Skólinn

Fréttir

Á að leyfa spilavíti? - Umræður á Steypunni - 24.3.2010

umaedaBíó áfanginn mun standa fyrir öðrum umræðuþætti á Steypunni n.k. miðvikudag 24. mars í hádeginu, umræðuefnið verður: Á að leyfa spilavíti á Íslandi. Eins og síðast þá verða þekktir gesti í þættinum sem láta sig málið varða. Væntum við þess að nemendur mæti í ,,sjónvarpssal‘‘ og fylgist með umræðunni og jafnvel taki þátt í henni enda er mikill áhugi fyrir þessu málefni hér í skólanum. Fundurinn hefst kl. 12.10 og stendur yfir í 30 mín. Lesa meira
 

Pólskir nemendur í heimsókn - 18.3.2010

polland_02_-_bÁ mánudag komu tveir kennarar og 20 pólskir nemendur í heimsókn í skólann okkar. Þeir dvelja hér fram á laugardag 20. mars. Heimsóknin er liður í verkefninu ,,Becoming Human“ en þar er fjallað um mannréttindi, mannréttindabrot og hvernig draga megi úr fordómum. Nemendurnir hafa sótt kennslustundir í skólanum og farið í ýmsar vettvangsferðir. Í október munu síðan 20 nemendur úr FÁ fara í svipaða heimsókn til Póllands. Nánari upplýsingar og myndir eru á vefsíðunni becominghuman.fa.is Lesa meira
 

Hádegisfyrirlestur um kynbundið ofbeldi - 16.3.2010

jadar_image_grayÍ hádeginu heldur Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann fyrirlestur á Steypunni um kynbundið ofbeldi. Þórdís Elva er leikkona, leikskáld og rithöfundur, fædd árið 1980. Hún skrifaði bókina Á mannamáli sem fjallar um kynbundið ofbeldi. Bókin hefur vakið mikla athygli og umræðu. Sagt er að hún sé mikilvægt lóð á vogarskálarnar og sönnun þess að hægt sé að breyta umræðunni, lögunum og bæta hlutskipti brotaþola á Íslandi. Í hádegisfyrirlestrinum verður m.a. eftirfarandi spurningum velt upp:

·         Er körlum líka nauðgað á Íslandi?

·         Er kynferðisofbeldi gegn börnum algengt hérlendis?

·         Hvaða áhrif hafa klæðaburður, áfengisneysla, háttalag og tengsl brotaþola og  ofbeldismanns í nauðgunarmálum?

·         Hversu margir í Ungfrú Ísland / á Alþingi / í landsliðinu hafa mögulega verið misnotaðir sem börn ef marka má niðurstöður íslenskra rannsókna?

 

Lesa meira
 

Fjallganga og þyrluflug - 14.3.2010

skalafell_99_38bFyrir nokkrum vikum lagði útivistar- og fjallgönguhópur FÁ til atlögu við tind Skálafells (574 m) á Hellisheiði. Garpar þurftu frá að hverfa vegna storms og skafrennings. Önnur atlaga var því gerð að fjallinu á laugardag. Veðurspá var góð. Lítils háttar þoka, fjögurra stiga hiti og vindur mældist 6 m/sek.

        17 nemendur hófu gönguna upp Hverahlíð þegar klukkan var að verða tíu. Ösla þurfti leysingavatn á leiðinni og urðu þeir sem voru illa búnir til fótanna fljótt blautir. Uppgangan á fjallið var tíðindalítil. Gengið var upp aflíðandi brekku sem á köflum var nokkuð grýtt. Flestir göngumenn voru með göngureynslu í farteskinu eftir að hafa prílað upp á Geitafellið fyrr á önninni og tipluðu öruggum fótum yfir skriður sem á vegi þeirra urðu.

Lesa meira
 

Að loknum Árdögum - 10.3.2010

ardagar_195Árdagar 2010 tókust mjög vel. Dagskráin var fjölbreytt og var boðið upp á margt fróðlegt og skemmtilegt. Síðasti dagur árdaganna var ferðadagur. M.a. fór stór hópur nemenda í Bláa lónið.

Fjölmargir lögðu mikla vinnu á sig til að gera þessa daga eftirminnilega og hljóta þeir þakkir fyrir sitt framlag.

Lesa meira
 

Árdagar - ferðadagur - 5.3.2010

ardagar_182Það var þétt og skemmtileg dagskrá á árdögum í gær. Hún hófst með því að nemendur söfnuðust í fyrsta skipti saman inni í sal nýbyggingarinnar. Þar kynnti leiklistarhópurinn leikritið Einu sinni var... sem flutt verður 14. apríl á Steypunni. Víetnamskir nemendur dönsuðu og sigurvegari söngkeppni FÁ Eyrún Eðvaldsdóttir söng listilega svo mörgum viðstöddum vöknaði um augu.

Í dag föstudag 5. mars er boðið upp á fjölbreyttar fræðslu- og skemmtiferðir innan og utan Reykjavíkur.

Lesa meira
 

Árdagar - Forvarnadagur - 4.3.2010

ardagar_000Klukkan 9.30 í dag verða allir nemendur og kennarar kallaðir út í nýbyggingu skólans. Þar gefst tækifæri til að virða fyrir sér framtíðarhúsnæði FÁ. Um leið byrjar forvarnadagur árdaga. 12 kynningar verða í miðálmunni, um 45 mín. langar, sem verða fluttar tvisvar sinnum. Það er því lítið mál að ná tveim kynningum í dag. Erindin eru áhugaverð og fjöldi gesta kemur og kynnir hin ýmsu málefni. Fyrri lotan hefst kl. 10:15 og sú seinni kl. 11:10. Dagskráin er eftirfarandi:

Lesa meira

 

Árdagar - Íþróttahús í dag - 3.3.2010

ardagar1_0083Árdagar hefjast í dag 3. mars kl. 10 með því að starfsmenn og nemendur ganga fylktu lið í íþróttahús. Þar verður softball keppni milli kennara og nemenda í léttum dúr.                   

Sjáumst í íþróttahúsinu!

Lesa meira
 

BÍÓ213 efna til fundar á Steypunni í hádeginu. - 1.3.2010

mars10_13Nemendur áfangans BÍÓ213 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla hafa efnt til fundar á þriðjudakatrin-jakobsdottirginn 2. mars í skólanum sem nefnist „Upp úr skotgröfunum - umræða um framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar". Áætlað er að fundurinn taki 40-50 mínútur.

Hópurinn hefur boðið Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, Páli Magnússyni, útvarpsstjóra RÚV, Ragnari Bragasyni leikstjóra og Hrönn Kristinsdóttur, framleiðenda, að taka þátt á fundinum, og hafa þau staðfest komu sína.

Markmið fundarins er að stuðla að málefnalegri umræðu um framtíð kvikmyndagerðar hérlendis. Fundurinn verður tekinn upp, unninn og síðan sýndur fullkláraður á heimasíðu skólans.
pallmagg
Fundarstjórar/Þáttastjórnendur eru Þorfinnur Ómarsson og Gylfi Þór Sigurðsson, nemandi við skólann.

Hópurinn er undir handleiðslu Þórs Elís Pálssonar kvikmyndagerðamanns sem kennir við skólans, og snýr verkefnið að upptöku og vinnslu á sjónvarpsefni. Lesa meira
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica