Opnað verður fyrir stundatöflur nemenda (mínar síður) þriðjudaginn 4. janúar.
Lykilorð eru send í tölvupósti.
Starfsmannafundur verður þriðjudag 4. janúar kl. 10.00.
Töflubreytingar verða 4. janúar kl. 13–17 og 5. janúar kl. 9 – 16.
Kynningarfundur með nýjum nemendum 5. janúar kl. 13:00.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 6. janúar.
Skráning í fjarnám 7. janúar til 13. janúar.
Kennsla fjarnáms hefst 18. janúar.
Skóladagatal sjá hér.
Takk fyrir liðið ár, farsælt nýtt ár.
Brautskráning nemenda frá skólanum var 18. desember. Athöfnin fór fram í nýjum sal skólans og var þetta í fyrsta sinn sem hann var notaður við útskrift. Gísli Ragnarsson skólameistari setti athöfnina en síðan söng kór skólans nokkur jólalög. Síðan flutti Ólafur Hjörtur aðstoðarskólameistari skýrslu um skólastarfið á önninni. Skólameistari ásamt kennslustjórum hverrar deildar afhentu síðan einkunnir. Fulltrúar nýstúdenta, Brynjar Hafsteinsson og Þorvarður Kristjánsson fluttu ræður áður en skólameistari flutti kveðjuræðu og sleit athöfninni.
(Smellið hér til að sjá myndir frá athöfninni)
Lesa meiraBrautskráning nemenda fer fram í hátíðarsal skólans á laugardag, 18. desember kl. 14. Útskriftarnemendur eiga að mæta hálftíma fyrr.
Mikilvægt er að allir útskriftarnemar mæti á æfingu fyrir útskriftina 17. desember kl. 15.
Prófasýning verður í skólanum í dag milli 11 og 14.
Einnig gefst þeim nemendum sem eiga eftir að ganga frá vali fyrir næstu önn eða þurfa að breyta vali sínu tækifæri til að gera það í samráði við umsjónarkennara.
Lesa meiraHaustið 2006 hófu þrjár stúlkur, Sara, Karlotta og Harpa,að safna peningum með það að markmiði að byggja skóla fyrir 200 börn í Pakistan. Stofnuð var hjálparstarfsnefnd sem byrjaði á að selja kaffi og kleinur í skólanum.
Starfið vatt upp á sig, fleiri bættust í hópinn og krónunum fjölgaði í sjóðnum með tímanum.
Ýmsum þótti markmiðið fjarlægt í byrjun. Hvernig átti að vera hægt að safna næstum þrem milljónum króna með kaffisölu, tónleikum, ljóðabókum og sölu á notuðum fatnaði? Var ekki nóg að kaupa eina geit?
Lesa meira