið af hæfileikaríku fólki sem er tilbúið að taka að sér ýmis störf sem tengjast uppsetningu á leiksýningu Lesa meira
 

Bílastæði - 11.1.2010

Nemendur sem hafa sótt um bílastæðakort við skólann geta vitjað afgreiðslu umsóknar á skrifstofu. Nemendur sem hafa kort frá fyrri önn en hafa ekki sótt um eru beðnir um að skila korti sínu til skrifstofu. Greiðsluseðlar verða sendir á lögheimili. Innheimt er skilagjald sem verður endurgreitt í lok annar.
 

Skráning í fjarnám í FÁ er hafin - 7.1.2010

4Skráning í fjarnám í FÁ er hafin Skráning í fjarnám á vorönn 2010 stendur dagana 8. til 14. janúar. Skráningin er rafræn á slóðinni: www.fa.is/fjarnam/ og þar á að velja „Skráning í fjarnám“. Allar upplýsingar um hvaða áfangar eru í boði á önninni er einnig að finna á þessari slóð sem og verðskrá. Lesa meira
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica