Í næstu viku v
erða árdagar (dagskrá) í FÁ. Þeir hefjast miðvikudag 3. mars að lokinni kennslu klukkan 10 með því að starfsmenn og nemendur ganga fylktu liði niður í íþróttahús. Þar verður sparkað bolta og sprellað svolítið.
Fjöldi forvitnilegra og skemmtilegra atburða verður á döfinni miðviku- og fimmtudag. Milli viðburða verður hægt að gæða sé á kaffi og bakkelsi úr nemendakaffihúsi sem verður í anddyri skólans. Einn af hápunktum miðvikudagsins er söngkeppnin sem haldin verður í Broadway.
Föstudaginn 5. mars verður boðið upp á fjölbreyttar fræðslu- og skemmtiferðir innan og utan Reykjavíkur. Nemendur þurfa að skrá sig í ferðirnar. Framkvæmdanefnd Árdaga ætlar að ganga í stofur á fimmtudag og kynna dagskrána. Nemendur þurfa síðan að skrá sig í hádeginu (fimmtudag) og í tíu-frímínútum (föstudag) í þær ferðir sem þeir óska eftir að fara í. Verið virk og takið þátt í fjölbreyttri dagskrá Árdaga!
Lesa meira
Fjallgöngu- og útivistarhópurinn stefnir á göngu á Skálafell á Hellisheiði næsta laugardag. Fjallið er skammt frá Geitfellinu sem hópurinn gekk á fyrir skömmu. Brottför frá FÁ verður klukkan 09.00. Áætlaður göngutími er 3-4 klst. Spáð er lítilsháttar snjókomu, norð-austan 7 m/sek og 9 stiga frosti. Það er því mikilvægt að klæða sig vel.
Stuttur kynningarfundur verður haldinn í hádeginu miðvikudag 24. febrúar í stofu M26.
Lesa meira
Viðvörunarbjöllur hljómuðu um skólann síðastliðinn fimmtudag. Tilefnið var brunaæfing þar sem æfð voru viðbrögð nemenda og starfsfólks skólans ef eldur kæmi upp í húsinu. Bjöllurnar hljómuðu stöðugt, öllum var gert að fara stystu leið út úr skólanum, skilja dót sitt eftir og safnast saman á túninu austan við skólann.
Æfingin gekk nokkuð vel. Flestir nemendur tóku æfinguna alvarlega og fylgdu fyrirmælum kennara og starfsfólks. Brátt stækkar skólinn okkar og þá verða þessar brunaæfingar enn mikilvægari. Skólayfirvöld þakka nemendum fyrir jákvæðni og góða samvinnu á æfingunni.
Lesa meira
Mikil leit stendur yfir í skólanum að strákum sem eru tilbúnir til aðleggja á sig mikla en skemmtilega vinnu við undirbúning og framkvæmd Árdaga. Dagarnir verða 2. – 4. mars næstkomandi og miklu máli skiptir að fá hugmyndaríkt fólk til að taka þátt í starfinu. Hæð og háralitur skiptir engu máli. Áhugasamir strákar eru beðnir um að senda póst til Stefaníu Maríu sem er forsvarsmaður hópsins. Netfang hennar er n1208734@fa.is
Miðvikudag 10. febrúar verður Blóðbíllinn fyrir utan Fjölbrautaskólann við Ármúla. Hjúkrunarfræðingar bankans taka vel á móti öllum sem annað hvort vilja gefa blóð eða vilja fá upplýsingar um blóðgjöf. M.a. mæla þeir blóðþrýsting og púls. Nýir blóðgjafar eru ekki látnir gefa blóð í fyrsta skipti heldur fylla þeir út eyðublað um heilsufar sitt og síðan láta þeir taka úr sér blóð í þrjú sýnisglös, alls 12 ml. Hjúkrunarfræðingar Blóðbankans eru ótrúlega færir að taka blóð án þess að blóðgjafi finni nánast nokkurn sársauka. Gjöfin sem þú gefur og leggur inn í Blóðbankann getur aftur á móti bjargað lífi nýbura, krabbameinssjúkra, fólks sem ferð í skurðaðgerðir eða lendir í slýsum.
Er ekki ein lítil stunga þess virði?
Lesa meiraÁrrisulir ökumenn sem áttu leið um Ármúlann að morgni laugardags sáu dularfulla skugga skjótast fyrir framan skólann. Sumir svifu inn um framdyr skólans en aðrir læddust um fyrir utan og létu lítið fyrir sér fara. Flestir voru með litla bakpoka og vel skóaðir. Erfitt var að átta sig á hverjir þarna voru á ferð enda niðamyrkur og rúm klukkustund í sólarupprás. Hverjir voru þetta? Afturgöngur eða þjófar? Írafells-Móri , Glámur eða Náttfari? Sem betur fer voru þarna engar vafasamar persónur eða öfl á ferðinni heldur hópur nemenda í útivistaráfanga skólans á leið í fyrstu göngu annarinnar.
(Hægt er að sjá fleiri myndir hér!)
Lesa meira