Flestir ættu að þekkja nafn Ragnars Bragasonar en hann er þekktastur fyrir að leikstýra Nætur-, Dag- og Fangavaktarþáttunum. Ragnar er fyrrum nemandi hér við skólann og Í FÁ steig hann sín fyrstu skref í gerð stuttmynda sem kveiktu áhuga hans á kvikmyndagerð.
Ragnar og Harpa Elísa Þórsdóttir framleiðandi komu í heimsókn í BÍÓ-áfangann og sögðu frá tilurð Næturvaktarinnar og framhaldinu sem varð á því ævintýri. Nemendur fengu upplýsingar um tilurð persónanna í þáttunum, bakgrunn þeirra og ýmsan fróðleik um sköpunarferlið. Ragnar og Harpa útskýrðu einnig framleiðsluferlið, hversu skemmtilegt og auðvelt það var á margan hátt að taka upp Fangavaktina og svo hvernig bíómyndin varð til. Í lokin sögðu þau frá þeim þreifingum sem eru hafnar varðandi útrás Næturvaktarinnar til Bandaríkjanna.
Í næstu viku stendur BÍÓ áfanginn fyrir bíósýningu á Steypunni. Sýningin verður í hádegishléinu og eru nemendur hvattir til að koma og njóta sýningarinnar.
Lesa meira
lmörg prentkort liggja hnuggin ofan í skúffum á skrifstofu skólans og bíða eftir því að eigendur þeirra hirði um að sækja þau. Þarna er um mikil verðmæti að ræða því að hvert prentkort inniheldur 400 króna inneign sem hægt er að nýta í prenturum skólans, bæði í vestur- og austurálmu. 400 krónur nægja til að prenta út 40 svarthvít blöð eða 8 blöð í lit. Þeir nemendur sem eiga prentkort frá síðustu önn eða eldri og hafa notað alla inneignina geta glaðst yfir því að 400 króna inneign kom á kortin þeirra í byrjun nýrrar annar.
Lesa meira
S
tjórnvöld í Japan vilja ýta undir nemendaskipti milli Japans og Evrópu. Af því tilefni bjóða stjórnvöld í Japan íslenskum nemendum styrk til námsdvalar. Annars vegar er boðið upp á 5 vikna dvöl og hins vegar 5 mánaða dvöl. Tveir íslenskir nemendur fá styrk til styttri námsdvalar. Enn er óákveðið hversu margir munu hljóta styrk til lengri námsdvalar. Styrkþegar munu sækja japanska skóla, dveljast á venjulegum japönskum heimilum og taka þátt í ýmsum viðburðum í Japan.
Vélritaðri umsókn um skiptinámsdvöl skal skilað til Sendiráðs Japans á Íslandi eigi síðar en 8. febrúar 2010. Sendiráðið mun meta innsendar umsóknir og standa að viðtölum við umsækjendur sem koma til greina. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu sendiráðsins: http://www.is.emb-japan.go.jp/
Lesa meira
ann í staðinn fyrir aðra íþróttaáfanga. Ef veður er slæmt eina viku er hægt að hjóla meira næstu viku eða þegar betur viðrar. Á sama hátt er hægt að hjóla meira í mars, apríl og maí. Nemendur þurfa að hjóla 150 km á önninni til að fá einingu fyrir áfangann.
Lesa meira
Nú stendur yfir skráning í leiklistarhóp FÁ. Auglýst er eftir fólki sem hefur áhuga á að taka þátt í uppsetningu á verkinu ,Einu sinni var...' í leikstjórn Brynju Valdísar. Verkið er klassísk ævintýrasaga færð í nýjan búning með litríkum og skemmtilegum persónum. Það vantar heilmikið af hæfileikaríku fólki sem er tilbúið að taka að sér ýmis störf sem tengjast uppsetningu á leiksýningu
Lesa meira
Skráning í fjarnám í FÁ er hafin Skráning í fjarnám á vorönn 2010 stendur dagana 8. til 14. janúar. Skráningin er rafræn á slóðinni: www.fa.is/fjarnam/ og þar á að velja „Skráning í fjarnám“. Allar upplýsingar um hvaða áfangar eru í boði á önninni er einnig að finna á þessari slóð sem og verðskrá.
Lesa meira