Skólinn

Fréttir

Útskrift frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla - 21.12.2011

u425Brautskráning fór fram 17. desember kl. 11 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Útskrifaðir voru 75 nemendur frá skólanum, þar af einn af tveim brautum.  

Skólameistari, Gísli Ragnarsson  setti athöfnina og félagar úr skólakórnum sungu nokkur lög.

Fjóla Björgvinsdóttir skrifstofustjóri lét nýlega af störfum og var henni þakkað fyrir gott starf.

Aðstoðarskólameistari, Ólafur H. Sigurjónson flutti skýrslu um skólastarfið. Hann fjallaði m.a. um verkefnið Nám er vinnandi vegur. Verkefnið felst í því að öllum umsækjendum um nám í framhaldsskóla að 25 ára aldri og sem uppfylla skilyrði var tryggð skólavist nú í haust. Ætlunin er að minnka brottfall framhaldsskólanemenda úr 30% niður í 10% fyrir árið 2020. Áætluð útgjöld ríkissjóðs og Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna átaksins nema tæpum 7 milljörðum króna á árunum 2011-2014. Ólafur sagði að þetta verkefni væri fagnaðarefni og brýnt að það takist vel. 

Skólameistari og kennslustjórar afhentu síðan einkunnir og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Viðurkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi fékk Simona Vareikaité en hún fékk ágætiseinkunn í 29 námsáföngum. Simona fékk einnig viðurkenningu fyrir frábæra skólasókn. Loks fékk Simona viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í sérgreinum viðskipta- og hagfræðibrautar.  

Kristján Hafþórsson, fulltrúi stúdenta ávarpaði gesti áður en skólameistari sleit að lokum athöfninni.

Lesa meira
 

Prófsýning á fimmtudag - 13.12.2011

 

skoli_06Miðvikudagur 14. desember:              Próflok – sjúkrapróf.

Fimmtudagur 15. desember:              Nemendur fá aðgang að einkunnum í INNU.

Prófúrlausnir og önnur verkefni verða sýnd nemendum kl. 11.00 – 13.00

Föstudag 16. desember  kl. 16.00 er æfing fyrir brautskráningu í hátíðasal skólans (skyldumæting útskriftarnema).  

Brautskráning fer fram í hátíðasal skólans á laugardag kl. 11.00.

Lesa meira
 

Mannréttindasamstarf - 7.12.2011

 

hannes07Á þessu ári lauk mannréttindasamstarfi Fjölbrautaskólans við Ármúla við II Liceum Ogolnoksztalcace skólann í Grudziadz í Póllandi. Samstarfið gekk út á að kenna um mannréttindi og efla samkipti nemenda í löndunum tveimur. Tíu kennarar við Ármúlaskóla heimsóttu skólann í Póllandi og fóru þar á námskeið í kennslu mannréttinda, nemendur þaðan heimsóttu skólann okkar og nemendur héðan fóru í heimsókn til Grudziadz auk þess að kynna sér brot á mannréttindum með því að fara til Auswitch og fleiri staða í Póllandi.

Nú er þessu samstarfi að ljúka og skólinn okkar var að fá send tíu veggspjöld frá pólska skólanum en á þeim má sjá myndir frá samstarfinu auk dagatals þar sem minnt er á alþjóðlega mannréttindadaga. Á meðfylgjandi myndum sjást spenntir kennarar opna pakkann frá Póllandi en nánari upplýsingar um samstarfið eru á slóðinni http://becominghuman.fa.is

Lesa meira
 

Próf og prófareglur - 5.12.2011

 

lok_11_39Nú standa yfir próf í skólanum. Nemendur sjá á auglýsingatöflu í anddyri skólans í hvaða stofu þeir eiga að vera. Meðal þess sem þarf að muna að hafa með sér í próf eru persónuskilríki. Þau eiga að liggja á prófborði ásamt útfylltum viðverumiða í byrjun prófs. Slökkt skal vera á farsímum og þeir mega ekki vera á prófborði. Kennarar viðkomandi prófa koma tvisvar í prófstofu á meðan á prófi stendur og svara spurningum sem upp koma. Nemendur geta haft með sér hressingu en mælt er með því að vera ekki með ílát sem skrjáfar í. Nánari upplýsingar um prófareglur eru á http://www.fa.is/nam/profareglur/?CacheRefresh=1

Lesa meira
 

Útskriftarnemar dimmitera - 28.11.2011

 

dimmi06Útskriftarnemar dimmiteruðu á föstudaginn. Rauðhettur hlupu um skólann og amma gamla rölti um í fylgd nokkurra úlfa. Athöfnin fór fram í salnum. Kennarar voru kallaðir upp á svið og síðan var sýnt útskriftarmyndband þar sem gert var grín að skólanum og skólalífinu.  

Að dagskrá lokinni bauð skólameistari útskriftarnemendum upp á kaffi, gos og hnallþórur á kennarastofunni.

Lesa meira
 

Samningur um sérhæfðar námsbrautir fyrir framhaldsskólanema - 25.11.2011

undirritun_midNámsflokkar Reykjavíkur hafa gert samning við mennta- og menningarmálamálaráðuneytið og Fjölbrautaskólann í Ármúla um námsframboð fyrir framhaldsskólanemendur sem horfið hafa frá námi. Námsflokkarnir hafa þróað sérhæfðar námsbrautir sem byggja  á því að skapa samfelldan skóladag með námsáföngum í stærðfræði, listum, heimspeki og íslensku, auk markvissrar námsráðgjafar.

Námsbrautirnar voru þróaðar í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og Fjölbrautaskólann í Ármúla. Samstarfið hefur verið formgert  með samningi þessara þriggja aðila um áframhaldandi samstarf sem miðar að því að stemma stigu við brottfalli framhaldsskólanema. Samningurinn gildir til vors 2013.

(Heimild: reykjavik.is)

Lesa meira
 

Gönguferð á Stóra-Meitil með ÍÞR141 - 18.11.2011

meit01Ekki var laust við að það væri örlítill skjálfti í farastjórum útivistarhópsins að morgni 5. nóvember þegar lagt var af stað á Stóra-Meitil frá FÁ klukkan 9 með 28 þátttakendur. Rúmu ári fyrr hafði útivistarhópurinn lagt af stað á sama fjall í hífandi roki og í slagveðursrigninu og síðar slyddu. Skyggni var þá nánast ekkert og allir urðu fljótt rennandi blautir inn að beini. Aðeins hluta hópsins tókst að berjast á toppinn. Allir komust þó heilir til baka nema nokkrir símar sem gáfu upp síðasta tóninn á fjallinu.

Áhyggjur fararstjórann voru samt óþarfar þrátt fyrir að veðurspá hafi ekki lofað góðu dagana á undan. Það var tveggja stiga hiti og tiltölulega bjart þrátt fyrir skúrir í grennd. Gengið var upp bratta brekku að Stakahnúk. Þessi fyrsti hluti og þessi 100 m hækkun er erfiðasti partur leiðarinnar en allir komust hratt og örugglega upp. Leiðin að rótum Stóra-Meitils var greiðfær og létt en þegar komið var upp í tæplega 400 m hæð var bilið á milli fremsta og síðasta manns farið að lengjast.

Lesa meira
 

Ný námsbraut - Nýsköpunarbraut - 17.11.2011

 

nyskopunVakin er athygli nemenda á að fengist hefur styrkur til að þróa nýja braut við skólann sem kallast Nýsköpunarbraut. Á þeirri braut verða m.a. í boði ýmsir listaáfangar. Þeir nemendum sem hafa áhuga að stunda nám á slíkri braut er ráðlagt að undirbúa sig vel og velja t.d. eitthvað af þeim listaáföngum sem nú eru í boði við skólann. Þeir eru listaðir hér að neðan.

 

Verkefnatengdir en próflausir listaáfangar í boði á vorönn:

 

BÍÓ 103 – 213 (Kvikmyndaáfangar)

LIS 103 (Listir/listasaga)

LJÓ 103 (Ljósmyndun)

MOF 103 (Myndbygging og formfræði)

MYN 103 MYN 203 MYN 303 (Myndlist)

 

Þessir áfangar geta myndað kjörsvið.

Kjörsvið myndlistar: MYN 103 – MYN 203 - MYN 303 – MOF 103

Kjörsvið kvikmynda: BÍÓ 103 – 203 – 213

 

 

Þeir nemendur sem vilja nánari upplýsingar eða koma með tillögur get sent tölvupóst á greta@fa.is eða thorelis@fa.is

 

 

Lesa meira
 

Dagur íslenskrar tungu - Jónas 204 ára - 16.11.2011

 

jonasDagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í dag og er flaggað til heiðurs skáldinu og vísindamanninum Jónasi Hallgrímssyni sem fæddist  16. nóvember 1807. Hann hefði því orðið 204 ára í dag hefði hann lifað – það er aftur á móti mjög ólíklegt að hann hefði náð þeim aldri. En lengi lifi ljóðin hans og öll þessi fallegu nýyrði sem hann bjó til!

Í tilefni dagsins verður vonarstund í hádeginu í salnum. Fjaðurmagnaðir gumar og mundhvítar snótir í kór skólans ætla að syngja til heiðurs Jónasi og frjálsræðishetja úr flokki íslenskukennara flytur ávarp.

Komum saman í hádeginu og lífgum sálarylinn!

Lesa meira
 

Opinn dagur í Listaháskólanum 12. nóvember - 10.11.2011

Laugardaginn 12. nóvember verður hinn árlegi Opni dagur Listaháskólans haldinn kl 11-16 í húsnæði skólans að Laugarnesvegi 91.  Þá gefst tækifæri til að kynna sér námsbrautir og inntökuskilyrði, ræða við nemendur og kennara og kynna sér það sem Listaháskóli Íslands hefur uppá að bjóða.

 

Sumarhús í Pakistan leitar eftir styrktaraðilum - 4.11.2011

pak2Árið 2010 var opnaður nýr skóli í Pakistan sem nemendur og starfsfólk í FÁ tók þátt í að reisa. Hjálparstarfsnefnd, sem nokkra stúlkur stofnuðu, safnaði peningum með margvíslegum hætti. Skólinn var síðan byggður í samstarfi við ABC hjálparstarf og heitir Sumarhús.

Eftir gengisfall krónunnar hefur rekstur skólanna í Pakistan gengið verr og skorið hefur verið niður í mat og rekstri. Þrátt fyrir þetta blasir nú við að loka þurfi skólum. ABC barnahjálp leitar því til einstaklinga og fyrirtækja um stuðning við skólann í Pakistan. Hægt er að hafa stuðninginn persónubundinn og styrkja eitt ákveðið barn. Einnig er hægt að hafa styrkinn skólabundinn og styrkja ákveðinn skóla, t.d. Sumarhús sem nemendur og starfsfólk í FÁ söfnuðu fyrir.

 

Hægt er að velja sér mánaðarlega upphæð, allt frá 500 krónum. Skráningu og upplýsingar má senda á margret@abc.is

Lesa meira
 

Kynning á erlendum skólum í Evrópu og Bandaríkjunum - 4.11.2011

Mánudaginn 7. nóvember kl.15:30 – 17:30 munu fulltrúar 17 erlendra skóla kynna skóla sína í Evrópu og Bandaríkjunum í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð. Skólar sem kynntir verða:

1.      American InterContinental University, London  UK

2.      Creighton University Omaha, Nebraska  USA

3.      Grinnell College Grinnell, Iowa | USA

4.      Gustavus Adolphus College St. Peter, Minnesota  USA

5.      International University of Monaco Monaco  MONACO

6.      Johns Hopkins University Baltimore, Maryland  USA

7.      Marist College Poughkepsie, New York  USA

8.      Marymount College, Palos Verdes Rancho Palos Verdes, California USA

9.      MODUL University, Vienna Vienna  AUSTRIA

10.   Parsons The New School for Design New York, New York  USA

11.   Ritsumeikan University Kyoto  JAPAN

12.   St. Frances Xavier University Antigonish, Nova Scotia CANADA

13.   St. Olaf College Northfield, Minnesota USA

14.   State University of New York College Plattsburgh Plattsburgh, New York  USA

15.   Thompson Rivers University Kamloops, British Columbia  CANADA

16.   University of California, Davis, California  USA

17.   Whitworth University Spokane, Washington  USA

 

 

Hnetuofnæmi getur verið drepleiðinlegt - 28.10.2011

energyHvaða nesti tekur þú með þér í skólann? Margir grípa með sér eða kaupa orkustöng, stykki sem inniheldur orkuríkar hnetur, sykur og rúsinur. Fæstir gera sér samt grein fyrir því að innihald þeirra - hneturnar, geta verið lífshættulegar fyrir þá sem eru með alvarlegt hnetuofnæmi.

Hnetuofnæmi getur verið vægt og valdið kláða og óþægindum. Það getur einnig verið alvarlegt og valdið því að bólga myndast í öndunarfærum. Í þeim tilvikum getur það verið lífshættulegt.

Lesa meira
 
fri

Haustfrí - 21.10.2011

Haustfrí er í skólanum föstudag 21. október og mánudag 24. október.

 

Rusl í rétta tunnu - 19.10.2011

rusl6 

Sumir hafa undrast litskrúðuga  „sorpgjörninga“ á steypunni undanfarna daga. Tilefnið er að Grænfánaskólinn okkar góði er nú að stíga tímamótaskref í umhverfisstarfinu með því að flokka plast. Í dag verða teknar í notkun nýjar sorpeiningar í hinum ýmsu litum allt eftir því hvers konar sorp á að fara í þær. Nú ætti því enginn að verða fyrir því óláni að ruglast á ruslatunnum. Við þurfum ÖLL að þátt í þessari flokkun. Hver og einn ber mikla ábyrgð því hann gefur fordæmi með hegðun sinni og hefur áhrif á það hvað næsti maður gerir, bæði til góðs og ills. Við erum í skólanum langstærstan hluta dagsins og vitum að okkur líður betur þar sem vel er gengið um. Svo eru það auðvitað líka hagsmunir okkar allra að vernda náttúruna.

Lesa meira
 

Í stígvélum í leit að steingervingum - 10.10.2011

ribe6Átta nemendur úr áfanganum ÍÞR141 sem taka þátt í Nordplus samstarfsverkefninu „Outdoor activity“ fóru í síðustu viku til Danmerkur og kynntu sér útivistarkennslu í Ribe Katedralskolen. Kennarar sem fóru með hópnum voru Helmut og Úlfar. Vikan var vel nýtt í alls kyns viðburði tengda útivist og einnig sögu og menningu.

Við komuna til Ribe tóku danskar fjölskyldur á móti nemendunum sem auk Íslands eru frá Lettlandi, Eistlandi og Svíþjóð.

Lesa meira
 

Flokkunarmartröðin - 5.10.2011

Græruslnfánaskólinn FÁ hefur undanfarin ár verið í fararbroddi framhaldsskóla á Íslandi í umhverfismálum. En hvaða umhverfismálum? Og hvað er svona merkilegt við þau?

„Er orðið „umhverfismál“ ekki bara annað heiti yfir að gera einfalda hluti á flókinn og tímafrekan hátt?“ segir einhver efahyggjumaðurinn. Og heldur áfram „Til hvers ætti ég eiginlega að vera að eyða dýrmætum tíma í að flokka og hlusta á endalausar predikanir um umhverfisvænt og lífrænt hitt og þetta, hlýnun jarðar og guð veit hvað?“ „Fyrir nú utan það að þetta er örugglega alltsaman bara bábilja búin til af markaðsöflum heimsins til að græða á; það er allavega ekki ÉG eða börnin MÍN sem græða nokkurn skapaðan hlut á þessu brölti.“

Lesa meira
 

Blóðbankabíllinn verður við FÁ á þriðjudag - 3.10.2011

 

Þblod1riðjudag 4. október verður Blóðbíllinn fyrir utan Fjölbrautaskólann við Ármúla. Hjúkrunarfræðingar bankans taka vel á móti öllum sem annað hvort vilja gefa blóð eða vilja fá upplýsingar um blóðgjöf. M.a. mæla þeir blóðþrýsting og púls. Nýir blóðgjafar eru ekki látnir gefa blóð í fyrsta skipti heldur fylla þeir út eyðublað um heilsufar sitt og síðan gefa þeir blóð í þrjú sýnisglös, alls 12 ml. Hjúkrunarfræðingar Blóðbankans eru ótrúlega færir  að taka blóð án þess að blóðgjafi finni nokkurn sársauka.

Lesa meira
 

Bragðgóð félagsfræði - 29.9.2011

Skfel3emmtileg stemning skapaðist í FÉL313 í dag. Í tengslum við landakynningar nemenda komu sumir þeirra  með mat frá viðkomandi landi. Nemendur og gestir sem ráku nefið inn fengu að smakka, m.a. á pakistönskum rétti. Varla heyrðist í fyrirlesurum fyrir smatti og vellíðunarhljóðum viðstaddra. En nú vitum við að borgin Abottabad er í Pakistan og þar áttu sér stað ótrúlegir atburðir síðastliðið vor.

Lesa meira
 

Næsta ganga á laugardag - skráning í dag - 29.9.2011

Sglymur1íðasti skráningardagur í göngu með útivistarhópnum er í dag, fimmtudag. Gengið verður frá sumarbúðunum Vindáshlíð í Kjós og upp á Sandfell sem er 380 m hátt. Þaðan verður stefnan tekin inn á  Svínaskarðsveg, þjóðleið sem liggur um Seljadal og niður í Fossárdal. Skoðaðar verða rústir gamla bæjarins í Seljadal en búið var í dalnum til 1921. Síðan verður Folaldafoss í Hjaltadalsá skoðaður áður en gengið verður niður í Fossárdalinn þar sem Eiríkur Páll íslenskukennari og skógræktarmaður tekur á móti hópnum.

Lesa meira
 

30 ára afmæli skólans fagnað á laugardag - 21.9.2011

FA_kort_litidÍ tilefni af 30 ára afmæli skólans verður haldin hátið á laugardag. Allir þeir sem eitthvað tengjast skólanum eru boðnir velkomnir. Nemendur taka á móti gestum í anddyri skólans og afhenda þeim afmælisblaðið og dagskrárblað þar sem allt kemur fram sem í boði er, ásamt korti sem vísar veginn um skólann.

Hátíðin hefst síðan með formlegri dagskrá: kl. 14.00

(Dagskrána má sjá hér.)

Lesa meira
 

Bílafrí á fimmtudag - 20.9.2011

bilar_009Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Þátttaka verður þó aldrei meiri en virkni íbúanna. Í raun snýst vikan því um að fá almenning til að átta sig á ferðamynstri sínu og ef til vill endurskoða það með hagkvæmni og hag heildarinnar að leiðarljósi. Hagkvæmnin snýst einfaldlega um kostnað, svo sem við rekstur bifreiða, nýtingu ferða o.fl.

Með hag heildarinnar er átt við heilbrigðis- og umhverfisþætti. Kjörið væri að fækka ökuferðum og fjölda bifreiða en ólíklegt er að það gerist á stuttum tíma. Sparneytni, metan og vetni eru lykilorð fyrir einkabíla framtíðar.

Lesa meira
 

Gengið upp að Glym - 19.9.2011

glymur_096Það var örtröð í anddyri FÁ að morgni laugardags. 43 nemendur og 9 kennarar biðu eftir því að lagt yrði af stað í fyrstu útivistargöngu annarinnar í áfanganum ÍÞR141. Ákveðið var að skoða hæsta foss landsins, fossinn Glym í Hvalfirði. Eftir að búið var að ganga úr skugga um að allir kæmust með var ekið af stað og brunað inn í botn Hvalfjarðar. Það var fallegt haustveður, sól, logn og hiti. Kvörtuðu sumir jafnvel yfir því að það væri of gott veður!

(Fleiri myndir úr göngunni má sjá hér!)

Lesa meira
 

Evrópsk samgönguvika - geymum bílinn heima - 18.9.2011

Nú stendur yfir evrópsk samgönguvika. Af því tilefni eru nemendur og starfsmenn hvattir til að skilja bílinn eftir heima og koma gangandi, hjólandi eða í strætó í skólann. Nemendur í UMR114 ætla að standa fyrir uppákomum í tengslum við málefnið og á fiapril_195mmtudag er svo bíllausi dagurinn sem yfir 2000 borgir í Evrópu taka þátt í ár hvert. Þann dag er markmiðið að allir sem vettlingi geta valdið mæti á hjóli og sett verði met í hjólafjölda fyrir utan skólann. Eru ekki allir með?

Dagskrá vikunnar má nálgast með því að smella á þennan tengil hér.

Lesa meira
 

Myndir úr skólastarfi í 30 ár - 17.9.2011

Þessi síða er í vinnslu

Lesa meira
 

ÍÞR141 - Síðasti skráningardagur í göngu - 15.9.2011

krisuvik2_062Fyrsta ganga annarinnar í útistarhópnum verður á laugardag. Gengið verður upp með fossinum Glym í Hvalfirði. Eins og fyrr þurfa nemendur að skrá sig og greiða þátttökugjald á skrifstofu skólans. Frestur til að skrá sig rennur út í dag.

Mæting í gönguna er kl. 8.45 við FÁ. Áætluð heimkoma er klukkan tvö.

Lesa meira
 

Busaball - 14.9.2011

ball_050Nemendafélag FÁ heldur busaball í kvöld, miðvikudagskvöld, á skemmtistaðnum Players. Húsið opnar klukkan tíu og lokar á miðnætti. Ballið stendur til klukkan eitt eftir miðnætti. Kennarar skólans verða á staðnum ásamt gæslumönnum og fylgjast með því að allt fari vel fram. Lesa meira
 

Metaðsókn - 5.9.2011

Skráðir nemendur í dagskóla eru 1116 og hafa ekki aður verið fleiri. Umsóknir um skólavist voru mun fleiri en hægt var að verða við því miður.

Í morgun mánudag 5. september var myndataka fyrir framan skólann. hopmyndÁ ferð um skólann; myndir hér.

 

Góður árangur Elvu á Special Olympics - 5.9.2011

Elva Björg Gunnarsdóttir, fyrrum nemandi skólans kom við í skólanum fyrir nokkrum dögum. Hún kom hlaðin verðaunum frá Special Olympics í Aþenu Grikklandi 20. júní - 5. júlí. Hún fékk fimm verðlaun: gull fyrir æfingar á slá, silfur fyrir stökk, brons fyrir gólfæfingar, brons fyrir tvíslá og brons fyrir samanlagt.elva

Allir keppendur þurfa fyrst að taka þátt í forkeppni til að hægt sé að skipta þeim í rétta getuflokka, þannig er tryggt að allir keppa á meðal jafningja.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla óskar Elvu Björg til hamingju með glæsilegan árangur.

Special Olympics leikarnir eru alþjóða íþróttaleikar þroskaheftra og seinfærra einstaklinga þar sem keppt er í mörgum mismunandi íþróttagreinum . Þátttaka á þessum leikum er aðalatriði en ekki getan sem slík. Hugmyndafræði Special Olympics byggir á gildi umburðarlyndis og jafnræðis. Lögð er megináhersla á þátttöku, ánægju, einstaklingsmiðaða færni og vináttu.

Special Olympics International var stofnað árið 1968 af Kennedy fjölskyldunni. Íslendingar hafa tekið þátt frá árinu 1991.

 

Úttekt á starfi Fjölbrautaskólans við Ármúla - 1.9.2011

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur birt úttekt á starfsemi Fjölbrautaskólans við Ármúla. Úttektin er gerð á grundvelli 42. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og samkvæmt þriggja ára áætlun ráðuneytisins um úttektir á framhaldsskólastigi. Markmið með úttektinni er að leggja mat á starfsemi skólans með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrá og veita almennt upplýsingar um starfsemi skólans. Skýrsluna má nálgast hér. utt

 

Nýnemaferð í Fljótshlíð - 31.8.2011

Nemendur eiga að koma í skólann kl. 8.30 fimmtudaginn 1. september. Rúturnar fara af stað kl.9.00 frá skólanum. Komið verður heim föstudaginn 2. september um kl. 15.00. Nemendur eru beðnir að undirbúa sig fyrir hæfileikakeppni.

Allt sem nemendur taka með sér er á þeirra ábyrgð og mælumst við til þess að nemendur taki ekki með sér verðmæta hluti eins og tölvur, tónhlöður (ipod) og dýrar myndavélar.

Nýnemar þurfa að koma með:fh

- Svefnpoka, kodda

- Allan mat nema kvöldmat á fimmtudagskvöldið

- Klæðnað eftir veðri, góða gönguskó, hlý föt

- Vasaljós

 

Gott að hafa með:

- Spil, bók og aðra afþreyingu

- Fótbolta

 

Nemendur eru beðnir að ganga vel um í ferðinni og ekki verður farið frá svæðinu fyrr enn skálavörður er ánægður. Slæm umgengni kemur í bakið á okkur næsta dag.

 

Reykingabann - 24.8.2011

Eins og kunnugt er, þá er notkun tóbaks í húsnæði og á lóð framhaldsskóla bönnuð með lögum.

Ég bið nemendur og starfsmenn að virða tóbaksbannið og reykja ekki eða neyta tóbaks á meðan þeir eru í skólanum eða á skólalóðinni. Bréf um reykingabann

Gísli Ragnarsson skólameistari

 

Upphaf haustannar - 10.8.2011

19. ágúst stundatöflur og bókalisti nemenda verða aðgengilegar á Mínum síðum hér á heimasíðu skólans.

19. ágúst kl. 10 kennarafundur.

19. ágúst kl. 12:30 fundur með nýjum kennurum.

19. ágúst kl. 13:15 fundur með töflubreytingafólki.

 

22. ágúst kl. 9:00 til 16:00 töflubreytingar.

22. ágúst kl. 10:00 fundur með nýnemum (úr 10. bekk).

22. ágúst kl. 11:00 fundur með eldri nemendum sem ekki hafa verið í FÁ áður.

 

23. ágúst kl. 9:00 til 16:00 töflubreytingar.

 

24. ágúst kennsla í dagskóla hefst samkvæmt stundaskrá.

 

30. ágúst til 6. september skráning í fjarnám haustannar.

12. september kennsla fjarnáms hefst.

 

Próf í fjarnámi - 3.8.2011

Próf fjarnáms á sumarönn fara fram dagana 10., 11. og 12. ágúst og árekstra- og sjúkrapróf mánudaginn 15. ágúst.

Sjá próftöflu: /fjarnam/proftafla/
Prófað efpr tvisvar á dag, kl. 8.30 og 11.00. Vegna framkvæmda í aðalhúsnæði FÁ verða prófin haldin í stofum sem skólinn hefur í Ármúla 10 sem er við hlið skólans. Stofur N 1, N2, N7 og N 8 á annari hæð hússins. Gengið er inn frá bílaplaninu vestan við skólann, upp stiga utan á húsinu.

 

Innritun nýnema úr 10 bekk er lokið - 24.6.2011

Innritun umsækjenda úr 10. bekk er lokið. Umsækjendur geta opnað umsókn sína og séð í hvaða skóla þeir hafa fengið skólavist föstudaginn 24. júní kl. 11. Hægt er að fá sendan týndan veflykil í netpósti.
Bréf frá skólanum kemur til umsækjenda eftir 27. júní. Greiðsluseðill fyrir innritunargjöldum mun birtast í heimabanka umsækjenda föstudaginn 24. júní og gildir greiðsla hans sem staðfesting á skólavist. Verði greiðsluseðill ekki greiddur fyrir 4. júlí er litið svo á að umsækjandi þiggi ekki plássið og afsali sér rétti sínum til skólavistar.

Tengill fyrir umsókn. Tengill fyrir veflykil.

 

Lengstur dagur - 21.6.2011

Sumarsólstöður 21. júní

Miðbaugur sést sem rauð lína. Brennipunktur sólar miðast við sumarsólstöður á norðurhveli. Ljósmagn ekki í raunverulegu hlutfalli.Sumarsólstöður eru í kringum 21. júní á norðurhveli en 21. desember á suðurhveli. Á sumarsólstöðum á norðurhveli er dagurinn lengstur og sest sólin ekki á öllu svæðinu norðan við nyrðri heimskautsbaug. Einnig er sólin í hvirfilpunkti á hádegi á nyrðri hvarfbaug. Sama gerist á suðurhveli á sumarsólstöðum þar eins og sést á hreyfimynd á þessari síðu og á þessari skýringarmynd (sem sýnir sumarsólstöður á norðurhveli). Vefur Veðurstofunar.

 

Sumarfjarnám - 26.5.2011

Skráning á sumarönn er hafin og stendur til og með 3. júní.

Nánari upplýsingarfj

 

Útskrift frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla - 23.5.2011

utskrift_vor11_139Útskrift fór fram laugardag 21. maí og hófst athöfnin í sal skólans klukkan 11. Þetta var í fyrsta skipti sem útskriftarhátíð að vori fer fram í salnum. Mikill fjöldi var mættur en flestir fengu þó sæti. Það var óvenju létt yfir athöfninni að þessu sinni enda skein sól í heiði og bros var á hverju andliti.

         Gísli Ragnarsson skólameistari setti hátíðina og kór skólans söng. Ólafur H. Sigurjónsson aðstoðarskólameistari flutti skýrslu um starfið á önninni og síðan sungu Lilja Björk Jónsdóttir og Dagur Sigurðsson. Ásdis Ásmundsdóttir kennari var kvödd og henni þökkuð góð störf við skólann. Skólameistari og kennslustjórar afhentu einkunnir og veittu viðurkenningar til nemenda sem skarað hafa fram úr á einhvern hátt.

               Kjartan Ragnars flutti ræðu fyrir hönd útskriftarnema og þau Heimir Már Pétursson og Sólveig Hjaltadóttir töluðu fyrir hönd afmælisstúdenta. Að lokum flutti skólameistari sína lokaræðu og sleit skólanum.

(Myndir frá útskriftinni má sjá hér.)

Lesa meira
 

Prófasýning og brautskráning - 14.5.2011

utskrift_h2010_065Einkunnir nemenda verða birtar á Innu og prófúrlausnir verða til sýnis í skólanum 18. maí milli klukkan 11.30 og 14.

19. maí. kl. 8:30: Endurtektarpróf fyrir stúdentsefni.

 

20. maí kl. 15 verður æfing fyrir brautskráningu útskriftarnema. Mikilvægt er að allir mæti á æfinguna.

 

Brautskráð verður frá skólanum 21. maí kl. 11.00 og fer athöfnin fram í sal skólans.

Lesa meira
 

Útskriftarnemar fagna - 2.5.2011

dimmi_v2011_007Síðastliðinn föstudag dimmiteruðu útskriftarnemar í FÁ og mættu í skólann sinn með sverð á lofti. Búningar hópsins voru einhvers konar eftirmynd rómverskra hermanna. Í samræmi við vorkomu voru þeir ekki efnismiklir. Allt fór friðsamlega fram hjá pilsklæddum hermönnunum og var undirbúningur hópsins fyrir daginn einstaklega góður. Athöfnin fór fram í nýja salnum þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja. Ekki er hægt að bera aðstæður þar saman við Steypuna þar sem fyrri hátíðir hafa farið fram og ekki nema hluti áhorfenda sá hvað fram fór. Í útskriftarmyndbandinu var gert góðlátlegt grín að kennurum og skólalífinu. Einnig fengu nýnemar sinn skammt fyrir slæma umgengni í skólanum. Kennarar og starfsmenn voru síðan kallaðir upp á svið og þeim veittar ýmiskonar viðurkenningar. Að dagskrá lokinni bauð skólameistari útskriftarnemendum upp á kaffi og gos á kennarastofunni.

(Fleiri myndir má sjá hér.)

(Myndband útskriftarhópsins má sjá hér.)

Lesa meira

 

Dimission á morgun föstudag. - 28.4.2011

dimmisjonh09_9_68Á morgun föstudag 29. apríl kveðja útskriftarnemar skólann sinn með hefðbundnu fjöri í skólanum. Kennsla fer því væntanlega eitthvað úr skorðum að loknum öðrum tíma.

Nemendur og kennarar eru hvattir til að taka þátt í gleðinni með stúdentsefnum.

Lesa meira
 

Jafnréttisdagur í FÁ miðvikudag - 26.4.2011

bleikurJafnréttisdagur Fjölbrautaskólans við Ármúla verður miðvikudag 27. apríl. Í tilefni dagsins eru allir hvattir til þess að mæta í bleiku og taka þátt í dagskránni. Hún hefst klukkan 10.15 með erindi Hjálmars Sigmarssonar mannfræðings um stöðu jafnréttismála á Íslandi. Katrín Anna Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur tekur síðan við kl. 11:10. Fyrirlestur hennar ber heitið Í Takt við tíðarandann en þar eru teknar fyrir staðalmyndir í auglýsingum. Í hádeginu verður opinn fundur og leitast við að svara spurningunum Hvað skiptir mestu máli í jafnréttisumræðunni? Hvernig á að stuðla að auknu jafnrétti í Fjölbrautaskólanum við Ármúla?

Dagskrána má sjá hér.

Lesa meira
 

Sumarfjarnám - 18.4.2011

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á fjarnám á sumarönn 2011 og fer skráning fram 25. - 31. maí og hefst önnin viku eftir að skráningu lýkur.9_

Í boði verða um 50 áfangar og verða þeir kenndir ef þátttaka verður næg. Frekari upplýsingar hér.

 

Umhverfisvika - 5.4.2011

granfan014cUmhverfisvika skólans hófst í gær með því að Heiða umhverfisfulltrúi skólans kynnti sýningu í matsalnum. Sýningin er jafnframt getraun sem allir geta tekið þátt í.

Á þriðjudag verða kynningar á Steypunni á umhverfisvænum vörum og þjónustu. Sýndir verða umhverfisvænir bílar, bæði nýir og einnig bílar sem breytt hefur verið í metanbíla.

 

Í hádeginu á miðvikudag verður sýnd myndin Food Inc. Myndin varpar ljósi á hvernig maturinn sem við borðum verður til. Sýning myndarinnar tekur eina og hálfa klukkustund og fá áhorfendur frí í tímanum á eftir. Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að huga sérstaklega vel að umhverfi sínu þessa vikuna og sýna í verki að við erum umhverfisvænn Grænfánaskóli.

Lesa meira
 

Á fálkaveiðum við Krýsuvíkurbjarg - 31.3.2011

skoli_54_-_CopyFjórða ganga útivistar- og fjallgönguhópsins á laugardag verður eftir Krýsuvíkurbergi. Áætlað er að ganga yfir Litlahraun og niður að Strandarbergi. Áfram vestur eftir Krýsuvíkurbergi og að Heiðnabergi.

Á fimmtudag óku skipuleggjendur áfangans, Úlfar og Helmut, suður að Krýsuvíkurbergi til að kanna aðstæður. Stutt frá bjarginu tóku þeir eftir fálka sem virtist illa á sig kominn. Fjaðrir hans voru blautar að sjá og líklega hefur hann lent í grút. Hann gat ekki flogið nema stutta vegalengd og bar sig langt í frá tignarlega. Reynt var að fanga fálkann með því að kasta yfir hann teppi en eftir nokkrar tilraunir slapp hann á brott yfir hæð og fannst ekki aftur. Hver veit nema að hann finnist í gönguferðinni á laugardag?

Lesa meira
 

Hej - velkommen! - 22.3.2011

dannebrogMiðvikudag 23. mars heimsækir stór hópur danskra nemenda skólann. Nemendurnir eru frá Silkeborg í Danmörku og verða í hinum ýmsu kennslutímum fram til hádegis. Þeim verður síðan boðið í mat í mötuneyti skólans.

Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að taka vel á móti gestunum, brosa og segja a.m.k. ,,Hej!“ Í undirbúningi sínum fyrir Íslandsferðina gerðu nemendurnir blað um Ísland. Þar má finna stuttar og skemmtilegar greinar um allt milli himins og jarðar – og allt tengist það Íslandi og væntingum þeirra til ferðarinnar. Sumar greinarnar eru í skemmtilegum ýkjustíl, sumar eru fræðilegar og sumar eru heimspekilegar.

Smellið á tengilinn og skoðið blaðið!

Lesa meira
 

Ný símstöð - stutt lokun - 18.3.2011

simi15Föstudag verður símasambandslaust við skólann frá kl. 15:00 vegna flutninga á símstöðinni.

Sama góða skrifstofufólkið, Fjóla og Aðalheiður, verður á sínum stað eftir helgi og svarar sama góða númerinu 525-8800.

Lesa meira
 

Opið hús í Fjölbrautaskólanum við Ármúla - 16.3.2011

regnbogi2Opið hús verður fimmtudaginn 17. mars kl. 17-19. Námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans verður kynnt. Lesa meira
 

Í hverahita í sól og frosti - 14.3.2011

krisuvik2_062Þriðja ganga útivistarhópsins var á laugardag. Veðurspá var með eindæmum góð og voru 13 nemendur mættir í ferðina ásamt fararstjóra og tveim kennurum. Veður var heiðskírt, logn og 11 stiga frost. Gengið var frá Grænavatni, litlu stöðuvatni sem er austan Krísuvíkur. Litur vatnsins þykir sérstakur en er tilkominn af brennsteinssamböndum í vatninu.

Gengið var upp á Austurengjahæð þar sem göngufólk fækkaði fötum enda sól tekin að hækka á lofti. Áfram var gengið áleiðis að Engjahver (Austur-Engjahver) sem er stór hver sem birtist skyndilega með miklum látum árið 1924. Stór bullandi leirhver er vestan megin í þessum stóra hver. Austan megin við hann eru einnig mörg og falleg gufuaugu. Göngufólk gaf sér góðan tíma í sólskininu til að virða fyrir sér þetta náttúruundur sem þarna er nánast ósnortið og fjarri alfaraleið.

(Fleiri myndir er hægt að sjá hér.)

Lesa meira
 

Múlaborg og FÁ vinna saman að umhverfismálum - 9.3.2011

Í hádeginu í dag miðvikudag komu kátir leikskólakrakkar úr Múlaborg í heimsókn í skólann. Tilefnið er að nú er að hefjast samstarf milli Múlaborgar og FÁ um umhverfismál. Samstarfið er liður í því að uppfylla skyldur skólans sem Grænfánaskóla, en eitt af því sem þmulaborgarf að gera er að fá fleiri með til að kynna umhverfismál út fyrir veggi skólans. Krakkarnir borðuðu hérna í hádeginu en síðan fræddu nemendur í umhverfisráði nemenda UMH214, þau um endurvinnslu og kenndu þeim að föndra buddur úr fernum.

Við bjóðum Múlaborg velkomna í skólann okkar. Myndir (sjá hér)

Lesa meira
 

Að loknum árdögum - 7.3.2011

tisk05Almenn ánægja var með árdaga FÁ þetta árið. Það var vel mætt á viðburði og í ferðir sem boðið var upp á.

Frábær stemning skapaðist í nýja salnum á söngkeppninni og á tískusýningunni sem haldin var fimmtudagskvöld. Módelin stóðu sig vel og fötin voru „geggjuð“ svo notuð séu orð ofurstjörnunnar Haffa Haff.

Starfsmenn skólans töluðu um hversu duglegir nemendur voru við skipulagningu og framkvæmd á viðburðunum. Skólinn er stoltur og ánægður með þeirra framlag.

Frétt birtist á visir.is um tískusýninguna. (Sjá hér.)

Lesa meira
 

Lilja Björk sigurvegari í söngkeppni FÁ - 3.3.2011

DSC_0414Söngkeppni skólans fór fram á þriðjudag. Fjölmargir hæfileikamiklir söngvarar stigu á svið og ræddi dómnefnd um það að erfitt hefði verið að velja úr þessum góða hópi. Svo fór að Lilja Björk Jónsdóttir sigraði með lagið Mad world. Hún mun því fara sem fulltrúi í söngkeppni framhaldsskólanna á Akureyri. Fjölbrautaskólinn við Ármúla óskar Lilju til hamingju sem sigurinn og góðs gengis í stóru keppninni.

Fimmtudagskvöld 3. mars verður tískusýning FÁ. Haffi Haff verður kynnir á sýningunni. Hann heldur uppi stuði og tekur kannski lagið. Allir eru skyldugir til að mæta í sýnu fínasta pússi á þennan merkasta tískuviðburð ársins!

Lesa meira
 

Eldur á árdögum - 28.2.2011

campÁrdagar hefjast þriðjudag 1. mars og er þema daganna Eldur. Kennt verður í fyrstu tveimur tímunum en síðan ganga allir saman út í Framheimilið þar sem keppt verður í hinum ýmsu íþróttagreinum. 11.30 hefst dagskrá í skólanum þar sem nemendur geta valið að taka þátt í hinum ýmsu atriðum og uppákomum.

Kaffihús verður á Steypunni og eru allir hvattir til að tylla sér niður á milli atriða og gæða sér á veitingum.

Söngkeppni skólans er hápunktur þriðjudagsins en hún er haldin í nýja salnum kl. 20.00.

(Dagskrá árdaganna má sjá hér.)

 

Lesa meira
 

Árdagar - Skráning á viðburði hefst á miðvikudag - 22.2.2011

ardagar_000_-_CopySjóðheitir Árdagar verða í FÁ frá 1. – 3. mars. Þema þessara árdaga er ELDUR og af því tilefni eru þátttakendur hvattir til að klæðast rauðu. Hátíðin hefst kl. 10 á þriðjudag með íþróttahátíð sem allir mæta á - að sjálfsögðu. Kennt er fyrstu tvær kennslustundirnar 1. og 2. mars. Síðan taka nemendur þátt í hinum ýmsu námskeiðum og uppákomum sem þeir hafa valið sér. VALIÐ SÉR! Já, nemendur þurfa að vera búnir að skrá sig á einstaka atburði og hefst skráning á hádegi miðvikudag 23. feb. Dagskrá

Drífið ykkur að skrá ykkur því að sum plássin fyllast fljótt! Einnig er hægt að skrá sig fimmtudag og föstudag. Skráning fer fram á Steypunni.

Lesa meira
 

Komdu á kóræfingu! - 16.2.2011

Kóræfingar þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15:40 í matsalnum. Engrar sérstakrar tónlistarmenntunar er krafist heldur þarf bara að hafa gaman af að syngja. Kórstjóri er Nanna Hlíf Ingvadóttir. Kórinn æfir 1-2 sinnum í viku.

Nemendur geta fkorengið 2 einingar fyrir þátttöku í kórnum. Engin skráning – bara mæta.

Lesa meira
 

Loðni maðurinn sýndur í hádeginu - 9.2.2011

lodniÍ hádegi á miðvikudag verður sýnd 30 mín. löng kvikmynd sem byggir á litillri draugasögu um Loðna manninn. Myndin gerist bæði á tímum Móðuharðindanna og í nútímanum. Íslensku- og sögukennarar eru hvattir til að benda nemendum sínum á myndina því þar geta þeir fengið ágætis innsýn inn í þjóðsögur okkar og tíðaranda.

Allir þeir sem vilja upplifa smá hroll og upplifa þjóðlega spennu eru velkomnir. Myndina gerði Þór Elís Pálsson kennari í FÁ.

Lesa meira
 

Í klofdjúpum snjó á Sandfellsklofa - 7.2.2011

sveifluhals_001Útivistar- og fjallgönguhópurinn ÍÞR141 fór í sína fyrstu göngu á laugardag. Breyta þurfti örlítið fyrirfram gerðri áætlun vegna þess að ófært var um Vatnsskarð og til Krýsuvíkur. Í staðinn var ekið að Vatnsskarðinu, gengið upp á hálsinn og gengið síðan eftir brúninni fyrir ofan Sandfellssklofa sem eru miklar og fallegar móbergshlíðar fyrir norðan Kleifarvatn. Lesa meira
 

ÍÞR141 - Hver og hver og hver og fell. - 1.2.2011

geitafell_99_65Fyrsta ganga útivistarhópsins verður næsta laugardag. Áætluð vegalengd er 5,5 km. Gengið verður upp frá Grænavatni austan Krísuvíkur. Stefnt verður á Austurengjahæð og Engjahver. Svæðið þar er eitt virkasta hverasvæði landsins og margir fallegir hverir þar. Stærstur er Austur-Engjahver sem birtist árið 1924. Frá hverunum verður tekin stefnan á Stóra-Lambafell sem er lítið basaltfell. Síðan verður gengið niður að Kleifarvatni þar sem rútan bíður. Kynningarfundur verður í fundarsal skólans á fimmtudag kl. 12. Lesa meira
 

Umhverfisráð og umhverfi okkar - 31.1.2011

sofar_003Á mánudaginn gengu nemendur í Umhverfisráði í stofur og ræddu umhverfismál skólans. Hópurinn kynnti Grænfánastarfið, ræddi umgengni, reykingar o.fl.

Aðstaða nemenda og umgengni er sígilt mál. Gaman er að sjá hversu skemmtilega nemendaráðið hefur innréttað skotið við hliðina á nemó herberberginu. Þar er hægt að setjast inn í sannkallaða betri stofu, spjalla saman eða taka einn leik í ballskák. Vonandi verður hægt að halda áfram á þessari braut innan skólans og koma upp góðri aðstöðu fyrir umhverfisvæna nemendur sem vilja láta fara vel um sig í fallegu umhverfi.

Lesa meira
 

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness gaf sjónauka - 25.1.2011

ssSkólinn fékk afhentan að gjöf stjörnusjónauka frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness. Það voru Sævar Helgi Bragason, formaður og Sverrir Guðmundsson, ritari sem afhentu skólanum gripinn. Lesa meira
 

Háa skilur hnetti himingeimur - 24.1.2011

stjornurNemendur og starfsmenn fá brátt tækifæri til að auka víðsýni sína og horfa til fjarlægra hnatta því þriðjudag 25. jan. ætlar Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness að færa skólanum stjörnusjónauka að gjöf.

Sjónaukinn verður afhentur við formlega athöfn í sal skólans kl. 12:30. Nemendur og kennarar eru hvattir til að fjölmenna við athöfnina.

Lesa meira
 

FÁ - hettupeysur - 19.1.2011

FA_peysur_002Sala á hettupeysum með merki skólans er í fullum gangi. Merkið á peysurnar gerði Heiðar Steinn sem vann logo-keppni sem haldin var.

Verð á peysu er 3900 krónur. Hægt er að panta og máta peysurnar hjá Nemó.

(Sjáið peysur hér!)

Lesa meira
 

Nýjung í námi í FÁ - 12.1.2011

gedhjukrun_008Hafin er kennsla á tveim nýjum námsbrautum í skólanum. Önnur brautin er framhaldsnám fyrir sjúkraliða í geðhjúkrun og hin brautin er framhaldsnám fyrir lyfjatækna í sjúkrahúslyfjatækni. Námsbrautirnar eru fyrsta námið sem sett er á stofn á 4. þrepi framhaldsskólans en það þrep er fyrir nám sem er í beinu framhaldi af viðurkenndu starfsnámi í framhaldsskóla. Námið dreifist á fjórar annir. Það er eingöngu ætlað fólki með minnst þriggja ára starfsreynslu í faginu á vinnumarkaði. Allir umsækjendur hafa umtalsverða starfsreynslu og stunda námið samhliða vinnu. Lesa meira
 

Sýning í tilefni umhverfisviku - 5.4.2011

umhverfi_76Í tilefni þess að í næstu viku verður umhverfisvika FÁ, komu meðlimir búddasafnaðarins Soka Gakkai á Íslandi til okkar og settu upp sýningu sem alþjóðasamtökin þeirra hafa útbúið í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar og fjallar um Jarðarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Nemendur í umhverfisráði aðstoðuðu við uppsetningu sýningarinnar um helgina.

     Þarna eru upplýsingar um sjálfbæra þróun og hvernig umhverfismál og mannréttindi eru samtvinnuð. Sýningin var í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir um þrem árum og hefur farið víða um land. Sýningin var hjá okkur á umhverfisviku fyrir tveimur árum.

     Nemendur geta unnið verkefni og svarað spurningum sem tengjast sýningunni. Dregið verður úr réttum svörum eftir páska.

Lesa meira
 

FÁ-fálki var aprílgabb - 4.4.2011

FALKIÞað hlupu margir 1. apríl og lögðu leið sína inn til Ólafs aðstoðaraskólameistara til að skoða fálka í hundabúri sem þar átti að vera. Fréttin um að fálkinn hefði náðst var uppspuni en aftur á móti var það rétt að daginn áður reyndu kennarar að fanga fálkann án árangurs. Ýmsir héldu að það væri líka gabb, bentu á hversu ótrúlegt það væri að komast svona nálægt fálkanum, fálkinn væri örugglega uppstoppaður á myndinni eða þá að myndin væri „fótósjoppuð“.

Fálkinn frægi er aftur á móti ennþá einhvers staðar suður með sjó og vonandi við fálkaheilsu þrátt fyrir grútinn í fjöðrunum.

Lesa meira
 

Veiki fálkinn til sýnis í FÁ í dag! - 1.4.2011

Eskoli_51ftir að Náttúrufræðistofnun heyrði af veika fálkanum (sjá fyrri frétt) var þrýst á skólann að gera aðra tilraun til þess að ná honum. Því fóru Helmut og Úlfar í aðra ferð snemma í morgun austur í Krýsuvík. Ekki leið á löngu áður en þeir tóku eftir tveim hröfnum sem flögruðu í kringum einhverja þúst u.þ.b. 1 km frá bjarginu. Þar var kominn fálkinn frá því í gær. Mikið var dregið af honum og því var auðvelt að handsama hann.

Húsdýragarðurinn vinnur að undirbúningi þess að taka við honum eftir hádegi en fram að því verður hann í góðu atlæti í stóru hundabúri sem Þórður félagsfræðikennari var svo góður að lána. Nemendur og starfsmenn eru velkomnir inn á skrifstofu til Ólafs aðstoðarskólameistara í dag og skoða þennan merkilega fugl.

Lesa meira
 



Stoðflokkar



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica