Útivistardagur (busavígsla) verður á morgun, þriðjudag 31. ágúst. Athöfnin hefst um kl. 10 þegar nýnemar verða sóttir í kennslustofur. Nemendur verða látnir leysa þrautir í anddyri skólans og fara síðan út á grasflötina austan megin við skólann, þar sem þeir taka þátt í ýmsum leikjum. Að lokinni vígslu er nýnemum boðið upp á veitingar. Kennsla fellur niður eftir kl. 10 þennan dag.
Fyrstu skóladagar haustannar fóru vel af stað. Nýnemar fengu góða aðstoð eldri nemenda og starfsfólks skólans við að finna stofur sínar, hvort sem þær voru í austur-, vestur- eða miðálmu eða jafnvel í N eða Á! Svo er bara spurning hvar íþróttahúsið er?
Þeir nemendur sem hafa komið á bílum hafa troðfyllt þau bílastæði sem eru á skólalóðinni. Frá og með föstudegi 27. ágúst verða nemendur að nota aðgangslykil til að komast á bíl inn á lóðina.
Allir í strætó!
150 bílastæðum er úthlutað til nemenda og verða stæðin leigð frá 27. ágúst til 30. nóvember 2010 á kr. 8000. Nemendur geta sótt um stæði á skrifstofu skólans eða með því að senda tölvupóst á fa@fa.is.

Þegar hafa u.þ.b. 60 nemendur sótt um bílastæðakort við skólann og geta þeir vitjað afgreiðslu umsóknar á skrifstofu. Nemendur sem hafa kort frá fyrri önn en hafa ekki sótt um eru beðnir um að skila korti sínu til skrifstofu. Greiðsluseðlar verða sendir á lögheimili. Innheimt er skilagjald sem verður endurgreitt í lok annar.
Skólastjórn Fjölbrautaskólans við Ármúla beinir þeim eindregnu tilmælum til nemenda að þeir leggi ekki bílum sínum í merkt stæði fyrirtækja og heimila í nágrenni skólans. Nóg er af bílastæðum við Laugardalshöllina sem er í 5 mín. göngufjarlægð frá skólanum.
Aðgangshliðinu verður lokað frá og með föstudegi 27. ágúst.
Lesa meiraÍ Fjölbrautaskólanum við Ármúla er undirbúningur fyrir önnina í fullum gangi og bíða nemendur og kennarar óþreyjufullir eftir að skólahald hefjist að nýju eftir sumarleyfi. Nokkrar breytingar verða á húsnæðismálum skólans því hluti af nýrri viðbyggingu verður tekinn í notkun á haustönn. Um leið breytist núverandi húsnæði. Skrifstofur stjórnenda skólans verða fluttar og einnig verður vinnuherbergi kennara í austurálmu nýtt í annað. Framkvæmdir halda síðan áfram í vetur og áætlað að þeim ljúki næsta sumar.
Næstu daga fá allir nemendur bréf frá skólanum um upphaf haustannar. Í bréfinu er notendanafn og lykilorð að Innu (stundatafla nemenda). Taflan opnar 20. ágúst.
Helstu tímasetningar í upphafi haustannar:
20. ágúst kl. 13.00 Fundur með nýnemum (nemendum úr 10. bekk).
23. ágúst kl. 10.00 Kennarafundur.
23. ágúst kl. 13.00-17.00 Breytingar á stundatöflum.
24. ágúst kl. 10.00-17.00 Breytingar á stundatöflum.
25. ágúst. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá.
Fjarnám:
Þrátt fyrir niðurskurð á fjarnámi verður boðið er upp á 110 áfanga á haustönn 2010 en skólinn mun sem fyrr reyna að koma til móts við þann stóra nemendahóp sem stundar fjarnám.
Skráning fer fram dagana 1. til 7. september. Sérstök skráningarsíða verður opin þá daga. Slóðin er: www.fa.is/fjarnam/ Þar eru einnig upplýsingar um allt sem varðar fjarnámið auk nýrrar gjaldskrár sem gildir fyrir haustönnina.
Lesa meira